Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 24
Fókus DV
»>
aæunn Olafsdótt;
um fegurð
Saga fegurðarsar
Safnarinn Stebbi geit
Hendir aldrei nexnu
Bubbi fer
Bíómynd,
Barnabók
ábókamarkaðinn
breiðskífa og
fyrirjólin
ÖS&fo ■ p. Yiáí
|3r '.Ávæ
WÉWfM'MM
f
¥£#!$ : 1 ■'§&
Helgarblað DV -
springur út á morgun!
Afhommiin
aö hætti Gunnars
Saved
Leikstjóri: Brian Dannelly.
Aðalhlutverk: Jena Malone,
Mandy Moore og MacCaulay
Culkin.
★ ★^
Valur fór í bíó
Unglingamyndir eru yfirleitt
gerðar eftir mjög stífri formúlu.
Aðalpersónan er stúlka eða strák-
ur sem passar ekki alveg inn í stíft
stéttakerfi menntaskólans, er nið-
urlægð af gellunum/töffurunum,
fær uppreisn æru og fer heim með
fallegum strák eða stelpu sem
hann/hún átti ekki séns í áður. í
sumum af bestu unglingamynd-
um seinni ára er brugðið aðeins út
af rullunni. í hinni sænsku Fuck-
ing Aamal er aðalpersónan sam-
kynhneigð og gengur út af klósett-
inu ásamt skólabeibinu í lok
myndarinnar. í Election leikur
Matthew Broderick kennara sem
er lagður í einelti af aðalgellunni.
í Saved er sögusviðið hinsvegar
kristinn skóli, þar sem allt er öfugt
við það sem við eigum að kynnast
og vinsældir ráðast af því hver trúir
mest á Guð. Jena Malone leikur
Mary, sem fær að hanga með
helstu kristnu gellu skólans, og er á
föstu með einum sætasta strákn-
um. Allt fer hinsvegar fjandans til
þegar kauði kemst að því að hann
er hommi. Hún lætur hann sofa hjá
sér til að reyna að afhomma hann,
en það gengur ekki betur en svo að
hún verður ólétt og hann er rifinn í
burtu og sendur í afhommunar-
einkaskóla hjá einhverjum kollega
Gunnars í Krossinum, þar sem
hann finnur ástina með öðrum
nemanda. Smám saman býður
henni við ofsatrú vinkvenna sinna
sem vilja ekki leyfa neinum að vera
öðruvísi og eignast vinkonu í „villtu
stelpunni," gyðingastúlku leikinni
af Evu Amurri, dóttur stórleikkon-
unnar Susan Sarandon.
Umgjörðin er öll hin skemmti-
legasta og lýsir ágætlega þeim geð-
klofa átökum milli þarfa holds og
anda sem oftrúaðir þurfa að fást
við. Meira að segja kennarinn telur
að Guð sé að refsa sér fyrir sam-
band hans við einstæða móður.
Tónlistin er góð, popplög eins og
God only Knows eftir Brian Wilson
og Personal Jesus með Depeche
Mode sem fjalla á einn eða annan
hátt um Guðdóminn. Og aðalper-
sónan, Mary, er afar sympatísk per-
sóna. í einu af betri atriðum mynd-
arinnar veltir hún því fyrir sér hvort
María mey hafi sjálf verið að afsaka
eigin óléttu með sögunni um ein-
getnaðinn. Hún er svo fljót að bæta
því við að hún trúi því ekki að svo
sé. Manni finnst oft sem myndin
mætti ganga mun lengra, enda fátt
fyndnara en velheppnað guðlast,
eins og myndin Life of Brian ber
vitni um. En Saved tekst ekki að fela
hið kristna hjarta sitt.
Það er augljóst að aðstandendur
eru trúaðir, en trúa ekki með þeirri
ofsatrú sem sumir af löndum þeirra
líta á sem hina einu sönnu leið til G-
uðs. Eins og Mary segir undir lok
myndarinnar: „Ef Guð vill að við
séum öll eins, hvers vegna skapaði
hann okkur þá svona mismtm-
andi?" Sem er góður boðskapur í
sjálfu sér, en hefði getað verið betri
mynd. Saved er yfir meðallagi ung-
lingamynd, en er þó týpískari undir
lokin en maður hafði vonað. Töffar-
inn (sonur trúboða) er hrifinn af
hinni óléttu Mary frekar en beibinu
Mandy Moore, sem gengur á skjön
við allt sem við höfum hingað til
lært um töffara, nema þá að hann
reikni með að það sé auðveldara að
skora hjá henni en hjá kristna lið-
inu. Og allir sem eitthvað hafa gert
af sér sjá að sér og lofa yfirbót og
betri hegðun. Og maður fær ekki
séð af þessari mynd að MacCaulay
Culkin eigi mikla framtíð fyrir sér,
þrátt fyrir að hann leiki fadaðan
mann.
Valur Gunnarsson
Savcd Sæmilega heppnuö
kvikmynd aö mati 9a9".
rýnanda en margt hefð betur
mátt fara.„Maður fær ekki séð
, afþessari mynd að MacCautay
Culkin eigi mikla framtiðfyri
hrátt fvrir að hann leiki
f
. < 1 1
Ítt 1
Nýr veitingastaður íslandsvinarins Jamies Oliver
fær harða útreið í Harden’s London Restaurants
Jamie fær falleinkunn
Islandsvinurinn Jamie Oliver fær hriklega útreið f
nýjasta hefti tímaritsins Harden's London Restaurants
þar sem nýr veitingastaður sjómarpskokksins slkdta er
gagnrýndur. Staðurinn hefur fengið nafnið Fifteen en
gagnrýnendum blaðsins fannst ekki mikið til hans
koma og fékk hann þvi lægstu mögulegu einkunn i
blaöinu. Staðurinn er rekinn með það að markmiði að
koma ungum atvinnulausum Bretum inn á vinnu-
markaðinn og tilþess að vekja hjá þeim áhuga á mat-
argerð.„Þótt málefnið sé gott gefur það fólki ekki rétt
til þess að rukka svona upphæðir fyrir mat og þjón-
ustu," er meðal þess sem fram kemur i gagnrýninni.
Þar er mest sett út á verðið og þjónustuna en fyrir að-
alrétt er fólk að greiða þetta um 25 pund, eða um 3500
Jamie Oliver Færfall■
einkunn fyrir nýja stað
inn sinn en læturþað
litið á sig fá.
krónur. Með þessu segir gagnrýn-
andinn að Jamie sé að gera grin
að kúnnum staðarins. Talsmenn
Jamie segja gagnrýnina ekki alveg sann-
gjarna þarsem gagnrýnandinn hafi
mætt fyrirvaralaust
rétt þegar staðurinn ú
var að fara afstaö.
„Við fáum mikinn fjölda
þakkarbréfa í hverri viku þar sem fólk segir matinn frá
bæran og þakkar vel fyrir sig. Svo eru margir sem
panta borð aftur um leið og þeir hafa kláraö máltíð-
ina sína -svo ánægðir eru þeir með matinn og stað-
inn í heild sinni,“sögðu talsmenn Jamies.
I