Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
Fyrst og fremst DV
jf Unglingar
M ^vilja keppa í
fzM, fegurð og
\___ vinsældum
Nýja Bridget Jones-
myndin vinsæl j
(slenskar konur
alveg eins og
Bridget
íslendingar
flykkjast á
uppboð
Guðbrands-
biblía sem fer
ekki á minna
en 4 millur
Efni
Eiður Smári
er frægasti fslendingurinn
Kalli Bjarni
og Alla konan hans
Frægðin hef-
ur styrkt sam-
band okkar
Leikhópurinn Vesturport frumsýndi verk sitt Rómeó og Júlíu á West End í London í
gær. Gísli Örn Garðarsson segir áttahundruð manna leikhúsið hafa veriö troðfullt og
stemminguna gríðarlega. Breskir gagnrýnendur halda vart vatni yfir sýningunni.
„Það var gríðarlega stemming,“ segir Gísli örn Garðarsson hjá
Vesturporti sem frumflutti Rómeó og Júlíu í Playhouse leikhús-
inu á West End í gær. Gísli segir 800 manna salinn hafi verið
troðfullann, færri komust inn en vildu. Þetta var í fyrsta skipti
sem Vesturport-hópurinn sýnir verkið á hefðbundnu leiksviði.
„Það gekk bara alveg ótrúlega vel
að leika þetta á hefðbundnu sviði og
breytti í raun ekld miklu fyrir verkið
sem slíkt," segir Gísli öm. Hann var að
vonum ánægður með frábæra dóma
sem verkið fékk eftir frumsýninguna á
West End á fimmtudagskvöldið. í
föstudagsblaði Times fékk sýningin
fjórar stjömur af fimm mögulegum og
mjög jákvæða umfjöllun.
Hatar svona leikhús - en
elskar Nínu og Gísla
Netmiðillinn Whats on stage
heldur varla vatni yfir verkinu en
gefur því einnig fjórar af fimm
stjörnum. Gagnrýnandi Whats on
stage, Heather Neill, hefur hingað til
litið á verkið sem leikhúsverk hinnar
fögm tungu og segir: „Samkvæmt
mínum hefðbundnu reglum ætti ég
að hata svona útgáfu af Rómeó og
Júlíu.“ Hún er því hissa hversu vel
sýningin gengur upp þar sem tungu-
málið og textinn er í aukahlutverk-
um. Tjáning og lfkamstúlkun eru í
aðalhlutverkum. Hún er afar ánægð
með ungan leikarahópinn og full-
yrðir að sjaldan áður hafi sést eins
ungt og fallegt par í hlutverkum
Rómeós og Júlíu.
Draumastaðan værí
að vera með tvo hópa
i gangi, bæði hér og á
Broadway.
Styrkir samningsstöðu á
Broadway
Gísli segir þessar frábæm viðtök-
ur á West End styrkja samnings-
stöðu leikhópsins sem staðið hafa
við leikhúsframleiðendur á Broad-
way í New York. „Þetta styrkir stöðu
okkar þar tvímælalaust. Drauma-
staðan væri að vera með tvo hópa í
gangi, bæði hér og á Broadway,"
segir Gísli sem hefur verið með pmf-
ur fýrir enska leikara en kýs heldur
að þjálfa upp annan íslenskan leik-
arahóp.
„Það er miklu meiri orka í ís-
lensku leikumnum, mun meiri
kraftur. Gæti trúað að Bretarnir
bæm of mikla virðingu fyrir verkinu
til þess að geta leikið það eins og við
emm að gera," segir Gísli Örn. Hann
reiknar með því að verkið verði í
gangi í London næstu tvo til þrjá
mánuðina miðað við móttökurnar á
fimmtudaginn. freyr@dv.is
Gfsli Örn Garðarson Leikstýrir, framleiðir
og leikurRómeó sjálfur.
Hjónin Gísli Örn og Nfna Dögg Eru
fallegustu Rómeó og Júlía sem breskir gagn-
rýnendur hafa séð í háa herrans tfð.
Stærsta pylsa heims I Kringlunni í dag
„Já, það er allt á fullu og viö erum
að fara að taka sfðustu æfinguna,"
sagöi Oddur Amason, verksmiðju-
stjóri hjá SS á Hvolsvelli, þegar DV
haföi samband við haxm í gær. Odd-
ur hefur yfirumsjón meö gerð
stærstu pylsu með öllu sem gerð
hefiir verið, og sýnd verður í Kringl-
unni í dag klukkan 14. Pylsan er gerö
í tílefiii af útgáfu Heimsmetabókar
Guinness á íslensloi og veröur hún
vottuð sem sú stærsta sem gerð hef-
ur verið. SS sér um gerð pylsunnar
og Myllan bakar brauðið. Núverandi
met er pylsa í brauði með öllu sem
var 10,5 metrar á lengd og var sett í
Pretóríu í Suður-Afríku í fyrra. Odd-
ur og félagar ætla hins vegar að bæta
það met um einn og hálfan metra og
búa til eina með öllu sem er 12 metr-
ar á lengd.
Guðni Agústsson Landbúnaðarráöherr-
ann verður á staönum til að gæta þess að
allt fari vel fram og smakkar fýrstur manna
þessa stærstu pylsu f heimi.
„Við erum búnir að vera að æfa
okkur á hverjum einasta degi und-
anfarið og það hafa að meðaltali sex
maims unnið að þessu," segir Odd-
ur en hann telur að pylsan verði um
tíu kíló að þyngd.
„Þetta er búið að vera alveg
meiriháttar skemmtilegt og heil-
mikil tilbreytíng fyrir okkur, en
hefur að sama skapi kostað ein-
hvem svita, tár og andvökunæt-
ur til að finna réttu leiðina til að
búa pylsuna tíl.“
Veiöur eitthvað varið í pylsuna,
erhún örugglega æt?
„Já, að sjálfsögðu, þetta er SS-
pylsa! Við ætíum aö bjóða fólki að
smakka þegar landbúnaðarráð-
herra er búinn að talca fyrsta bit-
ann og fólk fær vottorð um að það
hafi smakkað stærstu pylsu í heimi."
Heldurðu að Guöni eigi eftir að
kyssa pylsuna?
„Ja, það er spuming hvað hann
gerir. Ég ætla nú að vona að hann
bítí í hana, ég hef trú á því. Guðni er
matmaður."
Oddur Árnason Býr
til stærstu pylsu /
heimi sem sýnd verður
IKringlunniídag.