Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 9
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 9
Óbreyttur
fjöldi sækir
um húslán
íbúðalánasjóði bárust
að meðaltali 42 lánaum-
sóknir á dag á tímabilinu
23.-31. ágúst sem er sami
meðalfjöldi og í ágústmán-
uði öllum. Þetta er heldur
minni flöldi en í ágúst í
fyrra þegar innkomnar um-
sóknir voru að meðaltali 48
á dag. Tölur síðustu viku
eru einkum áhugaverðar í
því ljósi að í lok mánudags-
ins 23. ágúst kynntu bank-
arnir að þeir byðu verð-
tryggð íbúðalán á sambæri-
legum kjörum og fbúða-
lánasjóður. Greining ís-
landsbanka segir frá.
Flugvél
flutti sumar-
bústað
Twin Otter-flugvél
Flugfélags íslands á fsa-
firði hefur staðið í því síð-
an fyrir helgi að flytja
heilan sumarbústað
norður í Fljótavík. Verk-
inu er nú lokið og alls
voru flognar 13 ferðir en
vélin tók 1,5 tonn í hverri
ferð. Að sögn Þorláks
Ragnarssonar hjá flugfé-
laginu var um norskt ein-
ingarhús að ræða. 600
metra langur flugvöllur er
í Fljótavík sem dugði
ágætlega fyrir Otterinn
því vélin þarf ekki nema
um 300 metra flugbraut.
Rafmagn sló
út í Firðinum
Rafmagn fór af öllum
Hafnarfirði nú á ellefta tím-
anum í gær og liðu um 15
mínútur þangað til það kom
aftur á flestum stöðum. Þó
var rafmagnslaust í Þrastar-
ási fram yfir hádegið. Raf-
magnsleysið orsakaðist af
því að vinnuvél fór í há-
spennustreng milli Þrastar-
áss og Blikaáss. Enn er
straumlaust í Þrastarási en
samkvæmt upplýsingum frá
Hitaveitu Suðumesja verður
gert við þá bilun effir hádeg-
ið. Vf.is greindi frá.
Skírteini
fyrirspítt
Frá og með síðustu
mánaðamótum verður
krafist framvísunar lyfja-
skírteinis við afgreiðslu
örvandi lyfla. Lyfin sem
falla undir þennan lyfja-
flokk eru; Amfetamín,
Ritalin, Ritalin Uno,
Concerta og Modiodal.
Samkvæmt reglugerð
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins, sem
nýverið tók gildi, verður
greiðsluþátttaka Trygg-
ingastofriunar vegna
þessara lyfja háð framvís-
un lyfjash'rteinis. Læknir
þarf að sækja um á þar til
gerðu eyðublaði þar sem
fram kemur sjúkdóms-
greining og sjúkrasaga
viðkomandi sjúklings.
Garðyrkjustjóri sakar bæjarstjórn um skoðanakúgun
Skammaður fyrir að sverta ímynd Vestmannaeyja
Kristján Bjamason, garðyrkjustjóri
í Vestmannaeyjum, var í fýrradag
skammaður af bæjarstjóranum fyrir
að skrifa meiningu sína í fjölmiðlum
um ástand er varðar dýrahald í Eyjum.
Kristján hefur undanfarið verið í
miðri deilu milli þeirra er halda skepn-
ur í Eyjum og þeirra sem rækta upp
jarðveginn. Brögð hafa verið að því að
skepnumar éti upp græðlinga, hross
skemmi golfvöllinn og þau stofni flug-
öryggi í hættu með beit sinni við flug-
völlinn.
Einn tiltekinn hrossa- og sauðfjár-
bóndi, Gunnar Ámason, hefur verið
titlaður tómsfimdabóndinn í Lukku,
eða Don Kíkóti, auk þess sem kindur
hans hafa verið titlaðar linkindur í um-
ræðunni.
I tölvubréfi Kristjáns, sem birfist á
vefmiðlinum Eyjar.net, en þar hafa
umræðumar náð hæstu hæðum, segir
hann að Bergur Eh'as Ágústsson bæjar-
stjóri, Andrés Sigmundsson, varafor-
seti bæjarstjómar og þrír aðrir ráða-
menn hjá Vestmannaeyjabæ hafi kall-
að sig á fund í ráðhúsinu án skýringa.
Þar hafi verið setið yfir honum og hon-
um filkynnt að óánægja væri með
vinnubrögð hans, til dæmis að hann
væri sí og æ skrifandi í fjölmiðla, sér-
staklega um landnytja- og umhverfis-
mál. Ganga þessar skammir í berhögg
við yfirlýsingar meirihlutans í bæjar-
Kristján Bjarnason Garðyrkjustjór•
inn i Eyjum hefur Itrekað stungið nið-
urpenna og beint hárbeittri gagn-
rýni að hrossa- og sauðfjárbændum.
stjóm, V-listans, sem gagnrýndi
harkalega Sjálfstæðisflokkinn fyrir
skoðanakúgtm í aðdraganda síðustu
kosninga.
Tölvubréf Kristjáns var tekið af vef
Vestmannaeyjar Þekktar
fyrirpysjur ogpeyja, en ekki
má skemma imyndina með
gagnrýni á hross og kindur.
Eyja.net skömmu effir að það var birt.
„Ég held ég tjái mig ekkert um það
sem gerist á starfsmannafundum. En
ég held áfram ótrauður að tjá mína
skoðun um pólitíkina," segir garð-
yrkjustjórinn í Eyjum.
Föstudagskvöldid 24. september ö Broadway
„Langfyndnasti grin
dóvaldur d jördinni!1
- MTV
Midosola er i Skifunni,
Lougovegi, simi 525 5040.
Midoverdo odeins 2500 kr.
21DAGUR I SYNINGU!
WWW.Sulll