Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Page 35
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 35
U2 I fínu formi
ó nýju plötunni sem verö-
\ urað teljast gott eftir 28 ára starf. Það er
kannski ekkert skritið að sveitin hafi náð
að halda þetta svorta lengi út, samstarf-
ið er svo gott að meðlimir sveitarinnar
fara meira að segja saman isumarfri.
Hættip aö reyna á þolrif
aðdáenda sinna
Nýja U2-platan, How To Dism-
antle An Atomic Bomb, sem kemur
út eftir helgi, lak ekki á netið fyrr en
í síðustu viku. Það verður að teljast
nokkuð vel sloppið miðað við það
að ókláruðu eintaki af plötunni var
stolið frá The Edge þegar ljós-
myndatökur stóðu yfir í Frakklandi
í sumar.
Það tók 18 mánuði að vinna
plötuna. Rétt fyrir jólin í fyrra henti
hljómsveitin meirihlutanum af því
eftii sem hún hafði þá tekið upp
með upptökustjóranum Chris
Thomas. Eftir það fékk hún Steve
Lillywhite enn eina ferðina til liðs
við sig og þá fóru hlutirnir að ger-
ast. How To Dismantle An Atomic
Bomb hefur að geyma 11 lög. Síð-
asta plata, All That You Can’t Leave
Behind, sem kom út fyrir fjórum
árum, markaði afturhvarf til tónlist-
arinnar sem þeir spiluðu á níunda
áratugnum, áður en þeir fóru að
gera tilraunir með raftónlist á plöt-
um eins og Achtung Baby, Zooropa
og Pop. Nýja platan er kannski
merki þess að U2-meðlimir séu
endanlega hættir að reyna á þolrif
Stúdíóplötur
U2
m
Boy(1980)
October (1981)1
-TjLWar (1983)
uSrj
~ yn
The Unforgetta-Í^
ble Fire (1984)^.1^
The Joshua Tree (1987)
Rattle & Hum
(1988)
Achtung Baby
(1991)
Zooropa (1993)
Pop (1997)
All That You
Can't Leave Behind
(2000)
How To Dismantle An At-
omicBomb (2004)
aðdáenda sinna með tilrauna-
mennsku. Hún er ekki ólík All That
You Can’t Leave Behind, en samt
eru lögin fjölbreyttari og meira að
gerast í útsetningunum. Með fyrsta
upplagi plötunnar fylgir DVD-disk-
ur sem inniheldur heimildarmynd
og nokkur lög.
Pósturinn gripinn í general-
prufu
Það er ekki einfalt að taka upp
nýja U2-plötu. Það sést ágætlega á
listanum yflr pródúserana sem
unnu að How To Dismantle An At-
omic Bomb. Steve Lillywhite var
aðalpródúser, en auk hans komu
fyrrnefndur Chris Thomas, Flood,
Brian Eno, Nellee Hooper, Carl
Glanville og Jacknife Lee við sögu.
Þetta eru allt skapandi menn sem
fá hugmyndir sem geta breytt lagi
úr góðum grunni yfir í meistara-
verk. U2-meðlimir fara ekki leynt
með þá skoðun sína að það að taka
upp plötu sé fyrst og fremst mikil
vinna: „10% af því að vinna í hljóð-
veri er innblástur, 90% er ná-
kvæmnisvinna og leit að smáatrið-
inu sem breytir öllu. Það er vísinda-
hliðin á starfinu," segir The Edge.
Platan var tekin upp á tveimur
stöðum. f U2-hljóðverinu í Ha-
nover Quays í Dublin og í Suður-
Frakklandi. Eitt af því sem Bob
gerði var að prófa lögin á venjulegu
fólki. Einn daginn spilaði hann t.d.
mismunandi útgáfur af einu laginu
fyrir póstinn sem var að bera út
þann daginn og bað um hans álit.
Annan dag bauðst hann til að keyra
aðdáendur sem héngu fýrir utan
stúdíóið heim með því skilyrði að
þeir hlustuðu á mismunandi mix af
lögum sem áttu að fara á plötuna.
Hann segist með þessu fá annað
sjónarhorn á tónlistina.
Dagfarsprúðir fjölskyldu-
menn
U2 hefur starfað í 28 ár. Fyrsta
smáskífan þeirra kom út fyrir 25
árum. Hljómsveitin varð ein af vin-
sælustu hljómsveitum heims á ní-
unda áraugnum með plötum eins
og The Unforgettable Fire (1984) og
The Joshua Tree (1987) og tókst að
halda vinsældunum á tíunda ára-
tugnum með ffamsæknum og til-
raunakenndum plötum eins og
Achtung Baby (1991) og Zooropa
(1993) og tilkomumiklum og hug-
myndaríkum tónleikum.
U2 hefur aldrei verið mikið
sukkband, en Adam Clayton bassa-
leikari gerði sitt til þess að reyna að
halda lífi í „sex & drugs & rock &
roll-slagorðinu”. Hann sukkaði
lengi vel mikið, varð frægur fyrir að
vera kærasti súpermódelsins Na-
omi CampbeU og missti úr tónleika
í Sydney árið 1993 vegna þess að
hann var of fullur til að spila. í dag
er hann búinn að vera edrú í 6 ár og
er að eigin sögn yfirleitt kominn
undir sæng klukkan hálf tólf á
kvöldin.
Hinir meðlimirnir eru allir fjöl-
skyldumenn. Bono er enn þá með
æskuástinni og á með henni tvær
Ellefta plata U2 kemur út á mánudag-
inn. Það gekk á ýmsu á þeim 18 mánuð-
um sem það tók að vinna hana, en ef
það er eitthvað að marka erlenda tón-
listargagnrýnendur þá er hún fyrirhafn-
arinnar virði og rúmlega það. Trausti
Júlíusson kynnti sér HowTo Dismantle
An Atomic Bomb.
dætur og tvo syni, The Edge á fjórar
dætur og einn son og Larry Mullen
trommuleikari á tvo syni og eina
dóttur. Sannkölluð fjölskyldu-
hljómsveit. U2 er líka samheldnari
en flestar aðrar hljómsveitir sem
hafa náð þessum árafjölda, með-
limirnir fara t.d. á hverju ári saman
í sumarfrí í Suður Frakklandi. Bono
brosir að þessu í nýlegu viðtali:
„Ég meina, hvaða hiljómsveit fer
saman í sumarfrí!” Ekki margar. Á
meðan samkomulagið er svona
gott og plöturnar sem sveitin
sendir frá sér eru jafn frambæri-
legar og How To Dismantle An At-
omic Bomb er engin hætta á öðru
en að U2 starfi áfram.
Tónleikaferðin hefst i mars
Egilshöll sumarið 2005?
Eins og komið hefur fram hefst ný tónleikaferð U2 í Miami 1. mars á
næsta ári. Hljómsveitin mun síðan halda 35 stórtónleika á leikvöngum
vestanhafs áður en hún heldurtil Evrópu þar sem 30 tónleikar eru fyrir-
hugaðir um sumarið. Síðan verður haldið aftur til Bandaríkjanna og aðr-
ir 35 tónleikar haldnír þar og þaðan fer sveitin svo til Japan.
Einstakir tónleikar hafa ekki enn verið staðfestir, né heldur hverjir muni
hita upp á tónleikaferðinni, en írska hljómsveitin Snow Patrol ertalin
koma sterklega til greina og New York glamúrfoandið Scissor Sisters hef-
ur líka verið nefnt.
Orðrómur um að U2 séu á leiðinni til fslands hefur stigmagnast undan-
farna mánuði. Ef hann er á rökum reistur þá er ekki ólíklegt að sveitin
komi hingað annaðhvort á leiðinni frá Bandaríkjunum til Evrópu eða á
leiðinni til baka. Dagsetningar eru ekki heldur komnar á hreint, en það
má skjóta á að ef hljómsveitin kemur hingað verði það annaðhvort með
vorinu eða haustinu. Spennandi. Ætli þeir slái aðsóknarmet Metallica?
Bono bjargar heiminum
Næsti friðarverðlaunahafi
„Ég er ekki ódýr, en ég mæti á
staðinn fyrir ljósmyndarana ef
menn eru til í að gera eitthvað sem
skiptir máli," sagði Bono nýlega í
viðtali. Það vakti nokkra athygli
þegar hann lét mynda sig með
George Bush Bandaríkjaforseta í
fyrra. Það gerði hann eftir að Bush
lofaði að auka fjárveitingu til bar-
áttunnar gegn alnæmi í Afríku um
fimm milljarða dollara, eftir að
Bono fór þess á leit við hann. „Ég
verð að segja að George Bush stóð
við loforð sitt um að auka íjárveit-
ingar til alnæmisbaráttimnar í Aff-
íku. Mér var sagt að þetta mundi
aldrei ganga eftir, en það gerði það
samt.” Hann tekur þó ffarn að hann
tók það ekki í mál að láta mynda sig
með forsetanum rétt fyrir kosning-
ar.
Bono hefur sennilega hitt fleiri
af valdamestu mönnum heimsins
heldur en nokkur annar núlifandi
skemmtikraftur. Hann hefur m.a.
rætt við Bill Clinton, Nelson Mand-
ela, páfann, Kofi Annan, Bill Gates
og Tony Blair og tilgangurinn er
alltaf sá að láta gott af sér leiða.
Hann hefur m.a. verið óþreytandi í
baráttunni fyrir því að auðugustu
þjóðir heims afskrifi skuldir þeirra
fátækustu og menn eru þegar farnir
að spá honum friðarverðlaunum
Nóbels. Bono fékk m.a. að taka í gít-
arinn hans Tonys Blair í eitt skiptið
sem þeir hittust: „Ég varð að spila á
hann af því að ég vildi vita hvort
hann væri rétt stilltur. Ég var búinn
að heyra að hann spilaði á gítar á
hverjum degi og ég vildi vita hvort
það væri satt. Mér fannst það
traustvekjandi að gítar forsætisráð-
herra Bretlands var rétt stilltur.”
Bono & Bush Forseti Bandarikjanna jók
fjárveitingar til baráttunnar gegn alnæmi i
Afriku eftir beiðni söngvara U2.