Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 10
J 0 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 Fréttir 0V Baltasar Kormákur er með allra duglegustu mönnum og einbeittur með afbrigðum. Hann hefur einstæða hæfi- leika í að koma sér í aðstöðu til að fá atorku sinni fullnægt. Ekkert virðist standa I vegi fyrir honum. Baltasar þykir dreifa kröft- um sínum ofmikið þannig að hann nái stundum ekki að sinna samverkafólki sínu og fyrirliggjandi verk- efnum sem skyldi. „Það er mjög gaman að vinna með Baltasar. Hann hefur gífurlega orku og virkjar hana vel. Mér finnst hann frábær leikstjóri þar sem hann nær að hafa góöa yf- irsýn og laöa fram það besta I leikhópnum og starfsliðinu hverju sinni en svo er hann llka mjög lunkinn á viðskiptasviö- inu.“ Agnes Johnsen, framkvæmdastjóri Sögn ehf. Blueeys production „Hann er duglegur og klárar það sem hann tekur sér fyrir hendur. Kemur miklu I verk. Hann er fljótur að læra og koma sér inn I hlutina. Hann hefur trú á sjálfum og þvl sem hann er aö gera." Þórir Snær, kvikmyndaframleiöandi Zik Zak og vinur Balta „Baltasar er frábær manneskja I alla staði. Góður vinur og inspír- erandi listamaður. Hann er skemmtilegur og fallegur líka. Það skemmir ekki fyrir. Eini gallinn við Balta er að það er svo mikiö að gera hjá honum að hann hefur ekki alltaftíma fyrir mann." Nína Dögg Filippusdóttir leikkona Baltasar Kormákur er fæddur árið 1966, stúdent frá Menntaskólanum I Reykjavlk. Hann ætlaði sér að verða dýralæknir en fór fyrir tilviljun I leiklistarskólann. Var ráð- inn í Þjóðleikhúsið strax að loknu prófi og sló í gegn sem kvikmyndaleikari í Vegg- fóðri. Þaðan hefur leiðin legið stöðugt upp á við og nú er hann helst þekktur fyrir kvikmyndaleikstjórn og athafnasemi. KEA gefur hjartastuð Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri, KEA, hefur fært sundlauginni í bænum sjálfvirkt hjartarafstuðtæki að gjöf. Tækið er af gerð- inni Acess Cardio Systems og er einfalt og handhægt. KEA, sem venjulega heldur sig við að selja landsmönn- um kjöt, hagnaðist um 130 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins. Algert að- sóknarmet hefur verið í sundlauginni það sem af er ári og fá starfsmenn þar þjálfun í notkun stuðtækis- ins næstu daga. Á fyrstu sjö mánuðum ársins hafa íslendingar flutt út meir af lyfjum en þeir fluttu til landsins. Útflutningurinn nemur 5,4 milljörðum króna en innflutningur 4,2 milljörðum króna. Jón Steindór Valdimarson hjá Samtökum iðnaðarins segir að útflutningur á lyfjum og lyfjatengdu hugviti skili verulegum gjaldeyristekjum. Islendingar selja meira af lyfjum en beir kaupa Allt útlit er fyrir að á þessu ári verði í fyrsta sinn flutt út meira af lyQum en flutt er inn þegar miðað er við verðmæti. Fyrstu sjö mánuði þessa árs voru flutt út lyf fyrir 5,4 milljarða króna en inn fyrir 4,2 milljarða. Munurinn er 1,2 milljarðar króna. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að íslendingar seldu meira aflyfjum én þeir keyptu. Jón Steindór Valdimarsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Samtaka iðn- aðarins, segir að útflutningur á lyfj- um og lyfjatengdu hugviti hafi skilað verulegum gjaldeyristekjum á síð- ustu árum. Stanslaus aukning Útflutningur lyfja hófst skömmu eftir 1990 og upp úr 1995 var hann orðinn 15 til 20% af innflutningnum. Árið 2000 tók útflutningurinn kipp og hefur vaxið nánast stanslaust síð- an og horfur eru á að hann vaxi enn frekar á næstunni. Lyf eru að verða með mikilvægari iðnaðarvörum sem íslendingar flytja út. Til samanburðar má geta þess að fyrstu sjö mánuði þessa árs voru fluttar út sjávarafúrðir fyrir 70,6 milljarða. Verðmæti lyfjanna er ná- lægt því að vera 7,6% af sjávarafurð- unum. Fyrirtækin í þessari grein eru ekki mjög mörg en tvö þeirra eiga aðild að SI, Actavis hf. og Lyfjaþróun ehf. Actavis fæst við lyfjaframleiðslu en Lyfjaþróun við þróun lyfjaforma. 450 starfsmenn Fram kemur hjá Jóni Steindóri að í þessum fyrirtækjum eru um 450 starfsmenn. Sá hópur skapar þjóð- arbúinu mikil verðmæti. Útflutn- ingsverðmæti lyija árið 2003 nam 5,1 milljarði króna en 4,4 milljörð- um króna árið 2002 og hækkaði því um tæp 16% milli ára. Fyrstu sjö mánuði ársins 2004 nam útflutning- urinn 5,4 milljörðum ára og stefnir því í enn meiri aukningu milli ára. „Nú er svo komið að árið 2004 verður verðmæti útfluttra lyfja trú- lega talsvert meira en innfluttra lyfla," segir Jón Steindór. „Innlendir lyfjaframleiðendur hafa ennfremur verið brautryðjendur í að lækka lyfjaverð, sem hefur komið neytend- um til góða.“ Lyfjahugvit Lyfjahugvit er orðinn snar þáttur í starfsemi fyrirtækjanna og bæði lyfin og hugvitið eru orðin mikilvæg útflutningsvara. Helstu verkefhi, sem unnið er að hjá Samtökum Iðnaðarins varðandi hagsmuni lyfjaiðnaðarins um þessar mundir, lúta annars vegar að breyt- ingum og lækkun á lyfjaeftirlitsgjaldi og hins vegar að breytingum á lög- um um einkaleyfi sem snerta framleiðendur sam- heitalyfja. Jón Steindór Útflutningur á lyfjum og lyfjatengdu hugviti hefurskilað verulegum gjaldeyr- istekjum á slðustu árum. „Innlendir lyfja- framleiðendur hafa ennfremur ♦ verið brautryðj- endur í að lækka lyfjaverð, sem hefur komið neyt- endum tilgóða." Deilt á klæðnað gesta við opnun Þjóð- minjasafnsins Ráðherra ekki með skotthúfu „Annað hvort nota konur upp- hlutinn allan eða ekki. Það er van- virðing við búninginn að nota að- eins hluta hans. Svona svipað og klippa íslenska þjóðfánann í búta,“ segir Ragnhildur H. Ingólfsdóttir húsfreyja í Eyrvík á Tjörnesi um klæðnað fjölmargra kvenna sem skreyttu sig á þjóðlegan hátt við opnun Þjóðminjasafnsins í fyrradag. „Ég sá að menntamálaráðherra var að vísu í bolnum, pilsinu og með svuntu og belti en skotthúfuna vant- aði og þá vantar mikið," segir hún. Ragnhildur segist hafa fylgst með opnun Þjóðminjasafnsins í sjón- varpinu og orðið urri og ó: „Ég sá ekki betur en sjálfur sýningarstjóri safnsins væri bara í bolnum og engu öðru af búningnum í bland við ann- an og nýtískulegri klæðnað. Þetta á ekki að líðast," segir RagnhOdur sem sjálf hefur saumað bæði peysuföt og upphluti sam- hliða því sem hún starfar við íslenskan heim- ilisiðnað hjá handverks- hópnum Kað- lín á Húsavík. Ekki náðist í mennta- j ' málaráðherra j vegna skott- húfunnar. Menntamálaráðherra í upp- hlutnum Ekki nóg að veral bol, pilsi og með svuntu og belti. Skotthúfan þarfað fylgja með. Goðsögn í lifanda lífi berst fyrir lífi sínu Líðan Péturs Kristjáns- sonar óbreytt „Mestu skiptir að halda í vonina," segir Magnús Kjartansson um líðan Péturs W. Kristjánssonar tónlistarmanns með meiru. Pétur sefur enn eftir alvarlegt hjartastopp og kransæðastíflu sem hann fékk fyrir viku. Magnús hefur fylgst grannt með gangi mála, er í nánu sambandi bæði við lækna og fjölskyldu Péturs. Magnús segir litaraft Péturs orðið eðlflegt og hjartað slái eðlUega. Þegar þetta er skrifað, síðdegis í gær, er þó fýrirliggjandi að brugðið getur til beggja vona. ÁfaUið var mUdð. Magnús og Pétur voru að vinna saman plötu með lögum Kims Larsen. Upptökur voru vel á veg komnar en Pétur átti þó eftir að syngja inn á nokkra grunna. Magnús segir að koma verði í ljós hvemig spUað verði úr því. Pétur er einn af hol- gervingum rokksins, þjóð- saga í lifanda lífi. VinsæU maður svo af ber eins og kom glögglega í ljós þegar Grafarvogskirkja troðfyUtist á dögunum með nánast engum fyrirvara við bæna- stund þar sem beðið var fyrir heUsu Péturs. DV sendir sem fyrr bestu kveðjur til Péturs, fjölskyldu hans og vina með ósk um góðan bata.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.