Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004
Fréttir DV
Kaffibruni í
Hafnarfirði
Slökkvilið I lafnarfjarðar
var kallað út vegna elds í
skorsteini á kaffibrennslu
við Staphraun um hálf níu
leytið í gærmorgun. Hafði
eldur náð að kvikna ofar-
lega í skorsteininum og log-
aði upp úr honum þegar
slökkvilið kom á vettvang.
Greiðlega gekk að ráða nið-
urlögum eldsins en að sögn
slökkviliðs voru skemmdir
ekki eins miklar og ætla
hefði mátt í fyrstu en þó
má gera ráð fyrir því að
gera þurfi við í kringum
strompinn.
Bauð brjósta-
káf ánetinu
Stúdent hefur verið
bannað að bjóða hverjum
sem vildi að káfa á brjóst-
um sínum á netinu. Stúlk-
an sem kallar sig Twinkly
Spangle bauð upp á 15
mínútna káf á 32C brjóst-
um sínum fyrir greiðslu en
féð ætlaði hún að nota til
að greiða skólagjöldin sín.
Mynd af brjóstum sínum
setti hún inn á eBay og það
varð strax mikill áhugi á til-
boðinu en fylgdi með að
viðkomandi yrði boðið upp
á te og kökur í leiðinni. For-
ráðamenn eBay ákváðu
hins vegar að henda aug-
lýsingu hennar út þar sem
hún bryti í bága við sið-
gæðisreglur vefsíðunnar.
„iviuuui uuysui 11 iii\iu uiii
vinnuna þessa dagana," segir
Jóhann Hauksson dagskrár-
stjóri Rásar tvö.„Ég er þeirrar
skoðunarað I öllu fjölmiðla-
farganinu sé það Ríkisútvarp-
ið sem
Landsíminn
getur
staðið
upp úr. Nú má RÚV ekki verða
eins og risi á brauðfótum
heldurþarfað blása tilsóknar.
Égernú svo bjartsýnn aö ég
vona að gott efni og vönduð
vinnubrögð verði alltafofan á.
Ilöndunum I kring um okkur
fer fram sams konar umræða
og hér, og þar eru margir sem
veðja á almenningsútvarp."
Kristrún Lind Óskarsdóttir, kennari í Ingunnarskóla í Grafarholti er eini kennar-
inn sem hefur mætt til vinnu síðustu daga. Aðrir kennarar hafa tilkynnt forföll
eins og tíðkast hefur víða í skólum landsins síðustu daga.
Ottasl að hætustu
kennararnir seni upp
„Mér bar að mæta í vinnu samkvæmt lögum," segir Kristrún
Lind Óskarsdöttir sem kennir yngri bekkjum við Ingunnarskóla
í Grafarholti. Um 50% grunnskólakennara mættu ekki til
kennslu í grunnskólum Reykjavíkur í gær, þrátt fyrir að hafa
fengið símtal frá skólastjórum sem hvetja kennara til að mæta í
vinnu. Flestir kennararnir segjast vera veikir og munu skóla-
stjórar óska eftir læknisvottorðum haldi þetta áfram.
„Ég var við ágæta heilsu og sá
ekki ástæðu til þess að mæta ekki,“
segir Kristrún og þykir miður að
kennarar sjái sig knúna til þess að
grípa til þeirra aðgerða sem nú hafa
verið í gangi. Kristrún hefur látið í
ljós þá skoðun sína í ljós að hún vllji
sjá aðrar leiðir í til lausnar á deilu
kennara.
Skólastjóra semja við sína
kennara
„Ég vil undirstrika það sem ég hef
áður sagt. Það er líklega mun betra
að brjóta samningana niður í
smærri einingar og semja jafnvel við
kennara á forsendum hvers og eins,"
segir hún og vísar til ólíkra starfa
kennara sem fá mismunandi laun
fyrir svipaða vinnu. Kristrún segist
vilja sjá þann möguleika skoðaðan
að gengið verði alla leið þannig að
samningar verði í höndum skóla-
stjóranna á grundvelli lágmarks-
launasamninga.
600 kennarar segi upp
„Ég óttast að hæfustu og sam-
viskusömustu kennararnir
segi upp. Þetta er fólk
sem verður eftirsótt
úti í atvinnulífinu
og er ekki líktegt til
þess að snúa aftur
til kennslu," segir
Kristrún. Hún telur
ekki ólíklegt að upp-
sagnirnar verði mun
fleiri en nú hafa kom-
ið í ljós. „Ég spái því
að 10-15 prósent
kennara komi til
með að segja upp.
Það hefur gríðarlega
slæm áhrif á skólana,
segir Kristrún sem telur að
allt að 600 kennarar komi til
með að segja upp í skólum
landsins af 4500 starfandi
kennurum.
freyr@dv.is
Tvítugur Eyrbekkingur með sérstöðu á
Suðurlandi
Jóhannes í Bónus á Selfossi
„Ég notfæri mér þetta ekki þó ég
kannski gæti stundum," segir Jó-
hannes Erlingsson, tvítugur nem-
andi við Fjölbrautarskólann á Sel-
fossi, sem kallaður er Jóhannes í
Bónus. Vegna þess að hann vinnur í
Bónus á Selfossi um aðra hverja
helgi og stundum á virkum dögum.
„Það eru nú helst félagarnir sem
kalla mig Jóhannes í Bónus og það
er réttnefni þá daga sem ég vinn. Ég
er nú bara stoltur af þessu ef eitt-
hvað er,“ segir Jóhannes í Bónus
sem hyggst þó ekki snúa sér alfarið
að viðskiptum í framtíðinni eins og
nafni hans Jóhannes Jónsson. „Ég er
að pæla í kvikmyndagerð," segir
hann.
Sjálfur hefur Jóhannes í Bónus
séð Jóhannes í Bónus nokkrum
sinnum þegar sá síðarnefndi hefur
heimsótt verslun sína á Selfossi: „Ég
hef þó aldrei haft kjark til að ganga
til hans og kynna mig. Kannski ég
geri það næst,“ segir Jóhannes Er-
lingsson sem er stundum kallaður
Jóhannes í Bónus.
Banaslys við strönd Suður-Afríku
Hvítur hákarl á stærð
við þyrlu drap konu
Hvítur hákarl,
sem sagður er á
stærð við þyrlu, ban-
aði eldri konu þar
sem hún synti úti fyr-
ir ströndinni við
Cape Town í Suður-
Affíku. Tyna Webb,
77 ára gömul, var að
synda við Sunny
Cove þegar sjónar-
vottar sáu hákarlinn
synda í kringum hana
og ráðast svo til atlögu. Há-karlinn var
sagður vera næstum sex metra langur.
Um 15 manns urðu vitni að árás-
inni. ,AUt sem fannst eftir árásina var
sundhetta hennar," segir Paul Dennett
einn þeirra sem var vitni að atburðin-
um. Björgunarmenn sem kallaðir voru
út, sem og þyrlur,
leituðu að kon-
unni um nokkum
tíma s.l. mánudag
en án árangurs.
Þeir sáu hins vegar
hákarlinn. „Hann
var risastór, eigin-
lega stærri en þyrl-
an sem ég var í,“
segir Darren
Zimmerman hjá
Sjóbjörgunarsveit-
inni í Cape Town.
Hvítir hákarlar sjást oft á þessum
slóðum á þessum árstíma en þeir
sækja í seli sem em í miklum íjölda á
þessum slóðum. Yfirvöld hafa ráðlagt
fólki að leggjast ekki til sunds á þess-
um slóðum á næstunni.