Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 29
Iþróttafélagið «
HK opnar glæsileg
an strandblakvöll
við Fagralund í
Fossvogsdalnum
og ætla að halda
íslandsmót um
helgina.
mótið um helgina en segir að stelp-
urnar þurfi að fara að æfa sig í bún-
ingum sem standast alþjóðlegar
búningareglur hvað úr hverju,
enda sé stutt í smáþjóðaleikana
þar sem ísland verður með fulltrúa
í fyrsta skiptið næsta sumar.
Allt í góðu með bikiníið
„Ég mundi ekkert rífast yfir því
að þurfa að keppa í bikiní. Til að
keppa í strandblaki þarf maður að
vera í góðu líkamlegu formi og þá
hefur maður ekkert til að skamm-
ast sín fyrir. Þetta er kannski
vandamál fyrir þær sem eru mjög
feimnar."
Einar, formaður strandblaks-
sambandsins, segir að atvinnu-
menn í strandblaki hafi oft mikið
upp úr krafsinu og geti ferðast um
allan heim og til dæmis séu Norð-
menn búnir að koma sér í flokk
fremstu þjóða þrátt fyrir að veðrið
hjá þeim sé ekkert miklu betra en
hjá okkur. „Norðmenn eru reyndar
með innivelli og atvinnumenn í
faginu sem eru að keppa um allan
heim, en fyrst þeir geta þetta þá
ættum við að geta þetta líka. Við
þurfum bara að byrja strax af full-
um krafti."
íslandsmótið í strandblaki verð-
ur sem áður sagði á strandblakvell-
inum á útivistarsvæði HK í Fagra-
lundi í Fossvogsdalnum og hefst
klukkan 9 á laugardagsmorguninn
og stendur yfir til 17. Á sunnudag-
inn verður byrjað klukkan níu og
hefjast úrslitaleikimir klukkan 14.
rap@dv.is
áhorfendum um allan heim. Lífleg
tónlist og dansatriði í hléum gerðu
kappleikina að veislu fyrir augu og
eyru og vöktu búningar kvenlið-
anna mikla athygli.
Búningarnir mega, reglum sam-
kvæmt, ekki vera efnismeiri en
venjuleg bikiní eins og sást á ljós-
myndum frá ólympíuleikunum.
Strangar búningareglur
„Þær mega ekki vera í efnis-
meiri búningum en þetta.
Kvennablakið var ekki nógu vin-
sælt áður þannig að búningaregl-
unum var breytt. Stelpurnar em
svolítið fáklæddar en ég held að
þegar líða fer á leikinn hætti áhorf-
endurnir að pæla í kroppunum og
gleymi sér við að horfa á leikinn
því íþróttin er stórskemmtileg.
Það er líka skemmtilegra að horfa
á blak kvenna en karlablakið af
því að boltinn gengur meira,"
sagði Karen Björg Gunnarsdóttir,
blakkona úr KA sem ætlar að láta
boltann ganga um helgina í Kópa-
voginum. Karen segir að líklega
verði hún bara í hjólabuxum og
þröngum hlýrabol þetta skiptið
vegna veðurs.
Guðrún Ása Krisdeifsdóttir,
blakkona hjá HK, segir að þegar
hjólabuxumar hafi verið styttar
samkvæmt breyttum reglum í inn-
anhúsblakinu hafi hún ekki haft
neina ástæðu til að kvarta. „Þetta
er það sem mér finnst þægilegast
að vera í,“ segir Guðrún.
Hún segist ejcki vera viss um
hvort hún taki með sér bikiníið á
Fyrsti almennilegi strandblak-
völlurinn hefur verið opnaður á
framtíðarútivistarsvæði HK í Kópa-
vogi. Völlurinn er við Fagralund í
Fossvogsdal þar sem knattspyrnu-
lið félagsins spilar sína hebnaleiki.
lið búin að skrá sig," sagði Einar
Sigurðsson, formaður strandblaks-
sambands íslands.
Vinsælt á ÓL
„Ég hef sjálfur spilað í Dan-
mörku í rigningu og roki og það er
alveg hægt. Rigningin er allt í lagi
en rokið getur gert leikinn svolítið
erfiðan. Það er búið að byggja nýtt
þjónustuhús þama á svæðinu með
sturtum og öllu þannig að þetta
verður frábært næsta sumar."
Reglurnar í strandblaki em
svipaðar og í innanhúsblaki nema
hvað þær eru talsvert einfaldari.
Það em aðeins tveir í hverju liði og
völlurinn er 8 x 8 metrar (venjuleg-
ur blakvöllur er 9 x 9).
íþróttin vakti gríðarlega athygli
á ólympíuleikunum í Aþenu og var
ein vinsælasta íþróttin hvað varðar
sjónvarpsáhorf enda er fþróttin
hröð og skemmtileg og vakti
klæðaburður og hressilegt atgervi
íþróttamannanna mikla lukku hjá
k Ry 1 íPi 1 \ ríTiTn mi S p p ]
í iT f [í I . 9 Jj I L 1 1 |r “ 1 mnM f í Bh* 1 1 1 = í 1 s LJU1' I í Fi u p E L
lr. V ■ i 1 M
Stjörnuspá
Guðmundur Benediktsson knattspyrnu-
maður er þrítugur í dag. „Fyrir mannin-
um er ávallt til ein rétt leið.
Hann ætti að tileinka sér
kað opna hjarta sitt og
Ftjá tilfinningar sínar í
fsama mæli og hug-
myndir sínar. Honum er
^einnig ráðlagt að reyna
[meðvitað að vera í nánari
Ltengslum við hjartastöðv-
ar sínar," segir í
stjörnuspá hans.
Guðmundur Benediktsson
VV Vatnsberinn (20.jan.-K. m)
VY ---------------------------------
Gleymdu ekki eigin hag næstu
misseri ef þú ert fædd(ur) undir stjörnu
vatnsberans. Þú ert fær um að leiða hjá
þér það sem þér mislíkar og þar af leið-
andi kemstu auðveldlega í gegnum smá-
vægilegt mótlæti sem verður á vegi þín-
um jafnvel og mundu að minni mótstaða
veitir meiri árangur.
w Fiskarnir (19. febr.-20. mars)
J * Gleymdu ekki viðhorfi þínu til ást-
arinnar og tilfinningum þínum sem þú mátt
eigi gleyma að hlúa að daglega. Annars
kemur fram að fyrirboði skemmtilegra daga
er framundan þegar stjarna þín er skoðuð.
T
Hrúturinn (2Lmars-19.apríl)
Tákn hamingju og langlífis birt-
ist hér þegar stjarna hrútsins er skoðuð.
Vandamálum fækkar og gæfan fer að snú-
ast þér í hag. Gættu þess að dæma ekki
aðra að ósekju og hugaðu fyrst og fremst
að eigin málum næstu vikur og mánuði.
NaUtÍ §(20.aprH-20.maD
Ö
n
Einn daginn virðist allt í kringum
þig fara í þann farveg sem þú hefur ávallt
óskað eftir. Ef þú vinnur með hjarta þínu,
huga og vilja að verkefni sem tengist
námi/starfi þínu verður þú fær um að
breyta hverjum ásetningi yfir í veruleika
fyrr en síðar.
Tvíburarnire/. mal-21.]úal)
Dagurinn í dag er tilvalinn til að
huga að eigin tilfinningum kæri tvíburi og
hér er einnig komið inn á að þú þarft að
læra að forgangsraða málum þínum þegar
kemur að vali milli vinnustaðar og heima-
haga þinna.
Krabbinn(22./ún(-2Zjii;o
Eitthvað hræðir þig sem tengist
fortíðinni. Nú er kominn tími til að læra af
því sem þú hefur þurft að upplifa. Notfærðu
þér það sem vekur upp neikvæðar minn-
ingar og upplifðu lífið á jákvæðan hátt.
%
Ljónið (23.júlí-22. ágúst)
T15
Frami þinn virðist taka miklum
breytingum fyrr en siðar. Spenna, metnað-
ur og dugnaður einkennir þig. Hugmyndir
þínar leiða þig beina leið til árangurs. Þú
virðist vera að taka næsta skref tengt
þroska þínum. Undirmeðvitund þín virðist
sjá um að koma því í verk.
Meyjan (21 ágúst-22.sept.)
Þegar þú telur þig vera reiðubú-
in/n að takast á við tækifærið með opnum
huga þá mun svarið koma af sjálfu sér.
Slíkt telst oft á tíðum vera heppni og það
á núna við þig kæra meyja. Þú getur
nefnilega nýtt þér hina tæru vitund sem
býr innra með þér ef þú kærir þig um.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Hér birtist þú áhyggjufull/ur,
óörugg/ur og gröm/gramur en af einu
hefur þú feykinóg þessa dagana og það er
stíll. En þú verður að átta þig á háttvlsi
þinni kæra vog til að nota hana á upp-
byggilegan hátt.
ni
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v.)
Sporðdrekinn tilheyrir áttunda
stjörnumerkinu og er því stöðugt vatn.
Stöðugi hlutinn er áberandi um þessar
mundir í fari þínu en vatnið gefur þér
áráttugirni þessa dagana sér í lagi þannig
að þér er ráðlagt að huga vel að innsæi
þínu og ekki síður dulsæi sem er vissulega
styrkur þinn.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Oftar en ella birtist breyting hjá
stjörnu bogmanns en þessar breytingar
eru eflaust átakanlegar fyrir þig persónu-
lega en eftir því sem tíminn líður munt þú
líta til baka með gleði (hjarta.
Steingeitin (22. des.-19.jan.)
'-T Reynsla þín er til að þú lærir
kæra steingeit og þegar ekkert virðist
ganga upp og allt virðist jafnvel öfugsnúið
ættir þú að muna að góðir hlutir gerast
alltaf hægt. Það er viðeigandi að þú hugir
að jákvæðum eiginleikum þínum núna.
SPÁMAÐUR.IS ^
V