Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 12
Helgarblað DV Nóvembertilboð 20 % afsláttur Hægin dastólar slillanlcíit bak. leður á slití'l. eða sferkt áklæöi. tilboðsverð 5.30ÍL^r settið kr. 231.660 Sófasett 3ja og 2 hægindastólar öll sivti stillanleií. sterkt íauáklæði. ínnlit Síðnniú 1 a 13 Revkjavík sími 544 8181 Dómarinn sem dæmdi Annþór Faðir fórnarlambsins lýsir Símoni Sigvaldasyni héraðsdómara sem hetju. Hann hafiþor- að að kveða upp réttlátan dóm. — > ( Framhald af fymopnu \W j Skreið inn í svefnherbergið Það var föstudaginn 4. apríl sem Annþór og Ólafur Valtýr Rögnvalds- son brutu upp hurðina á íbúð Birg- is Rúnars í miðbænum. Þeir voru báðir vopnaðir kylfum. Ólafur Valtýr henti keramikdiski í höfuð Birgis en Annþór lét höggin dynja með kylfu. Birgir Rúnar var mjaðmagrindarbrotinn og tókst að skríða inn í svefnherbergi. Annþór elti hann og lamdi með kylfunni þannig að Birgir Rúnar handleggsbrotnaði þegar hann reyndi að bera hönd fyrir höfuð sér. I dómnum yfir Annþóri segir að brot hans í þessu máli séu alvarleg og ófyrirleitin. Hann hafi veist að Birgi Rúnari „með hrottafengnum hætti“ og valdið honum umtals- verðu líkamstjóni. „í þá för réðst ákærði við þriðja mann og stóð að atlögunni með ofurefli liðs þar sem Birgir Rúnar stóð höllum fæti í kjöl- far umferðarslyss. Lýsir slík atlaga miskunnarleysi," segir í dómnum. Handrukkari gengur laus Réttarhöldin yfir Annþóri hafa vakið gríðarlega athygli. Sú umfjöll- un hófst rmeð því að ráðist var á Friðrik Þór Friðriksson feikstjóra á Ölstofu Kormáks og Skjaldar í byrj- un október. Friðrik sakaði Annþór um verknaðinn og hótaði að kæra hann; sagði Annþór hafa verið fenginn í verkið af þriðja aðila. Hér væri handrukkari á ferð. í kjölfarið fór DV yfir feril Ann- þórs, sem er fæddur árið 1976, en hefur frá árinu 1993 verið átta sinn- um dæmdur fyrir gróf ofbeldis- eða fíkniefnabrot, síðast árið 2003 í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi. Það skilorð hefur Annþór nú rofið en samt gengur hann laus. Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, segir að fangels- ismálayfirvöld þurfi að óska eftir því við lögreglu að birta dóm yfir mönnum. Það taki alltaf einhverja daga. Þangað til gangi Annþór laus. Sekt leigusalans Frá upphafi málsins hefur Ann- þór neitað því að vera handrukkari. I dómnum kemur hins vegar fram að hjá lögreglu hafi Annþór viður- kennt að Ragnar Guðmunds- son, leigu- sali Birgis I Rúnars, ' hafi fengið Ihann til að koma Birgi út úr íbúð- inni. Ragnar hafði fundið dóp á gistiheimil- inu sem tilheyrði Birgi Rúnari og vildi strákinn út úr húsinu. Ragnar Guðmundsson leigusalj FékkAnnþór til að ganga i skrokk á Birgi Rúnari en fær engan dóm. Þann 1. október var ráðist á Friðrik Þór Friðiksson kvikmynda- leikstjóra á Ölstofu Kor- máks og Skjaldar. Frið- rik var illa far- inn eftir árás- ina. Bólginn og marinn. Hann fullyrti að Annþór Kristján Karls- son hefði verið árásarmaðurinn og sagðist ætla að kæra hann. Friðrik bað um lögregluvernd til að hann gæti lagt fram kæruna en fékk ekki. DV hafði samband við Friðrik Þór í gær og hann sagði málið í fullum gangi. Lögfræðing- ar væru með það í höndunum og það kæmi í Ijós síðar hvað gerist. Spurður hver hefðu verið við- brögð hans við dómnum sem hér- aðsdómur felldi í gær sagði Frið- rik: „Égbið bara fyrir Annþóri.“ Gistiheimilið Adam HérréðustAnnþórog félagar til atlögu. Framburður Annþórs og ann- arra vitna staðfestir hlutdeild Ragn- ars í verknaðinum. „Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur í dómaranum," sagði Ragnar Guðmundsson, eigandi Gistiheimilisins Adams og fyrrum leigusali Birgis Rúnars. Þegar Ragn- ari var bent á að í dómnum kæmi fram að Annþór viðurkenndi að Ragnar hefði beðið hann um að af- skipti yrðu höfð af Birgi Rúnari sagði Ragnar: „Þá er Annþór að Ijúga." Tímamótadómur Faðir fórnarlambsins og lög- fræðingar og dómarar sem DV hef- ur rætt við eru sammála um að dómurinn yfir Annþóri sé merkileg- ur. Hann er mun þyngri en flestir áttu von á. Mun þyngri en dómar fyrir líkamsárásir af þessu tagi eru yfirleitt. Það sem gerir málið einnig merkilegt er að Birgir Rúnar dró kæru sína og framburð til baka. Sagðist hafa fallið í stiga og hand- leggsbrotnað við það. í dómnum segir að sú útskýring sé ótrúverðug Eftir að árásin áFrið- rik Þór komst í kastíjós fjöl- miðla og rétt- arhöld hófust vegna árásar- innar á Birgi Rúnar talaði DVviðKarlJ. Sigurðsson, föður Annþórs. Karl sagðist hafa áttað sig á því þegar Annþór var um fermingu að ekki væri allt með felldu varðandi drenginn. Hann hefði verið send- ur á Dalbraut vegna vandræða og taldi faðirinn að einelti í æsku væri um að kenna. „Eins og málum er komið vildi ég sjá son minn á bak við lás og slá. Það verður að bregðast við þessu öllu og ég veit að Annþór hefði gott að því að taka út refsingu," sagði Karl faðir hans og miðað við dóminn sem féll í gær virðist Karh hafa orðið af ósk sinni. Drengur- inn sem Ann- þór Kristján Karlsson var dæmdur fyrir að hafa ráðist á dró kæru sína á hendur Annþóri til bakaíupp- hafi málsins. Að sögn foreldra hans óttaðist Birgir Rúnar afleiðingarnar ef hann héldi kæru sinni til streitu. Þrátt fyrir að hafa dregið kæruna til baka ákvað rfkissaksóknari að ákæra í málinu og byggja á fram- burði Birgis Rúnars við yfirheyrsl- ur hjá lögreglunni. Tveimur dög- um fyrir réttarhöldin kom Birgir Rúnar í viðtal hjá DV. Hann sagð- ist þá tilbúinn til að segja sann- leikann; Annþór hefði handleggs- brotíð hann, sagan um stigann væri lygi. Tveimur dögum eftir það birtist Birgir Rúnar niðurlút- ur í héraðsdómi og kaus að halda sig við frásögnina um stígann sem dómurinn sagði ótrúverðuga og ekki eiga sér stoð í málsgögn- um. og eigi sér enga stoð í gögnum málsins. Eftir stendur því að þungur dómur féll í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Dómur sem að mati lög- fræðinga og föður fórnarlambsins sendir skýr skilaboð út í þjóðfélag- ið. Og skilaboðin sem Símon Sigvaldason sendir frá sér eru að handrukkanir verði ekki liðnar. Það er sama þótt vitnum sé ógnað og framburðir dregnir til baka - sann- leikurinn mun koma fram og menn verða dregnir til saka. „Þessi dómari er hetja," segir Benedikt Arason, faðir fórnar- lambsins. „Ég held að öll umræðan, innrásin á DV og hvernig þið hafið tekið á þessum málum hafi skipt máli. Dómurinn sýnir það.“ simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.