Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV Barney, hundur Bush Á heimasfðu Hvíta hússins er ýmislegur fróðleikur. Einkum er þar fjall- að um stjórnmál og önnur viðlíka mál. Fleira er þó að finna á þessari síðu og þar á meðal eru upplýsingar um Barney, hund Bush forseta, og konu hans, Lauru Bush. Hundurinn er Scottish Terrier, fæddur í september 2002 í New Jersey en faðir hans var í eigu starfsmanns umhverfisráðu- neytisins. Barney er fjörugur hundur sem hefur mikla ánægju af að leika sér með bolta en uppgötvaði fyrir stuttu að skómir á heimilinu eru mun skemmtilegri. Þó að hann sé ekki gamall hefur hann leikið stjörnuhlutverk fjórum sinnum f myndum um Hvíta húsið og hefur lifað spennandi tíma. Hann leikur sér gjarnan í garði Hvíta hússins en þess á milli er hann einn varðanna og það kemst ekki hver sem er fram hjá hon- um þó að ekki sé hann hár í loftinu. Að kenna gömlum hundi að sitja Á hundar.is er skemmtilegt blogg, skrifað af Ingu Róbertsdóttur hundaþjálfara um hundana hennar. Einkum segir hún frá Sunnu sem hún fékk fyrir skömmu og hvernig gengur að kenna henni upp á nýtt. Eftir því sem best má lesa út úr blogginu átti Sunna erfiða æfi og var illa alin þegar hún kom til Ingu. Hún er að byrja að þjálfa hana með klikker og það er mjög fróð- legt að fylgjast með hvernig hún ferð að því að kenna fimm ára hundi alit upp á nýtt. Og það skemmtilegasta við það er að Ingu gengur það bara nokkuð vel og vinnur dag- lega orustur f átt til betra uppeldis, þó að stríðið sé ekki unnið enn. Bergljót Davíðsdóttir skrifarum dýrin sín og annarra á miðvikudögum í DV. HAUSTTILBOÐ Full búð af nýjum vörum fyrir hunda, ketti og önnur gæiudýr. 30% afsl. af öilum vörum Mán. föstd. 10-18, laugard. 10-16, sun 12-16. Tokyo, Hjallahrauni 4, Hfj. S. 565 8444 Mikiðfjörá Hvuttadögum Hvuttadagar verða haldnir í þriðja sinn um helgina í Reið- höll Gusts Kópavogi. Þar er hægt að finna á ein- um stað allt sem tengist hund- um, hvort sem er fóður, föt eða tæki og tól sem menn þarfnast við hundahald. Það er Jón Guðmundsson sem staðið hefur fyrir Hvutta- dögum og á heiðurinn af hve vel hefur tekist til. „Við erum nokkur sem stöndum að þessu en fannst að það vantaði þenn- an vettvang fyrir hundaeigend- ur og aðra þá sem áhuga hafa á hundum. Þarna geta menn kynnt sér allt það nýjasta á markaðnum og þeir sem hyggj- ast fá sér hund fá á Hvuttadög- um allar upplýsingar um hundategundir hjá ræktendum sem verða með bása," segir Jón er sjálfur á hann þriggja ára blending. Á hvuttadögum fer fram tískusýning þar sem sýnt verð- ur það nýjasta í hundafötum, keppni í hundafimi fer fram og leitarhundar verða sýnir. Auk þess verða þeir sem þjónusta hundaeigendur með bása en í fyrra tóku um 4000 manns þátt £ Hvuttadögum sem fram fara í reiðhöll Gusts í Kópavogi og standa yfir frá 12-17, báða dag- ana. Litla Cvaliertíkin Fífa er óforbetranlegur þjófur og stelur öllu steini léttara sem skilið er eftir á glámbekk. Pennar, tvinnakefli og jafnvel nálapúðar og kveikjarar eru meðal þess sem hún hnuplar. Slelur nálapúðanum og tfnir títuprjónana smehklega úr „Hún er alveg ótrúleg því hún stelur öllu steini léttara. Við getum ekki skilið neitt eftir á borðum sem freistar hennar, þá er það horfið,“ segir Aðalheiður Erna Gústafsdóttir í Mosfellssveit en hún á Cavaliertík- ina Fífu sem hún fékk fyrir tæpu ári. í mestu uppáhaldi hjá Fífu em pennar og tvinnakefli og jafnvel títu- prjónapúðinn hennar Ernu er ekki hultur því Fífa hefur sérstaka ánægju af að tína prjónana úr honum og raða þeim á gólfið. „Maður hefði haldið að hún meiddi sig á prjónun- um en hún hefur eitthvað lag á að tína þá úr án þess að stinga sig. Kefl- in á saumavélinni minni fá ekki heldur frið því hún gerir sér lítið fyrir og stígur upp á stól og nær í þau. Ég er nú farin að loka saumaherberginu mínu svo hún komist ekki inn,“ segir Erna hlæjandi en alla hlutina sem Fífa hnuplar fer hún með í sófann þar sem hún á teppi sem hún liggur á við hlið húsmóður sinnar. „Þangað fer ég og leita að því sem ég sakna en hún hefur þá vöðlað því sem hún hnuplar inn í teppið og falið." Fífu fékk Ema hjá Halldóm Frið- riksdóttur ræktanda í Mosfelisbæ. „Ég hafði átt þrjá hunda áður og þegar sá síðasti dó ætlaði ég aldrei að „Maður hefði haldið að hún meiddi sig á prjónunum en hún hefur eitthvað lag á að tína þá úr án þess að stinga sig.“ eignast dýr aftur. Þegar ég hins vegar sa hundana hjá Halldóm, sem býr við hlið dóttur minnar, féll ég kylli- flöt. Þessir hundar em hreint yndis- legir,“ segir hún og lét sig ekki muna um að bíða í eitt og hálft ár eftir Fífu. „Ég sá ekki eftir því en hún er yndis- leg,“ bendir Ema á og segir að ýmis- legt hafi breyst á heimilinu eftir að Fífa kom. Lífið og tilveran snýst um hana en þau hjón, Ema og maður hennar, em aðeins ein eftir og börn- in farin að heiman. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt en ég vinn úti til klukk- an 2 á daginn og þá bíður hún eftir að ég komi. Það er svo notalegt að vita af henni heima og ég flýti mér alltaf heim til hennar. Hún sefur uppí hjá okkur en það þarf ekki mik- ið að hafa fyrir að ala svona hunda upp, þeir em svo lilýðnir og góðir. Fífa er óforbetranlegur hnuplari Fyrst nagaði hún allt og átti til að skemma húsgögnin með bleki. Nú lætur hún sér nægja að feia hluti I bóiinu sínu. SENDING AF JGLABÚRUM Kid's 541. fiskabúrasett með: loki,ljósi hreinsara og . hitara. L kr. 13.851. Dýraríkið Grensásvegi s: 5686668 - Dýraríkiö Akureyj iflFlÖLSKYLDU-OO HOSDÝRAOARDURINN i «: NPHjlRtMIÍ ...20.-21, nóvember HVUTTADACAR Reiðhöll Gusts, Kópavogi. Allt sem að viðkemur hundum. Um 30 hundategundir, gæludýraverslanir, hundafimi, hjálparhundur og margt fleira áhugavert. Fráhær fjölskylduskemmtun. Opið 12.00-17.00 ’WAgriam Dýravernd Opið alla daga frá kl. 10-17 www.hvuttadagar.net

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.