Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Qupperneq 15
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2004 15
síður sveið skipbrotsmönnum sárt að
sjá herskipið fjarlaegjast, ekki síst
vegna þess að björgunarbátur hékk
til reiðu út af skipshliðinni og það
hefði ekki kostað mikla töf að setja
hann útbyrðis.
Flekana rak hratt burt
Síðar sögðu yfirmenn Northern
Reward að þeir hefðu gefið öðru
fylgdarskipi, Honningsvaag, merki
um að hefja björgunaraðgerðir en
þau skilaboð virðast þá ekki hafa
komist til skila. Að minnsta kosti
hófst Honningsvaag nú handa við að
eltast við kafbátinn rétt eins og
Northen Reward. Varkárni skipstjór-
ans á Northem Reward sýnist enn
réttlætanlegri í ljósi þess að þegar
vart varð við atburði þessa í landi ösl-
aði vopnaður breskur togari á snær-
um flotans einnig af stað til að leita
kafbátsins og hann sneri aldrei fram-
ar tii hafnar.
Þegar Goðafoss sökk losnuðu
nokkrir björgunarflekar af skipinu. Á
einn þeirra komust 13 manns, sex á
annan og á þann þriðja tveir menn. Á
íjórða flekkann komst aðeins einn
maður. Flekana rak hratt burt ffá
brakinu í sjónum og björgunarbátn-
um og því tókst þeim sem á flekun-
um vom ekki að bjarga þeim sem þar
reyndu enn að halda sér á floti.
Hjálpin var banvæn
Eftir tveggja og hálfrar stundar
árangurslausan eltingaleik við U-
300 gáfust Northern Reward og
Honningsvaag loks upp og snem sér
að því að finna skipbrotsmennina.
Flestum af flekunum var bjargað um
borð í Northen Reward sem síðan
fór að leita að björgunarbátnum.
Þegar hann fannst loks vom enn
nokkrir menn á kili hans en þeir
vom allir látnir nema einn sem hafði
þraukað og var með lífsmarki.
Sjóliðar af Northern Reward
stukku niður á kjöl björgunarbátsins
og losuðu manninn. Síðan ætíuðu
þeir að lyfta honum um borð í her-
skipið en misstu hann í sjóinn. Og
eftir alla þessa hrakninga hafði mað-
urinn ekki þrek til að halda sér einn
á floti og sökk umsvifalaust. Þegar
hann hélt að hjálpin væri loksins
komin.
Með Goðafossi fómst 15 úr áhöfn
og auk þess tíu farþegar, þar á með-
al öll læknisfjölskyldan. Auk þess
fómst 17 af þeim 19 skipbrotsmönn-
um sem Goðafoss hafði bjargað af
áhöfn olíuskipsins. Alls lém því 42
lífið en 21 var bjargað, þar af 17 úr
áhöfninni, tveimur farþegum og
tveimur af olíuskipinu.
Lík litlu bræðranna rak á land
Aðeins þrír vom bomir til moldar
af þeim fslendingum sem fómst með
Goðafossi.
Eyjólfur Eðvaldsson loftskeyta-
maður hafði verið á einum flekanna
en lést af vosbúð eftir að honum var
bjargað um borð í Northem Reward.
Hann var jarðaður þegar í land
var komið.
Nokkm síðar vom
svo tvö önnur fórn-
arlömb þessarar
grimmilegu árás-
ar borin til graf-
ar. Það vom
litíu bræðumir
Óli og Sverrir
Friðgeirssynir.
Lík þeirra
fundust rek-
in á
Snæfells-
nesi.
Jón Ársæll Vinnur að gerð
heimildarmyndar um Goðafoss
án allra styrkja enda hafa hann
og félagar hans tröllatrú á þess-
um dramatískasta atburði I
sögu þjóðarinnar á síðustu öld.
Goðafoss Eitt helsta fley Eimskipafélagsins og Islendinga allra.
„Þama varð mesta mannfall íslend-
inga í síðari heimsstyrjöldinni, “ segir
sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðar-
son sem vinnur að gerð heimildar-
myndar um Goðafoss sem skotinn var í
kaf af þýskum kafbáti í lok síðari heims-
styrjaldarinnar. Flaidö af Goöafossi hef-
ur aldrei fundist þrátt fýrir að staðsem-
ing skipsins hafi veriö nokkuð skýr þeg-
ar það var skotið niður í Faxaflóanum.
Jón Ársæll vinnur myndina í sam-
vixmu við Bjöm Br. Bjömsson kvik-
myndagerðarmann og Þór Whitehead
sagnfcæðing:
„Við erum þegar búnir að ná viðtöl-
um við alla þá sem lifðu slysið af svo og
alla áhöfn þýska kafbátsins sem þama
var að verki," segir Jón Ársæll en Goða-
foss var skotínn niöur 10. nóvember
1944. „Flak skipsins hefur gengið kaup-
um og sölum á þeim sextíu árum sem
liðin em frá atburðinum en vitað er að
mikið magn af viskfi var f skipinu svo og
dýrmætír koparvírar sem nota áttí í
virkjanir hér á landi."
Meðal eigenda flaksins af Goðafossi f
dag er Tómas Knútsson kafari og
slökkviliðsmaður í Keflavík. Hann hefur
kafeð víða í Faxaflóanum í leit að skip-
inu en er þöguil sem gröfin þegar hann
er spuröur hvort skipið sé fundið: „No
comment," segir hann.
Þeir sem til þekkja halda því fram að
Tómas hafi þegar fundið skipið og hafl
klappað skrokknum á miklu dýpi: „Ég
segi frá því sem ég veit í fyllingu tím-
ans," segir hann dularfullur.
Jón Ársæll og félagar hans vinna að
gerð myndarinnar á eigin vegum og
njóta engra styrkja. Þeir hafa tröllatrú á
viðfangsefrúnu en atburðurinn sem
varð þegar Goðafoss var skotinn í kaf er
einhver sá dramatískasti í íslandssögu
síðustu aldar.
HP og DELL 17" skjáir á 6.000 kr
Allir aðrir 17" skjáir á 5.000 kr
*> d
'
Tölvur frá 3.000 kr. - 12.000 kr.
(án Harddisk og minnis)
TOLVULAGERINN ER STAÐSETTUR
NÝBÝLAVEGI 18 (dalsbrekkumegiim)
- , . .
Margar tegundir af prent
Opið laugardag og sunnuda
og mýs
frá 12:00 - 19:00
A60-S1561 TOSH,BA
P4 - 2.8GHz c
256MB DDR r
40GB Diskur
15" skjár
DVD/CD-RW'
Taska fylgir
159.900 kr. stgr.
Compaq 3080us
P4 - 2.4GHz 533
512MB DDR minni
40GB diskur
16" skjár
DVD/CD-RW
Taska fylgir
179.900 kr. stgr.
A75-S206 toshiba
P4-M-2.8GHz 533
512MB DDR minni
60GB Diskur
15.4 Wide skjár
DVD/CD-RW
Taska fyigir
199.900 kr. stgr.
P25-S509 TOSHIBA
P4 2.8GHz 800
512MB DDR minni
80GB diskur
17" wide skjár
DVD±RW
Taska fylgir
229.900 kr. stgr.
Allar vörurnar eru notaðar vörur NEMA FARTÖLVURNAR.
Birt með fyrirvara um prentvillur