Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚÚ2004 25
„Mér fannst hún alltaf svo faUeg
en þorði ekkert að reyna við hana því
ég hélt ég ætti engan séns,“ segir Har-
aldur Bachmann, kærasti Hugrúnar
Harðardóttur fegurðardrottningar ís-
lands. Halli Bach, eins og hann er
kallaður, og Hugrún eru búin að vera
saman í tæpt ár. Þau koma bæði frá
Selfossi en þar sem hann er fjórum
árum eldri en hún kynnt-
ust þau ekki almennilega
fyrr en á síðasta ári, þótt
þau hefðu alltaf vitað
hvort af öðru.
Kurteisi borgar sig
„Við hittumst á Þjóðhá-
tíð í Eyjum í fyrra. Við vor-
um nokkrir krakkar frá Sel-
fossi sem ætluðum ekki heim fyrr en á
þriðjudagsmorgun. Á mánudags-
kvöldinu vorum við orðin ffekar
slöpp eftir skemmtilega helgi og sát-
um á Prófastinum að sötra bjór í ró-
legheitunum. Ég var að fylgjast með
honum og fannst hann allt í einu svo
sætur því hami var svo kurteis og
hafði boðið okkur stelpunum í glas,“
segir Hugrún brosandi og bætir við að
hún hafi þá um kvöldið sent honum
sms þótt hann sæti á móti henni við
borðið.
Halli tekur upp símann, hann á
ennþá sms-ið. Sendandinn kallast
Hugrún gyðja og skilaboðin eru
„sæti“. Hugrún heldur áffam: „Ég
fékk jákvætt sms til baka og svo hitt-
umst við á balli á Selfossi helgina eft-
ir og erum eiginlega búin að vera
saman síðan.“
Góðirvinir
Bróðir hans Halla er Jóhann Bach-
mann eða Hanni Bach eins og hann
er kallaður, trommari í Skítamóral.
Halfi hefur fetað í fótspor eldri bróður
síns og spilar á trommur í hljómsveit-
inni Oxford. Hugrún segist ffla tón-
listina sem strákarnir spifi og sérstak-
lega þykir henni gaman að sjá hversu
vel þeim takist að hrífa mannskapinn
með sér. Strákamir í Skítamóral hafa
verið duglegir að taka Oxford með sér
á böll og hafa því hjálpað þeim mikið
við að koma sér á framfæri.
„Þegar við spiluðum á undan
Skímó í Eyjum skammaði Gunni okk-
ur fyrir að vera búnir að æsa fólkið allt
of mikið áður en þeir fóru á svið svo
þeir eru ánægðir með okkur.“
Halli og Hanni halda góðu sam-
bandi enda er h'till aldursmunur á
mifii þeirra. „Hann tók alveg tímabil í
að pína mig í gamla daga en á milli
okkar voru aldrei neinar systkinaerjur
eins og maður hef séð annars staðar."
Strákamir eiga einn yngri bróður sem
er 15 ára og að sjálfsögðu er hann
einnig byrjaður að læra á trommur.
Kærastan hans Hanna er fyrirsætan
Ósk Norðfjörð. Hugrúnu og Ósk kem-
ur vel saman og því hanga þau oft
fjögur saman. „Þau vom hjá okkur á
Selfossi um helgina og við fórum með
þeim í útilegu á Blönduós fyrr í sum-
ar og svo fórum við saman út að
„Ég var alltafmeð
puttana á fullu í ein-
hverju svona og hef
alltafverið mjög glys-
gjörn og áhugasöm
um útlit og tísku."
borða í gærkvöldi. Við Ósk náum
verulega vel saman og getum spjafiað
um heima og geima. Hún er voðalega
indæl stelpa og það fer ekki ffamhjá
neinum að þau em afar ástfangin."
Fæstir vita að ég er fegurðar-
drottning
Þau segjast hafa litlar áhyggjur af
því að samband þeirra verði að svip-
uðu fjölmiðlafári og samband Hanna
og Birgittu Haukdal breyttist í. „Það
er bara gaman að við séum bæði að
gera eitthvað spennandi," segir Hug-
rún og Halli bætir við að frægðin sé
ekki ennþá farin að hafa neina óþægi-
lega fylgifiska. „Málið er bara að
halda sér niðri á jörðinni og vera ekk-
ert að velta sér of mikið upp úr þessu.
Marrni er þó ekki algjörlega sama
hvað sagt er en á meðan fjölskylda og
vinir gera greinarmun á sönnum sög-
um og lognum þá gera þær lítið til.
Maður reynir bara að loka á illkvitfii-
ina og vorkennir þeim sem em að
bera út sögumar því þeim h'ður
greinilega eitthvað illa."
Hugrún segist taka lítið eftir því að
fólk horfi á hana úti á götu en Halli
skýtur inn í að hann taki miklu meira
eftir þegar fólk gjóar augunum að
henni. „Eg held að margir viti ekki að
ég er fegurðardrottning. Ungfrú ís-
land er miklu meira í sviðsljósinu
þegar árinu fer að ljúka. Sérstaklega í
kringum stóm keppnina úti og þegar
hður að því að ég krýni arftakann. Þá
verður ábyggilega miklu meira um
fjölmiðlaviðtöl og athygli."
Vil ekki bjóða upp á kjaftasög-
urnar
Þótt Hafii spfii með hljómsveitinni
flestar helgar er Hugrún ekki mikið
fyrir að fara út á djammið. „Ég gerði
mfiáð af því hér áður fyrr en nenni því
ekki lengur. Mér finnst skemmtfiegast
að fara í heimahús og spila og kjafta en
fer ákaflega sjaldan niður í miðbæ
Reykjavíkur. Ég veit hversu auðveld-
lega sögumar geta farið af stað og
nenni ekki að bjóða upp á það," segir
hún og bætir við að hún geri sér einnig
grein fyrir að hún sé fýrirmynd ungra
stúlkna og geti ekki gert allt sem hana
langi tfi. „Ég er tfi dæmis hætt að flauta
á þá sem pirra mig í umferðinni," seg-
ir hún hlæjandi.
Ekki týpísk íslensk fegurðar-
drottning
Hugrún fer til Finnlands að keppa
í Miss Skandinavia í október og fer
svo stuttu eftir það til Kína til að taka
þátt í Miss World. Hún segir að ef hún
verði almennilega undirbúin fyrir
keppnimar þá verði þetta lfklega ekk-
ert mál. Nú sé hún á fullu í líkams-
rækt og standi í afiskyns pappírs-
vinnu í kringum þetta. „Hún fer alein
til Kína í heilan mánuð," segir Halli og
viðurkennir að hann eigi eftir að
sakna hennar þótt hann hafi fulla trú
á að hún eigi eftir að standa sig vel.
„Þetta er ffábært tækifæri fyrir hana
og ég held að henni eigi eftir að ganga
mjög vel. Það em aðeins tí'u stelpur
sem keppa í Miss Skandinavia og ég
spái henni mjög ofarlega þar.J Kína
er þetta allt annað, þar em 120 stelp-
ur sem keppa sfn á milli en ef hún
verður dugleg að grípa athyglina gæti
hún náð langt. Hún er með þetta al-
þjóðlega útlit en er ekki þessi týpíska
íslenska fegurðardrottning," segir
hann stoltur og Hugrún bætir við að
það séu margir búnir að hafa á því
orð við Elínu framkvæmdastjóra
keppninnar hvað það sé gaman að sjá
svona öðmvísi útlit, ekki þetta venju-
lega; blá augu og ljóst hár."
Hugrún segist alltaf hafa hugsað
mikið um útfitið og að hún hafi ætlað
sér að verða fegurðardrottning síðan
hún var lítfi. „Eg var alltaf með putt-
ana á ftrllu í einhverju svona og hef
afitaf verið mjög glysgjöm og áhuga-
söm um útlit og tí'sku."
Draumurinn er ftalía
Halli og Hugrún eru nýbúin að
festa kaup á íbúð á Selfossi. Þar
vinnur hún á hárgreiðslustofu og
hann sem málari. „Við erum rosa-
lega spennt að geta flutt inn en það
hefur bara verið svo mikið að gera
að það gengur hægt að koma íbúð-
inni í stand," segir Halli en hann er
sjálfur að vinna í íbúðinni með hjálp
vina. „Og Hugrún hjálpar líka til,"
flýtir hann sér að segja og gjóar aug-
unum að henni brosandi. „Þetta er
yfir 50 ára gamalt hús og í ágætu
standi, allt undir súð og mjög róm-
antískt," segir Hugrún dreymin á
svip.
í framtíðinni er draumurinn að
flytja af landi brott, helst til Ítalíu.
„Ég er enga stund að klára námið
enda á ég bara eina önn eftir. Síðan
langar mig að vinna í svona eitt til tvö
ár á hárgreiðslustofunni en síðan
flytja út og vinna við eitthvað tengt
tí'sku." Hiin viðurkennir að hún geti
ábyggilega notað fegurðardrottning-
artitilinn til að koma sér áfram og
Halli bætir við að það sé um að gera
að nota afit sem maður hefur tfi að
koma sér áfram. Barneignir em ekki
planaðar í nánustu framtíð enda má
Hugrún ekki eignast bam, trúlofa sig
eða ganga í hjónaband á meðan hún
heldur tidinum. „Okkur liggur heldur
ekkert á að trúlofa okkur enda ein-
ungis búin að vera saman í eitt ár. En
kannski tökum við svo bara allan
pakkann þegar árinu lýkur," segir
Halli hlæjandi.
Aðspurð hvemig þau ætli að halda
upp á eins árs afrnæli sitt segjast þau
ætla að gera eitthvað skemmtfiegt
saman. „Þú ætlar að spfia fyrir mig á
gítar," segir Hugrún en Halli svarar
með því að spyrja hvort það hefði
ekki átt að vera afmælisgjöfin hennar.
„Hann er búinn að lofa að læra á gítar
fyrir mig. Það væri svo þægilegt á
kvöldin, allavega þægilegra en
trommusóló."
Um verslunarmannahelgina ætla
þau í rólega útilegu á Flúðir ásamt
fjölskyldu Halla. „Mamma hans og
pabbi eiga hjólhýsi þar og við ætlum
bara að tjalda hjá þeim. Það var rosa-
legt stuð þama í fyrra svo við hlökk-
um mikið tfi." indiana@dv.is
„Manni erþó ekki algjörlega sama hvað sagt
er en á meðan fjölskylda og vinir gera greinar-
mun á sönnum sögum og lognum þá gera þær
lítið til. Maður reynir bara að loka á illkvittn-
ina og vorkennir þeim sem eru að bera út sög-
urnar því þeim líður greinilega eitthvað illa."
r
jr