Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 36
36 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 Helgarblað DV Flugfreyjufélagið var að fá stórglæsilega bók úr prentsmiðjunni sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis þess. Þar kennir ýmissa grasa. í spjalli við tvær úr stjórninni, Ásdísi Evu Hannesardótt- ur formann og Sigurlaugu Halldórsdóttur ritara, kemur fram að starfið hafi breyst talsvert þótt þær þvertaki fyrir að ljóminn, sem löngum hefur stafað af starfinu, fari dvínandi. „Starfið hefur breyst gífurlega mikið en í grunninn er það alltaf hið sama; öryggi og þjónusta. Það sem einkum hefur breyst er að ferðalög voru áður einstakur viðburður, en eru nú meira partur af hversdagslegu lífi fólks,” segir Ásdís Eva Hannesardótt- ir, formaður Flugfreyjufélagsins, sem um þessar mundir fagnar 50 ára af- mæli sínu. í tilefni þess hefur félagið gefið út stórglæsilega og skemmtilega bók, ríkulega myndskreytta þar sem sjónum er beint að hinu merkilega starfi flugfreyjunnar frá ýmsum sjón- arhornum. Velkomin um borð - sögur úr fluginu. Ásdís Eva talar af reynslu en hún hefur starfað sem flugfreyja allt frá ár- inu 1982. Þá liggur eiginlega í loftinu að spyrja hvort ljóminn, sem löngum hef- ur stafað af starfinu, hafi ekki dvínað? Ásdís vill ekki meina að svo sé. „Nú grípur maður bara til tölfræð- innar sem segir okkur að ásókn í flug- freyjustarfið aukist fremur en hitt. Á undanfömum tveimur ámm, þegar Iceland Air hafa auglýst lausar stöður, hafa tvö þúsund manns sótt um. Fólk vill komast í þetta.” Ætlar að fljúga til sjötugs Og Sigurlaug Halldórsdóttir, sem betur er þekkt sem Dillý, bætir um betur, en Dillý er ritari félagsins: „Það er alltaf eitthvað spennandi við flug- ffeyjustarfið en við kjósum að líta svo á að þetta sé starf en ekki fegurðar- samkeppni. í árdaga máttu flugfreyj- ur ekki vera giftar, sumar giftu sig í laumi og reyndu að láta það ekki fréttast. Ég er nú einmitt afrakstur slíks sambands og er stolt af því. Mamma var fyrst til að eignast bam og halda starfinu. Flugfreyjur máttu sem sagt ekki eiga börn og máttu ekki nota gler- augu. En, eins og Ásdís segir, þá fóm menn ekki til útlanda þá lfkt og í dag. Og flugfreyjur komu með bjór og Mackintosh eftir að hafa ferðast til framandi slóða. Og ráðningin mátti ekki vera nema til tveggja ára. Sigurlaug Halldórsdóttir - Dillý Hún er alveg hörð á því aö hinn rómaði kynþokki stéttarinnar sé slst I rénun. Flugfreyjur máttu ekki eldast í starfi! „Nú viljum við kynna okkur sem starfsstétt sem má vinna eins langt fram eftir aldri og aðstæður leyfa. Eg ætla að fljúga til sjötugs.” Flugfreyjur eldast þótt það sjáist ekki Aðspurð segir Ásdís: „ímynd flug- Bókinni fagnað Fiugfreyjur fögnuðu útkomu sinnar ágætu bókar með út- gáfuteiti á fimmtudagskvöldinu. Bókin er sannarlega fjölbreytt. Til að mynda er þar að finna fjölda skemmtisagna úr starfinu og er afnógu að taka. freyjunnar? Harðduglegar og sjálfstæð- ar nútímakonur, svo þetta sé orðað af alkunnri hógværð." Dillý segir þetta töff starf sem krefst líkamlegrar orku og þess að að vera í góðu formi. „Eins og fram kemur í bók- inni er það fyrst núna sem starfið er að verða að ævistarfi. En flugfreyjur þykja og munu alltaf þykja flottar. Það em ekki nema tvö ár síðan einn maður gekk til mín með opinn arminn á Leifs- stöð. Og þar sem hann nálgaðist velti ég því fyrir mér hvort ég þekkti mann- inn. Svo var ekki, en hann tók utan um mig, kysstí og sagði: .Afhverju em allar flugfreyjur svona sætar?” Það er eitt- hvað.” „Já, það er svo sniðugt með okkur að þótt það sjáist ekkd þá eldumst við í ámm talið,” segirÁsdís. Næsti, gjörið Yaris 3ja dyra Avensis Sedan Verðfrá: 980.000 kr. Verð frá: 1.590.000 kr. Einkaleiga Glitnis: Frá 20.650 kr. á mán.* Bílasamningur Glitnis: Frá 28.930 kr. á mán.** Bílasamningur Glitnis: Frá 17.450 kr. á mán.** Eigð'ann eða leigð'ann með aðstoð Glitnis Vorum að fá í hús takmarkað magn af Toyota betri notuðum bílum. Um er að ræða Yaris, Corolla Sedan og Avensis Sedan. Þetta eru allt frábærir bílar sem þú getur eignast eða tekið á rekstrarleigu fyrir milligöngu Clitnis. Gríptu tækifærið því notaður Toyota er næstum eins og nýr. NÆSTI bíllinn þinn gæti orðið betri notaður Toyota! Toyota Kópavogi Sími 570-5070 Toyotasalurinn Reykjanesbæ Sími 421-4888 Toyota Akureyri Akureyri Sími 460-4300 Toyotasalurinn Selfossi Sími 480-8000 Glitnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.