Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV í þaö minnsta einn skipverja vantaði á rækjuskipið Kópnes ST-46 sem sökk norð- ur af landinu í gærmorgun. Lögum samkvæmt áttu minnst íjórir að vera um borð. Formaður Félags skipstjórnarmanna segir að brotalöm sé í kerfinu. Bensínverð lækkar verðbólgu Olíufélögin lækkuðu bensínverð í fyrradag um 1,5 krónu á lítra. í ljósi þessa eru nú mestar líkur á 0,5% hækkun vísitölu neysluverðs á milli ágúst og september í stað 0,6% hækkunar sem spáð var á mánudag. Að sögn íslands- banka eiga útsölulok stærsta þáttinn í hækkun vísitölunnar á milli mán- aða. Ef spáin gengur eftir mælist verðbólgan 3,5% í september. Verðbólgan er nú 3,7% og er því yfir 2,55% verðbólgumarkmiði Seðla- bankans. Ekki „redda" fótboltanum Bæjarráð Reykja- ness samþykkti í gær viðbótarsamn- ing vegna tækja- kaupa til reksturs íþróttavalla. Ákveð- ið var að verja 3,5 milljónum í málið og var upphæðinni vísað til endurskoðunar. Jó- hann Geirdal, oddviti Sam- fylkingarinnar í minnihlut- anum, sat hins vegar hjá með bæjarfulltrúanum Ólafi Thordarsen. Þeir létu svo bóka: „Við teljum eðli- legt að komið sé til móts við rekstur knattspyrnu- deildarinnar á heilstæðan hátt í stað svona smá redd- inga.“ Húseigendur kaupa bréf Hugsanlegt er að nýju íbúðalánin sem bankarnir bjóða muni leiða til auk- innar stöðutöku íslenskra heimila á hlutabréfamark- aðinum. Með lánunum gefst íbúðareigendum betra færi en áður á að losa um eigið fé sem bundið er í húsnæðinu og nýta til ann- arra hluta. Nokkuð hefur verið rætt um möguleika þess að þetta íjármagn fari í aukna neyslu. Hitt er hins vegar einnig líklegt að þetta fé muni leita inn á hluta- bréfamarkaðinn. Hlutabréf hafa hækkað mikið að und- anförnu og þátttaka ein- staklinga á markaðnum hefur aukist. Greining ís- landsbanka segir frá. Skipift sem sökk var undirmannað „Það er ráðaleysi og eftirlitsleysi með undir- mönnun og réttindum" Þrír menn björguðust úr gúmmíbát eftir að skip þeirra, Kópnes frá Hólmavík, sökk 37 mflum norð-norðvestur af Skagatá. Mildi þykir að mennirnir hafí bjargast en að öðru leyti var björgunin dularfull. Það vantaði minnst einn mann um borð. Kópnes er tæplega 150 rúmlesta skip með 442 kílóvatta vél. Samkvæmt lögum um atvinnurétt- indi skipstjómarmanna á íslenskum skipum númer 112 frá árinu 1984 eiga minnst að vera einn skipstjóri og einn stýrimaður á skipum frá 31 til 300 nimlesta. Lög númer 113 ffá sama ári um at- vinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum kveða á um að um borð í skipi sem hefur lest með aflið 221 til 750 kílóvött eigi að vera minnst einn yfirvélstjóri auk véla- varðar. Því er ljóst að um borð í Kópnesinu áttu að vera minnst fjórir menn sem fylla áttu þessar stöður, fyrir utan stöð- ur bryta og háseta. Brotalöm í kerfinu Samkvæmt upplýsingum DV vom fjórir skipverjar skráðir um borð í Kóp- nesi allt þar til í ágúst, að þeir vom að- eins þrír. Lögskráning á skip fer fram í gegnum sýslumann á hverjum stað fýrir sig. Áslaug Þórarinsdóttir, sýslu- maður á Hólmavík, var ekki til viðtals um hvemig Kópnesið gat farið undir- mannað á sjó í mánuð. „Það er einhver brotalöm í kerfinu sem gerir þeim kleift," segir Ámi Bjamason, formaður Félags skip- stjómarmanna, og kveðst vona að ekki sé algengt að skip séu undirmönnuð. „Ég veit dæmi þess að sama skipið hafi verið tekið fyrir þetta með mjög skömmu miUibili og held ég fært í land. Ég held að Landhelgisgæslan stoppi menn þegar þetta gerist oft með sama aðilann," segir hann. Eftirlit í molum Einar Öm Einarsson, formaður nemendafélags Skipstjóra- og stýri- mannaskólans, segir eftirlit Landhelg- isgæslunnar með réttindum og undir- mönntm almennt í molum. „Það er ráðaleysi og eftirlitsleysi með undir- mönnun og réttindum. Það virðast engin mál kláruð. Dæmi em um að menn séu ítrekað teknir réttindalausir á sama bát og þeir bara halda áfram. Varðskip Landhelgisgæslunnar hanga við akkeri og láta sig reka hér og þar við landið vegna fjárskorts. Það er búið að moka öllum fjármunum út úr Gæsl- unni. Við erum að komast út að endi- mörkum þama. Nú fara að gerast al- varlegir hlutir." Sjálfur segist Einar hafa stýrt skipi þrjú sumur án þess að hafa réttmdi. Ilann hafi lært af þeim mistökum þeg- ar sMpið tók niðri. „Menn verða að hafa menntun til að þola ábyrgðina, álagið og alvöruna sem sMpstjórastarfinu fylgir. Það að sMp komist upp með að vera undir- mönnuð vekur okkur til umhugsunar um framtíðina. Við menntum okkur í tæp fimm ár, en menn geta verið að leika sér réttindalausir og svo er verið að undirmanna sMpin með tilheyr- andi meira álagi fyrir sMpverja," segir Einar. Sökk í austan kalda Tildrög þess að Kópnesið sökk verða rannsökuð af rannsóknamefnd sjóslysa. Sagt er að leM hafi orðið í vél- arrúmi sMpsins um Hukkan 10 mínút- ur í fimm í gærmorgun og sMpið teMð að hallast. SMpverjamir þrír sendu út neyðarkall og fóm í gúmbjörgtmarbát. Til allrar hamingju var Kaldbakur, sMp Brims, aðeins 12 mflum ffá og tókst þeim að bjarga sMpverjunum. Austan- kaldi var þegar sMpið sökk, um 10 til 12 metrar á sekúndu. jontrausti@dv.is _ i-j- — « gjB - *" Eftirlit í molum EinarÖrn Einarsson, formaður nemendafélags Skipstjóra-' og stýrimannaskólans, segir skip Landhelgisgæslunnar láta sig reka eða liggja við akkeri til að spara fé. Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri um húslánin Vissulega rétt að við erum í vanda Eiríkur Guðnason, einn banka- stjóra Seðlabankans, segir að vissu- lega sé það rétt sem fram hafi kom- ið að SeðlabanMnn sé í vanda með að meta ýmis áhrif af hinum nýju íbúðalánum bankanna. „Við getum aðeins gert okkar besta við að meta áhrifin í stöðunni sem komin er upp," segir Eirflcur. „Þetta er nýstárlegt á fjármálamark- aðinum hér og við höfum ekki sögu- lega reynslu til að styðjast við þegar við reynum að meta áhrif þessara lána á þætti eins og eftirspurn í hag- Hvað liggur á? kerfinu, gengi krónunnar og verð- bólgu. Við munum því fylgjast eins vel með þróuninni eins og kostur er á næstu mánuðum." í máli Eiríks kemur einnig ffam að það flæM svolítið málið að al- menningur á kost á að taka hin nýju lán óháð því hvort viðkomandi er að byggja eða kaupa húsnæði. „Og það má geta þess að nú virðast verð- tryggðir vextir á skuldabréfum vera orðnir lægri en þeir hafa verið síð- ustu 20 árin," segir Eiríkur. Útgáfa næstu Peningamála Seðlabankans verður þann 17. sept- Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður „Það liggur á að þakka öllu því góða fólki sem hefur tekið þátt í undirbúningi Þjóðminjasafnsins og lagt sitt afmörkum til að gera þetta með sem glæsilegustum hætti. Það liggur líka á að taka því rólega með fjölskyldunni eftir alla vinn- una og átakið/' segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður. A ember næstkomandi. Eiríkur á þó ekM von á að þessi staða hafi áhrif á þá útreikninga sem þar verða lagðir fram enda of stuttur tími liðinn til að áhrifa af hinum nýju íbúðalán- um sé farið að gæta að ráði í hag- kerfinu. Það var Greining íslandsbanka sem vakti athygli á þessu vandamáli í vikunni. Þar kom meðal annars fram að þessi staða væri óþægileg fyrir Seðlabankann og skapi honum aukna óvissu. BanMnn þurfi að vera framsýnn í ákvörðunum og taka til- lit til þess ástands sem lfldegast muni verða á næsta ári eða þegar áhrifin af þessum breytingum verði líklegast komin fram. „I ljósi miHllar óvissu kunni að fara svo að banHnn bregðist rangt við þessu nýja útspili bankanna," segir í áliti Greiningar íslandsbanka. Eirfkur Guðnason Það flækirsvolítið málið að almenningur á kost á að taka hin nýju lán óháð þvl hvort viðkomandi er að byggja eða kaupa húsnæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.