Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 3 Betra ið lianga á Hlemml en á Flllppsnyjum Þeim finnst gott að hanga á Hlemmi strák- unum. Komu alla leið frá Filippseyjum, hing- að þar sem þeir hanga. Skyndimyndin Fluttu hingað með mæðrum sínum og sumir með feðrum, sem hingað komu að freista gæfunnar í fiski á ís- landi. Það fer vel um þá hér, vilja hvergi ann- ars staðar búa. Nota tímann vel, spila sam- an körfubolta og æfa sig í íslensku. Þeir segja gott samband milli Fil- ippseyinga á íslandi. Þeir spilia reglulega saman körfubolta á vellinum fyrir framan Austurbæjarskóla. Flestir búa þeir á Hverfisgötu, finnst best að búa í miðbænum. Hverfisgatan er þeirra Asía á ís- landi. Þeir eru sammáia um að tungumálið sé erfitt, hafa litlum tökum náð á því eftir að hafa verið hér nokkur ár. Þeir halda hópinn og umgangast íslendinga ekkert sérstak- lega mikið. Hlæja saman og spjalla á sínu eigin tungumáli sem er einhvers konar blanda af spænsku og tungumáli innfæddra á Filippseyjum. — Nýr Hlemmur Strákamir frá Filipps- eyjum eru að læra ís- lensku og langar í Iðnskólann. Þeir hafa ekkert nema gott eitt um ísland að segja. Svara: „Já, já,“ öllum spurningum sem fyrir þá eru bomar um gæði íslands og þjóðarinnar sem hér býr og þeir em nú hluti af. Hér em tækifæri sem þá langar að nýta. Læra málið og mennta sig jafnvel enn frekar. Segja Iðnskólann spennandi kost. Spurning dagsins Hver á að verða þjóðleikhússtjóri? Sakna Baltasars og Magnúsar „Fyrst og fremst vonast ég nú til þess að Þorgerður Katrín láti ekki leiða sig út íeinhver kynjakvótamál við þessa stöðuveitingu. Mín vegna má Þjóð- leikhússtjóri alveg vera karlmaður næstu 100 árin í viðbót, mestu máli skiptirað ráða hæfasta einstaklinginn. Ég tek Baltasar Kormák og Magnús Ragnarsson fram yfir þá 18 umsækjendur sem gerðirhafa verið oþinberir en óska þeim öllum alls hins besta og þakka Stefáni fyrir vel unnið starf." Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka í Pennanum „Ég vil sjá flinka og hæfi- leikaríka konu í stól Þjóðleik- hússtjóra. Það eru margar góðar konur á þessum lista." Atli Gíslason hæstaréttarlög- maður „Ég er nýbúinn að sjá listann yfir umsækj- endur og vil ekkert tjá mig um einstök nöfn. Þetta er afar giæsilegur hópur en hvort rétti maðurinn er á honum, það verður tíminn að leiða í Ijós." Jón Viðar Jónsson leikhús- fræðingur og forstöðumað- ur Leikminjasafns fslands „Ég vil að Tinna Gunn- iaugsdóttir verði þjóðleik- hússtjóri. Hún erklárog glæsileg kona og mun án nokkurs vafa standa sig vel í þessu starfi." Halldór Þorgeirsson kvik- myndaframleiðandi „Atli Gíslason yrði fínn þing- maður. Ég mæli því með Kolbrúnu Hall- dórsdóttur þó ég þekki ekki hennar leikhúshæfileika." Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður Árni Ibsen, Benóný Ægisson, Bjarni Daníelsson, Hafliði Arngrímsson, Halldór E. Laxness, Hallur Helgason, Helga Hjörvar, Hlín Agnarsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Kolbrún Halldórsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Kristín Jóhannesdóttir, Ragnheiður Skúladóttir, Sigrún Valbergsdótt- ir,Tinna Gunnlaugsdóttir,Trausti Ólafsson,Viðar Eggertsson og Þór- hildur Þorleifsdóttir sóttu um starf þjóðleikhússtjóra. Með popp um hálsinn og í hárinu Einn mikilvægasti fæðuflokkur mannkyns hlýtur, þrátt fyrir allt, að vera hin mjölvaríku fræ ýmissa korntegunda; hveitisins, hrísgrjón- anna, rúgsins, hafranna, byggsins, dúrrunar, hirsisins og helsta tísku- kornsins þessi misserin, maísins. Fæðilega séð er maís einær nytjajurt af grasætt, karlblómið situr í skúfi í stöngultoppi og kvenblómið í axi á blaðöxlum. Kornið sjálft situr í þétt- um röðum utan á gildum kólfi og getur maísinn náð allt að fimm metra hæð. Ættir sínar á maísinn að rekja til Mið- og Suður-Ameríku en þar hefur hann verið ræktaður í fjög- ur til átta þúsund ár. Nú er hann ræktaður í ótal afbrigðum í hita- og tempruðum beltum veraldar og menn naga ýmist kólfinn steiktan, bakaðan eða soðinn eða vinna úr honum komflögur, mjöl og olíu. Landvinningamenn í Nýja-heimin- um vom á höttunum eftir ýmsu en ekki maís og skeyttu ekkert um þetta korn sem íbúar Nýja-heimsins hámuðu í sig í tíma og ótíma. Popp- maísinn er talinn allra maísa elstur, fmmbyggjar Mið- og Suður-Amer- íku hafa sturtað maískornunum í risastór leirker með sjóðheitum sandi í bominum. Etið sumt en ekki síður notað poppið til að gera sér hálsfestar og höfiiðskraut á stórhá- tíðum. Þeir stráðu líka poppi um stræti og torg á stórhátíðum, döns- uðu í því og færðu það guðum regns og frjósemi. Aztekar töldu það heita mómóchítl en inkar sögðu það pisankalla. Spænskur landkönnuður á leið um Paragvæ á 18. öld skrifaði hjá sér að indjánar þar syðu maís sinn í olíu þar til hann spryngi út, þá gerðu hefðarkonur sér úr honum hárskraut en annað fékk hann í skál- um og þótti gott. Og fljótlega spurð- ist ágæti maísins út. I Vi VJLitUtiu GREIN FYRIR HAGFRÆÐINGa. - JOHN KENNETH GALBRAJTH HAGFRÆÐINGUR1908- KynningarfulEtrúinn r ! leigubílstjórinn ' Ólafur Hauksson blaðamaður og kynningarfulltrúi lceland Express og Gísli Hauksson leigubíl- stjóri eru bræður. Þeir eru synir hjónanna Ólafar Þorleifsdóttur húsmóður í Reykjavík , 1 og Hauks Ársælssonar rafmagnseftirlits- * marins frá Vestmannaeyjum. Ólafur er öllu þekktari af þeim bræðrum enda hefur b&ÆBB hann víða komið við í fjölmiðlaflórunni undanfarna áratugi. Þeir ei bræður 155? visir ...UMALLT! ... ALLT Á SAMA STAO - ALLTAF - ALLSSTAÐARS... Á V1SIR.IS FRETTIRI ÞRIVIDD LESTU, HLUSTAÐU, HORFÐU!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.