Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Page 2
2 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004
Fyrst og fremst DV
' Skín
og skúrir á
valdaferli
V Davíðs a
Efni
é/u//a t/
iSuww-
< I &úAunrw
I j 'ZnZœ/^ cuf
Xfítu/oUto-
f brönc/u/HW-
»»(Wi
3233
rræg í 15
mínútur
LeóLöve
Sævar Pétursson hefur í mörg ár unnið við að gera fyrsta forsetabílinn upp,
Packard Sveins Björnssonar frá 1942. Það hefur kostað milljónir og nú situr hann
uppi með bílinn - og kostnaðinn.
Packard V8 Fyrsli
forsetabíllinn a hrakhólum
Sölvi með skeiðina
praktísku Hann skilur ekki í
Lýöheilsustofnun aö banna
ekki litrlkar augiýsingar á kóti■
iettum og svínabógum þegar
fyrir liggur aö ofát leggur ár-
lega 300 Islendinga að velli.
„Ég stflaði upp á að fá kostnaðinn
endurgreiddan. Þetta eru mikil von-
brigði," segir Sævar Pétursson, bfla-
málari og réttingameistari og for-
maður Fornbflaklúbbsins að auki.
Sævar hefur nú lokið við að endur-
gera Packard V8-bifreið Sveins
Bjömssonar, fyrsta forseta lýðveldis-
ins, en bfllinn var gegnumryðgað
hrúgald ( eigu Þjóðminjasafnsins
þegar Sævar fékk hann í hendur.
„Það var fyrir tilstilli forsetaemb-
ættisins sem ég hófst handa og það
hefur styrkt mig að hluta. En þetta er
búið að taka mig fjögur til fimm ár
og nú verður einhver að innleysa
bflinn. Ég hélt að þetta ætti að verða
viðhafnarbfll forsetaembættisins,"
segir Sævar sem ekki vill gefa upp
hvað viðgerðin á fyrsta forsetabfln-
um hefur kostað: „Þetta er komið
upp í verð á mjög góðum bfl," segir
hann en allir vita að „mjög góður
bfll“ kostar 7-8 milljónir króna.
Lítill áhugi mun vera hjá forseta-
embættinu á bflnum þó að hann sé
orðinn hinn glæsilegasti:
„Þetta snýst ekki um hvort við vilj-
um bflinn eða ekki. Þjóðminjasafnið
á bflinn og þar verða menn að svara
fyrir þetta. Forsetaembættið kom
aðeins
að standsetningu bflsins í samvinnu
við Bflgreinasambandið," segir
Stefán L. Stefánsson forsetaritari.
Og úr Þjóðminjasafninu er svar-
að fullum hálsi:
„Viðgerðin á bflnum var alfarið á
vegum
forsetaembættisins og Bflgreina-
sambandsins. Það á aðeins eftir að
ákveða hvar bflhnn verður varð-
veittur," segir Margrét Hallgríms-
dóttir þjóðminjavörður sem í sjálfu
sér er tflbúin til að láta forsetanum
bflinn eftir. En reikninginn ætlar
hún ekki að greiða eðli málsins
samkvæmt.
Eftir situr Sævar Pétursson með
sárt ennið. Kostnaðurinn er farinn
að síga í í buddunni hjá honum og
ljóst að eitthvað verður að gerast.
Packardinn er orðinn hreinasta
augnayndi og myndi sóma sér
hvort sem væri sem forsetabfll á ís-
lenskum vegi eða á palli í nýju Þjóð-
minjasafni. Hann gengur eins og
klukka „ ...á 95 oktana bensíni",
segir Sævar sem er farinn að fhuga
þann möguleika að selja fyrsta for-
setabfl þjóðarinnar á frjálsum
markaði. En það þykir honum
verra.
Svona var hann
tyn' fimm áruni.
Ooyttdraslleigu
'jóöminjasafnsins
Forsetabíllinn
hreinn og klár Eins
og nýr úr kassanum
eftir meðhöndlun hjá
Sævari Péturssyni.
Hann gengur
eins og klukka
r,...á 95 oktana bensíni
Skeiðin skrýtna hans Sölva í Björk
„Þetta er þarfaþing fýrir þá sem eiga ekki of
mikið af mat og vflja láta súpuna sína endast,"
segir Sölvi Óskarsson verslunarmaður og eig-
andi tóbaksbúðarinnar Bjarkar. Þá merku búð
hefur Sölvi rekið í tuttugu ár. Hann var beðinn
um að taka til einhvern fágætan, sérstakan hlut
sem væri falur í hans búð og sýna lesendum
DV. Þar sem kennir svo margra grasa. Sölvi hef-
ur verið með margvíslegan varning og ætlaði
reyndar að draga fram úr pússi sínu vasapela
Fágætið í búðinni
sem var lflct og stigið hefði verið á hann miðjan.
„Sá var hugsaður fyrir þá sem eru hættir að
drekka. En þeir eru löngu uppseldir," segir
Sölvi sem bíður nú haustskipa tfl að fylla hill-
urnar fýrir jólin. En aftur að skeiðinni.
Sölvi heldur sig algerlega fast við þá hug-
mynd að skeiðarnar séu ætlaðar þeim þar sem
þröngt er í búi. Þetta eru skeiðar sem danskur
hönnuður hannaði og eru tfl þess gerðar að láta
súpuna endast. Þær kosta um sex tfl sjö hund-
ruð krónur. „Þetta drýgir svo súpuna, sjáðu til.
Og gott ef menn eru stöðugt að heimta meira á
diskinn. Ég á lítinn lager af þessu því þetta
hefur gengið svo vel út,“ segir Sölvi
og upplýsir að hingað tfl hafi hann
ekki viljað fara hátt með þetta því
þetta geti verið viökvæmt á sumum
heimflum.
Sölvi hefur lengi eldað grátt silfur
við Þorgrím Þráinsson og Tóbaks-
trölliö. Ekki er spjallað við Sölva án
þess að það beri á góma.
„Ég verð ósköp lítið var við þetta
núna. En fólk þarf að halda starfinu,
tóbaksvamaneftidirnar verða að halda
fundi á fundi ofan og svo samráðsfundi
og senda frá sér ályktanir. Tóbaks-
varnanefndir em í öllum landsfjórð-
ungum til að vakta mannskapinn. Ég
heyrði í útvarpinu fyrir þremur vikum
landlækni tala um offituvandamál sem
leggur 300 íslendinga að velli á ári hverju
miðað við 330 sem eiga að hafa fallið fyr-
ir tóbaki. Þegar þú flettir blaði í dag sérðu
auglýsingar með því sem á að fara á grillið
og í ofninn: löðrandi kótilettur og svína-
bógar. Ég skfl ég ekki í þessu nýja ráði.
Lýðheilsustofnun að láta ekki banna þess-
ar auglýsingar?"
jakobépdv.is