Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Side 22
22 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
Leó Löve lætur ekki deigan síga
þótt hann hafi greinst með MS-
sjúkdóminn fyrir fimm árum. Hann
sækir um starf hæstaréttardómara í
hörðum slag við aðra og telur sig
reyndar hafa ýmsa kosti fram yfir
aðra umsækjendur þó fatlaður sé.
Þó ekki væri nema það að Leó hefur
um árabil rekið fyrirtæki og stjórn-
að fjölda manns við vinnu. Það tel-
ur hann hljóta að vera kost á hæsta-
réttardómara. Svo var hann að
ljúka við að skrifa leikrit. Það fjallar
um vináttu og gamlar glæður í sam-
skiptum kynjanna.
Lítil dóttir
Leó Löve var nýbúinn að eignast
litla dóttur í öðru hjónabandi sínu
og var í raun að hefja nýtt líf þegar
hann greindist með ólæknandi
sjúkdóm, MS, sem enginn hefur
ráðið við til þessa og lækning á
huldu hvert sem litið er. Eiginkon-
an heitir Anna Lísa Kristjánsdóttir
og dóttirin Anna Margrét. Hún var
að byrja í grunnskóla.
MS eru slæmar fréttir?
„Ég brást við eins og tilefni var
til. Vonaði bara að þetta yrði hæg-
fara og mér eins lítil hindrun og
orðið gæti. Að vissu leyti hefur það
gengið eftir,“ segir Leó sem gengur
við staf og hefur hjólastól við hönd-
ina þegar fara þarf í lengri ferðir.
Hvaö sagði konan?
„Hún tók þessu af æðruleysi eins
og aðrir. Fólk verður að taka því
sem að höndum ber og vinna með
það og úr því eins og hægt er. Litla
dóttir mín var ómálga þegar ég fékk
úrskurðinn en núna býðst hún
alltaf til að leiða pabba sinn því
hann sé svo stirður."
Svo stirður...
Hvað er verst?
„Það er hreyfmgin og allt sem
henni tengist. Ég er svo stirður að ég
get ekkert hlaupið og verð að ganga
við staf. Það er eins og stýrikerfi
líkamans hafi farið úr skorðum og
jafnvægið að hluta til með. Það er
verst. Auðvitað væri gaman að vera í
betra líkamlegu formi þegar maður
er með lítið barn að leika við. Ég get
það ekki sem skyldi en á móti kemur
að ég les fyrir hana á hverju kvöldi
þangað til hún sofnar."
Og ferðast ekki mikið?
„Eg var búinn að ferðast svo
mikið þegar ég varð veikur að ég er
búinn að fá minn skammt. Við
hjónin fórum gjarnan til Ítalíu og
hjóluðum þar um allt svo vikum
sldpti. En nú hjóla ég ekki lengur.
Hvorki á Ítalíu eða hér heima. En ég
keyri bíl.“
Hugsarþú um dauðann?
„Nei. Mér er sagt að þessi sjúk-
dómur hafi ekki áhrif á langlífi. Allt
snýst um að hamla þróun hans og
það reyni ég eftir bestu getu. Það er
oft sagt að MS-sjúkdómurinn sé
með þúsund andlit. Kannski var ég
heppinn hvað hann kom seint. Ég er
ekki verri en það að ég er búinn að
flytja fjögur mál í Hæstarétti í ár.“
Fannstu aldrei fyrir neinu á
yngri árum sem benti til þess að þú
fengirMS?
„Eftir á að hyggja kemur ýmis-
legt upp í kollinn. Þegar ég var
strákur í Hagaskóla fann ég einu
sinni eitthvað í munninum sem
gæti hafa verið strekkt taug.
Nokkrum árum síðar tók ég eftir því
að ég varð innskeifur tímabundið
og það gæti tengst stýrikerfi líkam-
ans. En allt kom þetta og fór þang-
að til ég var loks greindur með sjúk-
dóminn. En þetta hefur ekki farið
upp í höfuðið á mér og fer yfirleitt
ekki þangað. Ég hef þó beðið börn-
in mín um að láta mig vita taki þau
eftir einhverju slíku."
Þetta er pest
Og Leó getur leitað til barnanna
sinna af fýrra hjónabandi með
Eygló Guðmundsdóttur. Með henni
á hann þrjú börn og eru tvö þeirra
læknar, Yrsa Björt og Áskell Yngvi.
Guðmundur er svo rekstrarhag-
fræðingur.
„Börnin mín sem eru læknar eru
alltaf með augun opin fyrir því sem
gæti komið mér að gagni. Menn eru
alltaf að segja að lækningin sé á
næsta leiti en ég hef ekki séð hana
enn. Dóttir mín hefur látið mig taka
ýmis lyf sem talið er að hægt geti á
sjúkdómnum þó ekki sé það vitað
með vissu. Þá blanda ég túrmerik,
sem er karrýblanda, og tek inn dag-
lega. Ég er lánsamur að eiga lækna
að og ég hlýði börnunum mínum
eins og ég vildi að þau hlýddu mér.
En ég kalla sjúkdóminn pest. Þetta
er bölvuð pest."
Nóg af peningum
Fjárhagurinn?
„Ég á sem betur fer nóg af pen-
ingum og hef ekkert með meira að
gera. Ég rek og ber ábyrgð á
fasteignasölunni Eignaumboðið og
fer þangað til vinnu á hverjum degi
þó aðrir sjái þar um daglegt streð.
Umsókn mín um embætti hæsta-
réttardómara tengist því ekki á
nokkurn hátt lífsafkomu
minni. Frekar að ég sé að
sækja um í nafni ögrunar og
fullnægingar sjálfsins.“
Leó Löve kom mörgum á
óvart fyrir nokkrum árum
þegar hann sendi frá sér saka-
málasögu sem þótti nýmæli
þá. Það var ekki til siðs að lög-
fræðingar væru að skrifa
reyfara. Og Leó er ekki hættur:
Þetta er bara svona ...
„Núna um daginn var ég að
setja lokapunktinn við nýtt
leikrit sem ég vona að verði
sýnt annað hvort á sviði eða í
útvarpi. Það ljallar um full-
orðið fólk, um sjötugt,
æskuvini sem hafa gengið
sitt hvorn lífsveginn og fer
svo að tala saman í ellinni.
Þetta fer allt fram í gegn-
um síma og fyrir hlé ræða
konan og maðurinn um
líf sitt eins og það hefur
verið. Eftir hlé taka þau
svo á því hvernig lífið
hefði getað orðið. Ég
kalla leikritið Glæður
því þarna er verið að
blása glæður í gamalt
h'f. Kannski dálítið
eins og ég verð að
gera núna þegar allt
er orðið annað en
var. En ég segi nú
bara eins og
tengdafaðir minn:
Þetta er bara
svona!"
Nú er Leó
Löve 56 ára. Allt
of snemmt fyrir
ljónið að leggj-
ast niður þótt
lífsgangan sé
orðin önnur og
erfiðari en
hann gerði
ráð fyrir. En
svona er
þetta bara.
Hann segir
það sjálfur.
n Þegar m
í I égvar Wm
strákur í
Hagaskóla
fann ég einu
sinni eitthvað í
munninum sem
gæti hafa verið
strekkt taug.
Nokkrum árum
síðar tók ég eftir
þvi að ég varð
r innskeifur tíma-
bundið og það gæti
tengst stýrikerfi lík-
amans. En a/lt kom
þetta og fórþangað
til ég var loks greindur
með sjúkdóminn. En
þetta hefur ekki farið
upp íhöfuðið á mér...
Leó Löve lögfræðingur var upp á sitt besta og hafði stokkað upp líf sitt til hins betra, tilbúinn í seinni
hálfleik með allt á hreinu. Þá greindist hann með MS-sjúkdóminn sem setti strik i reikninginn svo um
munaði. En hann ætlar ekki að gefast upp heldur sækir óhikað um embætti hæstaréttardómara með
vottorð frá lækni um að hann geti vel sinnt starfinu treysti hann sér til þess
sjálfur. Og það gerir hann.
Ljónið
sem neitar
að legnjast
Leó Löve
Lifið heldur áfram og hann
vill í Hæstarétt í nafni ögrun-
ar og fullnægingar sjálfsins.
:*■*’»*«»*.'