Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2004, Blaðsíða 32
i~J/, Q j í íJQj ÍQÍ Við tökum við fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrír hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndarergætt. r~J r-> 550 5090 SKAFTAHLÍÐ24, 105 FtEYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS505000 Handrukkaraskelíir færir Sesari jólin • Um helgina var mikið um /•dýrðir í félagsheimilinu á Sel- tjarnarnesi þeg- ar íþróttaálftir- inn Magnús Scheving hélt upp á fertugs- afmæli sitt með um 300 gestum. Þemað í veisl- unni var ekki Latibær heldur næstí bær við, James Bond, og tók félagsheim- ilið á sig l£ki spilavítis. íþróttaáif- urinn er hinn sprækasti þrátt fyrir aldurinn og lét sig ekki muna um að vakna eldsnemma morguninn eftir til að fara til fundar við BBC í London þar sem áhugi er á að kaupa afurðir Latabæjar... Eru ekki að losna kennarastöður? Handrukkaraskelfirinn og bar- áttumaðurinn Guðmundur Sesar Magnússon, sem á að baki hroða- lega reynslu sem fórnarlamb hand- rukkara, fékk sannkallaða himna- sendingu í gær þegar sjónvarps- konan Sirrý færði honum 500 þús- und krónur að gjöf frá áhorfendum Fólks á Skjá einum. Guðmundur Sesar á í gríðarlegum fjárhagserfið- leikum og er á heljarþröm eftir að hafa barist árum saman við að ná dóttur sinni úr klóm undirheima- fólks. Hann segir fjárstuðninginn breyta öllu fyrir fjölskyldu sina. „Ég er gáttaður á þessu og afar þakklátur fyrir stuðninginn sem í þessu felst. Þetta sýnir að samfé- lagið er meðvitað um að ráðamenn verði að gera eitthvað í þessum málum," segir Guðmundur Sesar sem segir sögu sína í jólabókinni Sigur í hörðum heimi. í baráttu sinni við undirheima er fjölskylda Sesars búin að tapa flestum sínum veraldlegu eigum. „Nú á ég fyrir leigunni næstu mánaðamótín og við getum haldið gleðileg jól, þökk sé áhorfendum Sirrýar. Mestur tími minn undan- farið hefur farið í að berjast í bönk- um og semja við lögfræðinga," segir hann. Sirrý færði honum bankabók í gær með hálfri milljón í inneign. Hún segir að gríðarleg viðbrögð hafi orðið eftir að Sesar kom fram í þætti hennar á dögunum. Velgjörð- arfólk Sesars vill ekki láta nafna sinna getið en fjárhæðinni var að sögn Sirrýjar safnað á meðal einstaklinga og fyrirtækja. „Það er ánægjulegt hlutskipti mitt að færa fjölskyldunni þessa peninga og sýnir að fólki stendur ekki á sama og það vill sjá eitthvað breytast í baráttunni við undir- heimana. Þessi styrkur er frá þakklátum fjölskyldum en frum- kvöðullinn vill ekki að fram komi hverjir gefendurnir eru," segir Sirrý sem í kvöld klukkan 20 mun á heljarþröm Sirrý Himnasending Guðmundur Sesar Magnússon hefur átt erfiða tíma íglímu við handrukkara og dópsala. Hann missti íbúð slna á uppboði og berst íbökkum. Sjónvarpskonan Sirrý færði honum jólin í gær. sýna frá afhendingunni í þætti sínum Fólk. Guðmundur Sesar er ekki á þeim buxunum að hætta barátt- unni. „Mig langar helst tíl að halda áfram baráttunni þar til hið opin- bera sýnir vilja til að taka á þessum málum í heild sinni. Það verður að stöðva þessa vitfirringa sem halda samfélaginu í þögn skelfingarinn- ar. Ég er þakklátur DV og Sirrý fyrir þá umfjöllun sem orðið hefur til þess að hreyfa við þessum málum," segir Guðmundur Sesar. * Þreytt verkfallsbarn biður um vinnu Ungur Eskfirðingur sem að sögn hafði fengið sig fullsaddan á kenn- araverkfalli og skólakerfinu brá á það ráð að sækja um vinnu hjá stærsta atvinnurekanda staðarins, Eskju, á dögunum. Drengurinn kvaðst tilbúinn í hvað sem er. „Hann bara kom hérna og bað um vinnu," segir Halla Óskarsdóttir, starfsmannastjóri Eskju. „Ég hélt að hann væri að grínast en honum var bara alveg sama um það og þegar ég spurði hvort hann vúdi í bræðsluna eða frystihúsið sagði hann mér að hann væri búinn að fara niður í frystihús. Hann gætí líka vel hugsað sér að vinna hérna á skrifstofunni," segir Halla. „Einhvern tímann hefði þetta nú Áttu vinnu handa mér? Níu ára gekk hann inn á skrifstofu Eskju og bað um vinnu. DV-mynd eskja.is ekki verið mikið mál, en nú eru sem betur fer breyttir tímar hvað þetta varðar." Síðast þegar fréttíst sat dreng- urinn á skólabekk eftir verkfall. Byltingin étur bakarann Andrés Sigmundsson, byltingar- bakari í Vestmannaeyjum, er hom- reka eftir að samstarfsmenn hans í Vestmannaeyjalistanum og sam- flokksmenn hans í Framsóknar- flokknum snem við honum baki. Framsóknarmenn í Vestmannaeyj- um harma samstarfsslitin við Vestmannaeyjalistann í seinustu viku sem urðu í framhaldi þess að gðj Andrés Sigmundsson, bakari og bæjarfulltrúi, neitaði að segja af sér sem formaður bæjar- ráðs. Krafan um afsögn kom í framhaldi þess að upp komst að Andrés hafði án samráðs við félaga sína undirritað fá- ránlega vilja- yfirlýsingu um kaup á Fiskiðju- húsi fyrir rúmar 150 milljónir króna, sem þykir fráleitt verð. Andrés varð frægur þegar hann sleit samstarfi flokks síns við sjálfstæðismenn og tók upp samstarf við V-listann. Stjórn Framsóknar í Eyjum telur að samstarfið hafi verið farsælt og í yfirlýsingu stjórnar félagsins segir að fullur vilji hafi verið til þess að halda bví áfram en Andrés bakari hafi ekki haft samráð við félagið áður en hann sleit samstarfinu. „Af ■ þeim sökum vill stjóm félagsins I beina þeim eindregnu tilmæl- um til Andrésar Sigmundssonar að hann segi af sér starfi bæjar- fulltrúa í ljósi undangenginna atburða," segir Framsókn í Eyjum. Andrés bakari Gerði uppreisn enernú hornreka. KORKLOC Komdu og skoðaðu úrvalið eða hringdu og fáðu sendan bækling. Þ.Þorgrimsson & Co Ármúla 29, S:553 8640 www.korkur.ls Stærð: 295x900x12mm Fjöldi lita á lager

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.