Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 Helgarblað DV föl hjá Bruun Rasmussen - upp- boðshúsi í Dan- mörku. Þetta eru stórtíðindi enda um afar fágætan grip að ræða. Vitað er um íslendinga sem eru að pakka í töskur og ætla að bjóða í gripinn sem er stórmerkur enda áritaður af Guðbrandi sjálfum. Iá, þetta eru stórtt'ðindi. Ég veit að minnsta kosti um tvo menn, kunningja mína, sem ætla að bjóða í bókina og rikir ægileg ma.ÞeirerubáðirveHJáðirogættu að geta keypt bókina. Það má reikna með að bjóða þurfi í hana um fjórar milljónir eigi hún að nást," segir Ragnar Fjalar Lárusson, prófastur og biblíusafnari. Um mánaðamótin mun 1. útgáfa af Guðbrandsbibh'u verða boðin upp hjá Bmun Rasmussen sem er danskt upp- boðshús. Um hina heilögu ritningu er sagt að hún sé 1. útgáfa, árituð af hin- um fræga danska málfræðingi Rasmus Rask sem og af ritstjóranum Guðbrandi Þorlákssyni á titilsíðu. Guðbrandur Hólabiskup (1571-1627) þýddi biblíuna og gaf hana út og er hún því kennd við hann. Þá kemur ffam í tilkynningu frá Bmun Rasmussen að fimm hundmð eintök hafi verið prentuð en aðeins sé vitað um fáein eintök í einkaeigu. í dag er þetta talin ein fágætasta útgáfa bibh'u í gervallri Skandinavíu og þó víðar væri leitað. Um mánaðamótin verður 1. útgáfa Guðbrandsbiblíu Almektuga Gude til loffs og æru DV fékk hinn virta vísindamann við Ámastofnun dr. Einar Gunnar Péturs- son til að rýna í áletmnina á titilsíðu og það vafðist ekki fyrir honum að lesa þar úr en það er ekki á allra færi. „Þama em tvær áletranir og er önn- ur yfirstrikuð. Neðri áletmnin er svo- hljóðandi: Þessa bibliuhefegfegetsijra bimea vollumAnno 1588 Gudbrandur Thorlaksson Eða: Þessa biblíu hef ég fengið séra Bimi á Völlum annó 1588. Guðbrandur Þorláksson." Dr. Einar Gunnar grúskaði í heim- ildum og fann út með óyggjandi hætti að þar færi séra Bjöm Tómasson sem fæddur var árið 1530 og dáinn 1606. „Það er lítið um hann vitað en hann hefur verið prestur á Völlum í Svarfaða- dal.“ Og dr. Einar gat án mikilla erfiðleika lesið úr efri áletruninni sem yfirstrikuð er en þar stendur: þessa bok fæ e klaustrinu a Skridu Almektuga Gude til loffs og æru og hanns blessada ordiAnno 1585 Erikur Amasson Eða: Þessa bók gef ég klaustrinu á Skriðu almátfuga Guði til lofs og æm og hans blessaða orði. Annó 1865. EiríkurÁmason. Vísindamaðurinn segir engum blöðum um það að fletta að þessi áletrun sé ófölsuð. Þetta sé rithönd Guðbrands auk þess sem nafnið hefur sitt að segja. „Væri þama ritað til dæm- is Óskar Hreinsson væri þetta fölsun. Um EiríkÁmason má finna í íslenskum æviskrám. Hann deyr um 1587. Má heita ömggt að um þennan Eirík sé að ræða. Hann var sýslumaður, er nefnd- ur prestahatari og hélt Skriðuklaustur lengi eða frá 1564 til 1578. Fór svo til Þýskalands og giftist þar. Hann orti erfiljóð eftir fyrri konu sína og er það með þeim elstu af þeirri gerð. Guð- brandur hefur líkast til kallað biblíuna til sín aftur því ekki hefur verið greitt fyrir hana. Ég get vel ímyndað mér að Austfirðingar vildu þiggja hana þessa. Já, þetta em nokkur tíðindi og merki- legri þar sem bókin er árituð af Guð- brandi sjálfum. Og mér sýnist bandið vera yngra," segir dr. Einar Gunnar. Fátækar kirkjur fá áritað eintak Þannig háttaði til, þegar Guðbrand- ur stóð í sinni umfangsmiklu útgáfu- starfsemi, að kirkjum landsins var gert að taka þátt í útgáfunni og kaupa eintak. Væri um fátækari prestaköll að ræða þá gaf Guðbrandur gjaman ein- tak þangað en þær bibh'ur áritaði hann og var þá um ýmsa fýrirvara að ræða. Þannig hefur hann heimt aftur þessa tilteknu bibh'u sem nú verður boðin upp og gefið Bimi á Völlum. „Hann var alveg einstakur hann Guðbrandur," segir Ragnar Fjalar sem áratugum saman hefur safnað bibhum og er einn okkar helsti sérffæðingur á þessu sviði. „Hann var líka peninga- maður - varð að vera það því biblían er alveg á hans vegum. Hann borgar hana og hann innheimtir." Ragnar Fjalar segir Þjóðminjasafnið eiga merkustu Guðbrandsbiblíuna. „Guðbrandur hafði þann sið, ákvörðun hans og kannski konungsvaldsins, að hver kirkja legði ákveðna upphæð til útgáfunnar og keypti eintak. Bibh'an var metin á 3 kýrverð væri bókin bund- in. Einstaka kirkjur gátu ekki keypt, þar á meðal kirkjan á Hálsi í Fnjóskadal. Þeim kirkjum gefur hann bók og áritar. Hann hefur haft vald til að taka bibh'- una aftur. Ég veit ekki um neina bibh'u þar sem nákvæmlega segir ffá þessu fyrr en þessa. En bibh'an sem fór á Háls, í hana er heilmikið ritað og setur Guð- brandur fram ýmis skilyrði, svo sem ekki megi bera bókina úr kirkjunni." Þó fór nú svo að hún var borin úr kirkju og var það ensk kona sem eign- aðist hana. Var mikið fýrirtæki að heimta hana til baka en hún reyndist afar sanngjöm, enska konan, svo ekki Dr. Einar Gunnar Pctursson Hinrt virti vismdamað ur við Árnastofnun las liæglega ur árituninni sem er með hendi Guðbrands sjálfs:„Þessa bibliu hefeg feget sijra birne a vallum Anno 1588. " Guöbrandsbiblía ;em læpleja fer fyrir minna en fjorar mílljonir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.