Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 23
Líkamsræktardrottningin Unnur Pálmarsdóttir stendur fyrir heilsu og likams-
ræktarráðstefnu í Sporthúsinu um helgina. Frægustu þolfimi- og danskennarar
heimsins ætla að mæta og kenna íslendingum hvernig á að hreyfa sig.
I. Lorekur
aðstoðar-
fólk
Hollywood-glamúr-
frekjan Jennifer Lopes
er farin að reka að-
stoðarfólk sitt hægri
vinstri vegna frétta
sem hafabirstum
hana í erlendum slúð-
urblöðum. Nú síðast
fckk snyrtifræðingurinn
Scott Barnes að íjúka en
Jennifer hafði þó engar
sannanir fyrir því að
hann hefði verið aö leka
fréttum í gulu pressuna.
J. Lo er samt viss um að
einhver af þessum mörg
hundruð starfsmönnum
hennar sé að leka fréttum
í pressuna en þar sem
um heilan her er að ræða
er erfitt að finna nákvæmlega
hver ber ábyrgð á þessu. Þess
vegna var Scott Bames látinn
gjalda fyrir glæpinn með upp-
sögn.
„Með þessu vonast ég til að víkka sjón-
deildarhringinn svo fólk sem er aðeins í
spinning eða aðeins að lyfta fái að kynnast
fleiru," segir þolfimi- og líkamsræktar-
kennarinn Unnur Pálmarsdóttir. Unnur
hefur starfað lengi í hkamsræktargeiranum
og var valin kennari ársins í Bretlandi í
fyrra. Núna stendur hún fyrir heiisu- og lfk-
amsræktarráðstefnu sem haldin verður í
Sporthúsinu í dag og á morgun, laugardag.
Vítamínsprauta fyrir haustið
„Ráðstefnan er byggð á erlendri fyrir-
mynd. Ég hef fengið sjö erlenda heims-
þekkta kennara sem ætla að kenna okkur
það nýjasta í þessum heimi. Þama er hægt
að kaupa sig inn í hvern tíma fyrir sig eða
þá kaupa kort fyrir alla ráðstefnuna," segir
Unnur og bætir við að ráðstefnan eigi að
virka sem vítamínsprauta fyrir haustið.
„Það er mikill áhugi fyrir allri hreyfingu og
ég vona að fólk fjölmenni og skemmti sér
vel undir góðri tónlist."
Heimsmeistarinn í fönki og dansi
, Meðal kennara er heimsmeistarinn í
fönki og dansi. Þótt Unnur hafi ferðast um
allan heiminn segist hún aldrei hafa séð
betri dansara. „David ætlar að kenna okk-
ur nýjustu sporin sem við sjáum á Mtv og
hefur lofað að hafa þetta sem einfaldast
svo allir geti tekið þátt.“
í dag klukkan 17 verður opnunartíminn
þar sem alhr kennararnir sýna sitt efni.
Samkvæmt Unni er sniðugt að mæta í
þann tíma til að velja í hvað maður vill
mæta. „Þetta verður í rauninni eitt stórt
heljarinnar partí. Páll Óskar verður plötu-
snúður, tveir bongótrommarar verða á
staðnum, veitingar frá Salatbarnum og
glaðningar frá Body Shop.“
Miklu betra en að djamma
Unnur segir að þótt vinnan í kringum
þetta sé mjög mikil stefnir hún að því að
halda svona ráðstefnu á hverju ári. „Þar
sem ég hef starfað mikið erlendis þá er ég
komin með góð sambönd svo það er um
að gera að nota þau til einhvers góðs. Það
er miklu betra að mæta þarna og missa sig
og fá góða útrás heldur en að eyða pening-
unum á djamminu."
Unnur
dóttir,
barnum og
nars-
Óskar
t rommar-
taðnum,
glaðning
Jesús
leikur
Súperman
Miklar vangaveltur hafa veriö
um það hver komi til með að
leika Súperman í nýrri mynd um
kappann. Talað hefur verið um
leikara á borð við Nicolas Cage,
Jude Law, Brendan Fraser og
Jake Gyllenhaal en enginn
þeirra þótti nógu góður í hlut-
verkið og þess vegna var bara
eitt í stöðunni. Að fá Jesús sjálf-
an til að taka þetta að sér. Nú
eru í það minnst allar líkur á því
að Súperman verði leikinn af
öðru ofurmenni, leikaranum
Jim Caviezel sem sló í gegn í The
Passion ofThe Christ eftir Mel
Gibson. Samkvæmt fréttum er
málið svo gott sem frágengiö en
þó á eftir að skrifa undir samn-
inga og ganga frá alls kyns smá-
atriðum.
J
3
■W JT
Forsetakosningarnar í Bandaríkjun-
um valda Qölskyldudeilum
Aukinn vöxtur í netsölu á tónlist
Baldwin-bræður deila um pólitík
Komandi forsetakosning-
ar í Bandar/kjunum hafa
ekki bara klofíð þjóðina I
tvennt heldur llka heilu
fjölskyldurnar og það eng-
ar eðlilegar Fjölskyldur.
Leikarabræðurnir sem
kenndir eru við Baldwin
hafa nefninlega ekki sömu
skoðun á stjórnmálum og
standa nú I deilum. Alec hef-
ur alltaf verið demókrati en
nú hefuryngri bróðir hans
Stephen skráð sig I Repú-
blikanafíokkinn. „Min póli-
tlska afstaða byggir á því
að ég kýs þá sem mér list
best á hverju sinni. Guð
hefur kerfísbundið verið
fjarlægður úr okkar samfé-
lagi og menningu og þess
■ vegna kýs ég repúblikana.
Þeir eru líklegri til að koma
W \ Guði aftur að,“segir Steph-
V \. en sem er frelsaður. Alec
’ segir ftokkinn hinsvegar
aðeinsætla að nota hann
9 r og henda svo þegar kosn-
ingarnar eru búnar. „Þeir
eiga eftir að henda hon-
um eins og hverju öðru
rusli. Ég ráðlagði honum
að passa sig á þeim en
hann gaf náttúrlega sklt
I það eins og allt sem ég
hefráðlagt honum um
ævina," segir Alec.
Alec Baldwin Eryfírlýstur
demókrati og segir
Repúblikanaflokkinn að-
eins vera að nota frelsaöan
bróöur sinn, Stephen, I
áróöursskyni.
Ný markaðsspá er komin út frá
greiningarfyrirtækinu Forrester Res-
earch um framtíð sölu tónlistar á
netinu. Gert er ráð fyrir að sala tón-
listar á þennan máta aukist verulega
á næstu árum og fari yfir þrjúhund-
ruð milljarða árið 2009. Aukningin
er skýrð með vaxandi kaupum Evr-
ópubúa á netinu en Bandaríkja-
menn hafa til þessa verið duglegri
við tónhstarkaup á netinu. Micro-
soft hefur nú opnað tilraunaverslun
á netinu, MSN Music, og verður hún
fýrst um sinn einungis opin Banda-
ríkjamönnum. Keppinauturinn
Apple hefur nú um 70% af heims-
markaðnum.
Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri íslenska sölunetsins
tonlist.is, segir að aukningu megi
greina í sölu stakra laga frá í vor. Tel-
ur hann að aukning sé um 20% milli
mánaða. Vefurinn var stofnaður í
apríl 2003 í sömu viku og iTunes fór
í gang. Átta þúsund notendur eru
skráðir á vefinn og um 1500 nota
hann mánaðarlega. öll íslensk tón-
list sem komin er á geisladiska er
komin á vefinn og nú er unnið að
skráningu laga af vinyl og úr óút-
gefnum hljóðritunum. Verða lög af
diskum haustsins boðin á vefnum
viku til tíu dögum fyrir útgáfur. Þá
stendur vefurinn í viðræðum við
Samtón um hugsanlegar útgáfur af
stóru tónlistarsafni Ríkisútvarpsins
sem á stærsta íslenska hljóðritasafn í
heiminum.
Stefán Hjörleifs-
son Ánægöurmeö
aukningu I sölu
tónlistar á netinu.