Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Prestur ók á
einum tanki
Dísilknúinn Volkswagen
Golf á vegum Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda fór
hringveginn á einum tanki.
Ferðinni lauk í gær. Bíllinn
eyddi 54 h'trum af dísilolíu,
einum lítra
minna en tank-
urinn rúmar.
Bílinn eyddi því
3,8 h'trum á 100
kílómetrum.
Séra Jakob Rol-
land, prestur kaþólskra í
Hafnarfirði, ók bílnum. Að-
stoðarökumaður var Stefán
Ásgrímsson ffá FÍB.
Risaeðlur á
Svalbarða
Fimm metra lög forn-
aldarskepna er fundin á
Svalbarða og er talin vera
ichthyosaurus. Þetta kemur
fram í Aftenposten.
Á sama svæði fundust
leifar af tíu metra löngum
plesiosaurus. Tahð er að
á rannsóknar-
svæðinu leynist
mun fleiri for-
sögulegar dýraleifar. Jöm
Hurum, helsti sérfræðingur
Norðmanna í steingerv-
ingafræðum, telur sig þegar
hafa fundið leifar tíu dýra.
Hann hefur líka fundið vel
varðveitta steingervinga af
öðmm sjávardýrum. Það
vom námsmenn á sumar-
ferð sem fundu dýrin.
Vargamaná
Þjóðminjasafiiinu?
Steindór Andersen
kvæðamaöur
„Ég skoðaði safnið ekki mjög
vel og get eiginlega ekki svar-
að þessari spurningu afneinu
viti. En mér leist mjög vel á
þaö sem við blasti viö fyrstu
sýn. Ég hefsaknað þess mjög
að hafa ekki haft safnið opið
öll þau ár sem það hefur verið
lokaö. Ég hafmargoft átt er-
indi vegna þess sem ég er aö
stússast í og býst við að í
framtíðinni eigi leið mín oft
eftirað liggja þangað."
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst safniö stórglæsi-
legt og hafði mikia ánægju af
því að vera við opnunina. Hús-
ið tekur vel á móti manni og
þaö erglæstur og virðulegur
svipur á innganginum I húsið.
Salirnir eru bjartir og nútíma-
legir og ég hlakka virkilega til
að skoða safnið í rólegheitum.
Opnunin var einstaklega
velheppnuð og mérfannst
ánægjulegt að sjá hve margir
biðu eftir aö komast inn I safn-
ið þegar okkur bar að. Þaö
fannst mér skemmtilega tákn-
rænt."
1 '
»y vm vnp*T ':W$
Sigrfður Anna Þórðardóttir
veröandi umhverfisráöherra
HLuthafar í deCODE stefna fyrirtækinu, Kára Stefánssyni forstjóra þess og fjármála-
stjóranum fyrir rétt fyrir að hafa hækkað hlutabréfaverð með röngum og villandi
upplýsingum. Vísað er til þess að endurskoðendur fyrirtækisins hafi hætt fyrirvara-
laust eftir að hafa vakið athygli á að tilkynna þyrfti betur um efnahag deCODE.
Skurölæknir stefnir
deCODE fyrir dóm
Bandarísk lögfræðistofa safnar nú liði til að höfða mál gegn
deCODE fyrir bandarískum dómstólum fyrir ranga og mis-
vísandi upplýsingagjöf.
Lögfræðingurinn sem fer með
máhð sagði í samtali við DV að þar á
bæ teldu menn að deCODE og for-
svarsmenn þess hefðu veitt ófuh-
nægjandi og rangar upplýsingar um
rekstur fyrirtækisins á sama tíma og
þeir hafi verið að afla 150 milljóna
dollara með skuldabréfaútboði.
Hann segir að innherjar í fyrirtæk-
inu hafi sjálfir selt hlutabréf á þeim
tíma sem öðrum liluthöfum hafi
ekld verið kunnugt um innri vanda-
mál félagsins.
Lögfræðingarnir höfða málið fyr-
ir hönd bandarísks skurðlæknis,
Richards Bassin, og annarra hlut-
hafa sem áhuga hafa á því að bætast
í hópinn. Það stendur þeim til boða
sem keyptu hlutabréf í deCODE frá
29. október 2003 til 26. ágúst í ár.
Endurskoðendur hættu fyrir-
varalaust
í rökstuðningi með stefriunni er
vimað til þess þegar PriceWater-
houseCoopers hætti fyrirvaralaust
sem endurskoðandi deCODE. Þar
kom fram að það hefði verið einhliða
ákvörðun PriceWaterhouseCoopers
að hætta að vinna fyrir deCODE.
Því er haldið fram að endurskoð-
endurnir hefðu viljað að fyrirtækið
tilkynntí betur um raunverulegt
ástand á fjárhagi félagsins. Máhð er
höfðað gegn fýrirtækinu deCODE en
einnig gegn Kára Stefánssyni, for-
stjóra og stjórnarformanni félagsins,
og Lance Thibault fjármálastjóra.
Ásakanirnar eru þær að deCODE
og stjómendurnir hafi brotið gegn
lögum og reglum bandaríska íjár-
málaeftírlitsins. í stefnunni segir að
dehur fyrirtækisins og endurskoð-
endanna veki sérstaka athygli
Hann segir að inn-
herjar i fyrirtækinu
hafí sjálfír selt hluta-
bréfá þeim tíma sem
öðrum hluthöfum hafí
ekki verið kunnugt
um innri vandamál
félagsins.
vegna þess að fyrirtækið hafi í fortíð-
inni þurft að leiðrétta reikninga.
Þess vegna hafi hluthafar verið sér-
staklega á varðbergi gagnvart góð-
um reikningsskilum.
Stefnan er rökstudd með því að
vitna tíl árshlutareikninga deCODE
og tilkynninga th bandaríska verð-
bréfaþingsins.
Krefjast bóta fyrir svik
Hluthafarnir krefjast þess að
viðurkennt verði að forsvarsmenn
deCODE
hafi
svikið
hluthafana og að þeim verði
dæmdar bætur.
Lögmaðurinn sem DV talaði við
hjá skrifstofunni Lerach Coughlin
Stoia Geher Rudman & Robbins
LLP, sagði að íyrirtækið sér-
hæfði sig í málum sem þess-
um. Það hefur 140 lögfræð-
inga á sfnum snærum um öh
Bandaríkin. Langflestum
málum lýkur með sátt en eitt
prósent mála endar fyrir dómi.
Fyrirtækið segist hafa náð
um 20 mihjörðum dohara sam-
anlagt úr málum sem það hefur
höfðað. Lögmaðurinn sagði
að strax við upphaf
vinnudags í gær hefðu
fimm th tíu manns
haft samband við
skrifstofuna tíl að
spyrjast fyrir um
stefnuna gegn
deCODEthað
fá að vera
með í að
sækja
kröfur,
Stefnan kom fr am í Bandaríkjun-
um í fyrradag og birtist þá á við-
skiptafréttavefjum þar.
Engin tilkynning hefur
borist frá deCODE.
Endurskoðand-
inn Vignir Rafn
Gíslason hjá
PriceWater-
houseCoopers
sagðist hvorki
geta né vhja tjá
sig um máhð.
Ekki náðist í
Kára Stefánsson.
kgb@dv.is
Kári Stefánsson Verður
stefnt fyrir bandaríska
dómstóla fyrir rangar og
villandi upplýsingar.
Reykjavíkurborg selur Bakkabræðrum Rauðakrosshúsið
Kaupa miðborgarvillu á 85 milljónir
Lýður og Ágúst Guðmundssynir Bræöurnir iBakkavör hafa keypt eitt viröulegasta húsiö
viö Reykjavikurtjörn.
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir eru að kaupa Tjarnar-
götu 35 fyrir 85 milljónir króna. Eign-
arhaldafélag þeirra, Meiður ehf., átti
hæsta thboð í húsið sem Reykjavík-
urborg auglýsti nýlega th sölu.
Borgarráð á enn eftir að staðfesta
söluna th Meiðs.
Rauði krossinn var í áratugi með
starfsemi í húsinu, meðal annars
einkarekna spítalann Sólheima sem
stofnaður var 1944. Var þeim rekstri
hætt á sjöunda áratugnum.
Tjarnargata 35 var byggð af Jóni
Laxdal kaupmanni og tónskáldi árið
1913 eftir teikningum Rögnvalds
Ólafssonar arkitekts. Útbygging var
reist við húsið 1918 og er það einlyft
steinhús á kjallara með rishæð ahs
425 fermetrar að grunnfleti.
Rauði Krossinn hafði húsið til
nota frá því um 1970 og rak þar
heimili fyrir vegalaus börn. Þar var
síðar neyðarathvarf fyrir börn sem
flýja þurftu heimhi sín og neyðar-
sími Rauða krossins var þar tíl húsa.
Léleg nýting á húsinu varð th
þess að Rauði krossinn hætti rekstri
hússins og þá ákvað borgin að setja
það á söluskrá og leitaði thboða.
Fjöldi thboða mun hafa borist í hús-
ið en engar kvaðir voru um nýtingu
þess af hálfu seljanda.
Skák af upprunalegri lóð hússins
hefur um árabil verið notuð sem
hluti af lóð Tjarnargötu 33 þar sem
Tjarnarborg er th húsa. Ekki er vitað
hvaða not Meiður hyggst hafa af
húsinu.
ijuríWall
StreetJournal
The Wah Street Journal fjahar
um um lundapysjutímann í Vest-
mannaeyjum í forsíðugrein undir
yfirskriftinni „In Iceland, Kids Go
Out at Night to Pick up Chicks".
Blaðakonan Ellen E. Shultz hitti
unga pysjueftirlitsmenn sem leita
að pysjum fram á nótt. Ellen lifði
sig inn í hugarheim barnanna í
Eyjum og skrifar myndrænar lýs-
ingar af upplifun sinni með Eyja-
bömum.