Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Blaðsíða 37
r
I>V Helgarblað
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 37
Árið 2004 er afmælisár en hápunkt-
urinn verður afmælisveisla 30. desem-
ber, sem er stofndagur félagsins. Rúm-
lega 700 flugfreyjur eru skráðar í félagið
en nokkur hluti þeirra er sumarstarfs-
fólk. Bókin hefur verið í vinnslu í eitt og
hálft ár og lofa þær Ásís og Dillý
ritnefridina í hástert og segja hana hafa
unnið frábært starf.
Ásdís Eva Hannesdóttir Formaður félags-
ins segir fiugfreyjur vera að eldast - þó ekki
sjáist það núá þeim.
Coffee, teaor me...
Ákvörðunin um að hafa affnælisárið
veglegt og vekja verðskuldaða athygli á
starfi félagsmanna var tekin árið 2002.
„Ekkert blasti við nema svartnætti
eftir 11. september. En þetta er fram-
tíðarsýn Flugfreyjufélagsins. 11. sept-
ember breytti töluvert miklu og má
segja að sem stéttarfélag erum við að
berjast við breytta mynd flugfélaga,
við arðsemiskröfur og síðan yfirvöld
og allar hinar hertu öryggiskröfur.
Þetta höfum við þurft að takast á við
ásamt öðrum sem starfa í fluginu.
Bókin er liður í þessu. Hún er byggð
upp á vinnu félagsmanna og á tíma-
bili var ekki ljóst hvort þetta yrði
meira en Andrésar Andarblað, mesta
lagi syrpa, en það stefnir allt í að þetta
geti orðið ritröð. Sjáum fyrir okkur að
Frumherjar (flugfreyju-
stétt lárdaga máttu flugfreyj-
ur ekki vera giftar.
síðasta bindið heiti: Velkomin heim,"
segir Ásdís.
Og þær mega með réttu vera stoltar
af bókinni sem er, með fullri virðingu
fyrir sagnffæðilegum ritum, talsvert líf-
legri en gengur og gerist. Og sjónar-
homið er oft óvænt. Þar er að finna
pistil eftir Þorgrím Þráinsson þar sem
hann lýsir því hvemig er að vera giftur
flugfreyju, Gunnar Eyjólfsson leikari
lýsir hinum ánægjulegu ámm sínum
hjá Pan American þar sem hann starf-
aði sem flugþjónn, vísur, flökkusögur,
gamansögur, coffee, tea or me... svo
fátt eitt sé nefnt. Og bókin er til sölu.
„Við emm stéttarfélag, ekki útgáfu-
fyrirtæki, þannig að við höfðum ekki
hugsað út í það hvemig bókinni er
komið í búðir. Þannig að fyrst um sinn
má einungis nálgast bókina á skrifstofu
okkar að Borgartúni 22,” segirÁsdís.
Illræmt starf
Dillý telur að fólk hafi án efa áhuga
á að vita hvað felst í starfi flugfreyja. „í
bókinni em fjölmargar skemmtilegar
sögur úr fluginu og sagt af því hvemig
við upplifum þetta skemmtilega og
ævintýralega starf.”
En starSö hefui á sér eilítiö ill-
ræmdan blæ, samanber hiö fræga at-
riði í Sopranos-þáttunum þarsem flug-
freyjur voru heldur betur til í tuskiö,
sem og í sjónvarpsþáttunum Mile
High?
„Ég var einmitt spurð að þessu
sama um daginn og þá svaraði ég:
Sko, ég er búinn að vera í þessu starfi
í 22 ár og ekki er ég í þessu fyrir laun-
in. Auðvitað er ég í þessu starfi fyrir
eiturlyfin, stoppin, fylleríin og flug-
mennina...
Nei, vitaskuld er þetta þvílík
skrumskæling á starfi flugfreyjunnar
en kjarninn í starfinu er öryggisvarsla
og þjónusta. Við erum þarna fyrst og
fremst til að grípa í taumana komi
eitthvað uppá, enda þjálfaðar til þess.
Ég hef voðalega lítið orðið vör við
þetta sem vísað er til í þessum
krassandi þáttum. Ég held til dæmis
að það sé ekki meira um ástarsam-
bönd í þessu starfi en öðrum. Ég held
reyndar að aðskilnaðurinn skerpi ást-
ina og hjónabandið. Maður gerir þá
meiri rómans úr því þegar maður er
heima.”
jakob@dv.is
Toggi brýtur saman g-
strengi og sokkabuxur
Þorgrímur Þráinsson er giftur flugfreyju
og hann skrifar grein f bókina þar sem
hann lýsirþeim eiginleikum sem eigin-
maður flugfreyju þarfað búa yfir eigi sá
hinn sami ekki að enda sem fyrrverandi
eiginmaöur flugfreyju. Og efmarka má
Þorgrím á hann ekki sjö dagana sæla:
- Erhvorki morgunfúti né morgunsvæfur.
- Getur ekki verið í starfi sem krefst mikill-
ar viðveru, ábyrðar eða
eigingirni.
-Þarfhelst aöeiga
þrjár mæður sem
eruekkjureða
lika einveran
vel.
- Kann að greiða
dætrum slnum,
setja I tlgó, búa til
fléttur eöa tagl. Og
dekstra.
- Hefur gott nef fyrir skólanesti (best að
útbúa að kvöldi svo það flækist ekki fyrir
hafragrautnum, lýsinu, morgunmatnum
og mútunum).
- Straujar flugfreyjuskyrtur án þess að I
þærkomi brot.
-Ermeð smáar hendur svo aö fingurnir
komist undir handfangið á skóburstan-
um svo frúin fari I hreinum skóm i loftið
(til að hreinsa hlandblaut klósett).
- Hefurþolinmæði og hugmyndaflug til
að brjóta sama g-strengi og sokkabuxur.
- Vaknar klukkan fimm á veturna til að
hita upp bílinn og skafa snjóinn affram-
rúðunni (mokar innkeyrsluna efsvo ber
undir).
- Rýkur út á typpinu klukkan 7.26 á
sunnudagsmorgnum til að bera inn
cargo-ið (með very heavy miða) frá
Bandarikjunum.
- Er til i tuskið hvenær sem er, skilyrðis-
laust (breyttist eftir auglýsingaherferðir
lcelandair).
- Er í„góðu sambandi" við Ragnar svo að
heimilislifið fari ekki í rúst.
- Kann sameiginlegu skrána utanbókar til
að geta svarað öllum „skiptibeiðnum“ eft-
ir hentugleika þótt frúin sé ekki heima.
- Fær aftur áhuga á Spiderman, Superm-
an, Godzilla og öðrum ævintýrasögum.
- Er með fullan haus af einskisnýtum upp-
lýsingum.
www.toyota.is
svo vel
Biðin eftir betri notuðum Toyota er á enda
Yaris 5 dyra Corolla Sedan
Verð frá: 1.010.000 kr. Verð frá: 1.390.000 kr.
Einkaleiga Glitnis: Frá 22.990 kr. á mán.* ** Einkaleiga Glitnis: Frá 27.590 kr. á mán.*
Bílasamningur Glitnis: Frá 18.390 kr. á mán.** Bflasamningur Glitnis: Frá 25.090 kr. á mán.**
BETRI NOTAÐIR BÍLAR TOYOTA
* m.v. 24 mán.
**m.v. 100% lán í erlendri myntkörfu, 4,2% vextir, í 60 mán.