Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Page 4
Fréttir DV
4 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004
-------I-------------------------
Fastagestir í morgunsundi í Árbæjarlauginni eru að yfirliði komnir út af áburði
sem einn gestanna ber á sig í búningsklefanum. Gesturinn telur áburðinn allra
meina bót en eigandi Áburðarverksmiðjunnar þolir ekki lyktina og lét af því vita
svo eftir var tekið.
Bíll flaug
í Hljóm-
skálagarð
Um hádegisbilið í gær
lentu tveir bílar í hörðum
árekstri á mótum Braga-
götu og Fjólugötu. Enginn
slys urðu á fólki í árekstrin-
um en bílarnir eru að sögn
lögreglu mikið skemmdir.
Áreksturinn var nokkuð
harður og hafnaði annar
bíllinn inni í Hljómskála-
garðinum eftir að bílarnir
skullu saman. Lögregla
brýnir fyrir ökumönnum að
sýna aðgæslu í umferðinni
meðan hált er og haga
akstri eftir aðstæðum.
Hóiolía veldur átökum
í ntiklefa í Arbæ
Heilablæðing
af völdum
Scotts
Danski hermaðurinn,
Flemming Tolstrup, sem
fótboltastjarnan Scott
Ramsay kýldi á skemmti-
staðnum TrafEc í Keflavík,
lést af völdum heilablæð-
ingar. Þetta er bráðabirgða-
niðurstaða krufningar á líki
Flemmings og kemur fram
í tilkynningu frá lögregl-
unni í Keflavík. Þar segir
einnig að heilablæðingin sé
afleiðing hnefhöggs sem
kom efst á háls Danans -
við hægra kjálkaborð. Ætt-
ingjar Flemmings komu til
landsins í gær til að flytja
lík hans heim.
Undrun yfir
lausagöngu
Sú ákvörðun Sýslu-
mannsins í Keflavík að
krefjast ekki gæsluvarð-
halds yfir Scott Ramsay
sem játaði að hafa banað
dönskum liðsforingja
um síðustu helgi hefur
vakið mikla athygli.
Rannsóknarlögreglu-
menn á höfuðborgar-
svæðinu sem DV hefur
rætt við segja það algert
einsdæmi að maður sem
gerst hafi sekur um slíka
árás gangi laus strax að
henni lokinni. Venjan sé
sú að óskað sé eftir
gæsluvarðhaldi þar til
dómur falli enda megi
eiga von á löngum fang-
elsisdómi.
_
Háreysti og jafnvel átök hafa einkennt andrúmsloftið í útiklef-
anum íÁrbæjarlauginni þar sem einn fastagestanna hefur verið
að bera á sig olíu sem er svo illa þefjandi að öðrum gestum
liggur við uppköstum.
Maðurinn sem hér um ræðir, Ás-
geir Ásgeirsson, staðhæfir að hann
beri á sig áburð sem ætlaður er
hrossum með húðexem, á erlendri
grundu, en eigandi Áburðarverk-
smiðjunnar, Haraldur Haraldsson,
er á öðru máli. Lét hann slag standa
fyrir skemmstu og sparkaði í mann-
inn. Reyndar óvart:
Óvart
„Ég ætlaði að sparka í brúsann en
karlinn er svo feitur að fóturinn á
honum varð fyrir. Ég vona að hann
hætti að koma í laugina með þennan
óþverra því þetta er ekkert annað en
hófolía og lyktin er svo ógurleg að
ekki verður við unað,“ segir Haraldur
sem kærir sig kollóttann um til
hvaða gagnaðgerða hófolíumaður-
inn grípur. Mestu skipti að hann láti
ekki sjá sig í lauginni með hófohuna.
Veit allt um áburð
„Sem betur fer ber hann hófoh-
una á sig eftir að hann hefur verið í
sundi en lyktin af þessu er þvílík að
vart verður með orðum lýst. Þetta er
ógeðslegt,“ segir Haraldur sem veit
meira en flestir um hvers konar
áburð sem eigandi Áburðarverk-
smiðjunnar um árabil: „Ég er einnig
með hesta og þekki þá lykt alla. En
hófolíu ætti engin að bera á sig og þá
sérstaklega ekki í sundlaug þar sem
ferskleikinn á að vera í fyrirrúmi. Það
er ótækt að ætlast til þess af mönn-
um að þeir hefji nýjan dag með
þennan óþverra í nösunum. Hófolíu
ætti engin maður að bera á sig nema
þá í einrúmi heima hjá sér. Ekki í
sundlaugum þar sem menn eru að
þrífa sig og hressa," segir Haraldur
Haraldsson íÁburðarverksmiðjunni.
ferð. Þó mætti ef til vill íhuga þann
kost að banna hófohu alfarið í laug-
inni. Líta mætti svo á að ef til vill ætti
hún ekki þar heima.
Ekki náðist í hófohumanninn, Ás-
geir Ásgeirsson, þegar eftir því var
leitað í gær.
Hann var
sagður í
sundi.
„Ég ætlaði að sparka í
brúsann en karlinn er
svo feitur að fóturinn
á honum varð fyrir. Ég
vona að hann hætti
að koma í laugina
með þennan
óþverra því þetta
er ekkert annað
en hófolía og lykt-
in er svo ógurleg
að ekki verður við
unað
Burt með oliuna
Ásgeir Sigurðsson, rekstrar-
stjóri Árbæjarlaugarinnar, seg-
ist kannast við átökin um Jk
áburðinn en vonast til að
menn finni einhverja sátt.
Ekki sé hægt að banna Ajmm
fólki að ber á sig það sem
það helst kýs eftir sund-
Haraldur Haraldsson Þolir
ekki lykt afhófollu Isundlaug
unum og sparkaði I brúsann.
Árbæjarlaugin Vettvangur átaka
vegna áburðar sem er svo illa lyktandi
aðmenngeta vart klætt sig hjálpar-
lausteftir morgunsundið.
Peter, Paul and Mary í Landakoti
Svarthöfði er hættur að botna
upp eða niður í tilverunni. Bæði
þessari sem hér er lifuð og hinni á
himni. Sérstaklega þegar hann les
fréttir þess efnis að Kaþólska kirkjan
sé orðin blönk og þurfi fyrir bragðið
að selja túnspildu í Landakoti í þeirri
veiku von að þar verði reistir skýja-
kljúfar.
Öðruvísi Svarthöfða áður brá
þegar hann var að alast upp norður í
landi. Þá las hann í dagbiöðum upp
á hvem dag hversu rík Kaþólska
kirkjan væri og páfinn baðaði sig í
þeim dýrðarljóma sem verður þegar
sólin speglar sig á nýbónuðu húdd-
inu á Mercedez Bens-biffeið Vatík-
ansins.
En nú em þeir orðnir blankir,
blessaðir. Landakotstúnið eitt og
sér á aldrei eftir að jafna þær skuld-
ir sem hlaupa á hundruðum millj-
óna. Næst verður það kirkjan sjálf
því hún hlýtur að vera verðmæt.
Allavega ef henni verður breytt í
diskótek. Gömul hús verða stundum
að fá ný hlutverk.
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað rosa fínt. Það er byrjað að snjóa og við Birta [Þóra Sigurðardóttir, meðum-
sjónarmaður í Stundinni okkarj erum að fara skemmta börnum víða á skemmtunum
og I Smáralindinni. Það er bara alveg rosalega gaman; við erum í svaka stuði."
Jóhann G. Jóhannsson, Bárður f Stundinni okkar.
í Landakoti væri þá hægt að aug-
lýsa skemmtanir eins og í öðmm
samkomuhúsum vítt og breitt um
landið:
Bræðumir frá Munkaþverá í kvöld!
Gregoríanskur taktur í Vesturbænum!
Eða:
í kvöld í Landakoti! Peter, Paul an
Mary! Aðeins þetta eina kvöld!
Eða:
Júdas ieikur fyrir dansi í kvöld. Júd-
as svíkur engan!
Og svo mælti lengi telja...
Svarthöföi