Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 Helgarblað DV Fréttaskýring Bandaríkjastjórn ætlar að bregðast við mikilli aukingu á ópíumframleiðslu í Afganist- an. Ætlar að eyða 780 milljónum dollara til verksins. í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um málið kemur fram að Afganistan sé að breytast í sama „dóp-ríkið“ og það var fyrir 1999 er talíbanar stöðvuðu framleiðsluaukninguna á ópíumi. Bandaríkjastjórn hefur lýst yfir því að hún muni bregðast við mikilli aukningu á ópíumframleiðslu í Afganistan og hefur lagt til að 780 milljóna dollara fjárveiting verði samþykkt til þessa verkefnis á næsta ári. Á sama tíma og þessi yflrlýsing var gefin í vikunni kom út ný skýrsla á veg- um Sameinuðu þjóðanna þar sem segir m.a. að Afganistan sé að breytast í sama „dóp-ríkið‘‘ og það var fyrir 1999 er talíbanar stöðvuðu &amleiðsluaukn- inguna á ópíumi. Búist er við að þe& sem fara með raunveruleg völd í Afganistan, héraðsstjórar með eigin heri og flkniefhabarónar muni bregðast við þessu af hörku en áædað er að ópí- um standi und& yfir 60% af þjóðartekj- um landsins. f skýrslu SÞ eru Bandaríkjamenn og NATO-heraflinn í Afganistan hvattir til að beijast jafnmikið gegn ópíumfram- leiðslunni og uppreisnarmönnum taflbana. Talið er að Afganistan standi nú undfr 87% af allri ópíumframleiðslu í heiminum og áædaðar tekjur landsins af ópíumi á síðasta ári eru 2,8 milljarðar dollara eða um 160 milljarðar króna. Talið er að tíundi hver Afgani hafi nú tekjur sínar af framleiðslunni. Söguleg mistök I skýrslu SÞ er sagt að það yrðu söguleg mistök ef Afganistan yrði yfir- gefið í hendur ópíumsins. Og Antonio Maria Costa, yfirmaður skrifstofu SÞ í fíkniefna- og glæpamálum, segir að skýrslan ætti að vekja heiminn upp af værum svefni í þessu máli. .Afgönsk stjómvöld em of veikburða til að fást við þetta vandamál á eigin spýtur," segir Costa. „Fflaúefnin í landinu em skýr og viðvarandi hætta. Óttinn um að Afganistan sé að breytast í dóprfld er raunverulegur." Samkvæmt skýrslunni er ópíum- framleiðslan í ár áætiuð um 4.600 tonn eða nálægt því hámarki sem hún náði 1999 er tafibanastjómin greip í taum- ana. Fréttaritari BBC í Kabúl, Roland Buerk, segir að það sé auðvelt að sjá af hverju 2,3 milljónir manna, eða tíundi hluti íbúanna, hafi lifibrauð sitt af ópí- um þegar haft er í huga að bóndi getur hagnast tífalt meira á að framleiða efn- ið en hann fær út úr hefðbundnum landbúnaði. Costa segir að það sé nauðsynlegt að stöðva ópíumframleiðsluna á löglegan, lýðræðislegan og efrtahagslegan hátt. „Þetta verður langur og erfiður ferill,“ segir Costa. Veik stjórn Bandaríkjastjóm segir að hún hafi nýja áætiun um hvemig berjast eigi við ópíumvandann og muni styðja stjóm- völd í Afganistan með ráðum og dáð í komandi stríði. Vandamálið sem við er að etja er að nýkjörin stjóm Karzanis forseta ræður í raun engu í landinu ef frá er talin miðborg Kabúl og nánustu úthverfi borgarinnar. Á landsbyggðinni ráða ýmsir héraðshöfðingjar, herstjór- ar, uppreisnarmenn og fíkniefriabarón- ar því sem þeir vilja. Robert Charles, einn af aðstoðar- utanrfldsráðherrum Bandaríkjanna, segir að ópíumframleiðslan sé alvarleg- asta vandamálið sem við er að gflma í Afganistan í dag. Aðspurður af hverju alþjóðlegar aðgerðir gegn framleiðsl- unni hafi gengið svo illa sem raun ber vitni segir Charles að það sé einkum vegna þeirrar lögleysu sem rfld á lands- byggðinni í Afganistan og skorts á hæfú fólki til að eyðileggja valmúaakrana. Valmúinn Bændur IAfganistan vilja heldur rækta valmúa, sem ópium er unniö úr, en aörar landbúnaöarafurðir. „Nú em Bandaríkin og Bretland í samvinnu við Afganistan að undirbúa umfangsmiklar aðgerðir til að eyði- leggja uppskeruna á næsta ári,“ segir Charles. Glæpir og spilling Ópíum er að mestu notað til fram- leiðslu á heróíni. Ópíum- og heróín- framleiðslunni, smyglinu og sölunni á því fýlgja glæpir og spilling um allan heim. Ekkert eftirlit er með landamær- um Afganistans og er fíkniefrumum smyglað yfir landamærin til Pakistans, Rússlands og áfram til Tyrklands og þaðan til Evrópu. Smyglið er mikið yfir landamærin til Paldstans þar sem menn tengdir al-Kaída ráða lögum og lofum á stórum svæðum. Smyglgróð- inn er hluti af rekstrarfé hreyfingarinn- ar. Einnig em ýmis Asíulönd að verða stór í herómframleiðlsunni enda getur hagnaðurinn af sölu þess numið stjam- fræðilegum upphæðum. í Bretlandi er heróínneysla vax- andi vandamál en þar í landi telja menn að glæpaflokkar frá Asíu séu að reyna að sölsa undir sig markaðinn með tilheyrandi ofbeldi, morðum og skotbardögum. Steve Holmes, einn af yfirmönnum fíkniefnalögreglunnar í Bretlandi, segir að asískir glæpaflokk- ar séu æ meira áberandi í heróínsöl- unni. „Þetta eru yfirleitt vel skipu- lagðir glæpaflokkar og þeir eru viðriðnir öll stig sölunnar, ekki bara innflutninginn," segir Holmes. „Þeir nota þá reynslu sem þeir hafa öðlast við innflutninginn til að skipuleggja allt söluferlið, heildsöluna og götu- söluna á Englandi og í ákveðnum borgum.“ Bradford miðstöðin Samkvæmt þeim upplýsingum sem Steve Holmes hefúr aflað sér er borgin Bradford að verða ein helsta miðstöðin fyrir heróínsöluna í Bretiandi. Áætiað er að um 30 tonnum af heróíni sé smyglað til Bretiands á hveiju ári og að lögreg- unni takist aðeins að ná um tveimur tonnum af því magni. Donald Toon, yffrmaður glæpa- deildar tollsins á norðurhluta Englands, er sammála Holmes um aukin áhrif Asíumanna í heróínsölunni, einkum Pakistana. „Við höfum vissulega orðið varir við auldn umsvif Pakistana í alvar- legri og skipulagðri glæpastarfsemi tengdri heróínsölunni," segir Toon. „Við áætium nú að um fjórðungur af heróínmarkaðinum á okkar starfssvæði sé nú undir stjóm glæpaflokka frá Pakistan." Fflaiiefnalögreglan í Bretiandi hefur einkum beint sviðsljósi sínu hingað til að tyrkneskum og albönskum glæpa- flokkum hvað varðar innflutning og sölu á heróíni. Asíumenn em hins vegar að reyna að bola þessum glæpamönn- um út af markaðinum og er því sjónum lögreglunnar beint að asískum sam- félögum innan Bretiands í sí auknum mæli þessa dagana. Karzani Vandamáliö sem viö er aö etja er aö nýkjörin stjórn Karzanis forseta ræðurí raun engu í land- inu effrá er talin miöborg Kabúl og nánustu úthverfi borgarinnar. Ffkniefnabrenna Fyrrímánuö- inum brenndu lögreglumenn í Afganistan mikiö magn afeiturlyfj- um, eöa um 3 tonn afópíum, 4 tonn afhassi og 170 kg afheróíni. ,ír
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.