Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Side 40
40 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 Helgarblað DV Idolstjarnan Karl Bjarni Guðmundsson, eða Kalli Bjarni eins og allir þekkja hann, hefur svifið á skýi frægðarinnar síðan hann sigraði keppnina. Kalli Bjarni hefur verið ótrúlega eftirsóttur og nú er fyrsta platan hans komin út. Óhætt er að segja að líf hans hafi umturnast, eða svona næstum því. Heima í Grindavík er lítið breytt; þar á hann yndislega fjölskyldu sem hefur aldrei verið samrýmdari. Kalli Bjarni og Alla kona hans ræða um lífið eftir að hann varð frægur, fyrirhugað brúðkaup þeirra og auðvitað kjaftasögurnar sem Kalli hefur alls ekki sloppið við. Rétt ár er síðan þjóðin horfði föstudag eftir föstudag á nýja stjörnu fæðast. Fylgdist með því hvernig knár ljóshærður piltur óx með hverri raun. Hvernig hann söng sig í gegnum hvert nálaraugað af öðru og stóð fyrir rest uppi sem sig- urvegari. Og þjóðin tók hann upp á sína arma og nafn hans var á hvers manns vörum, allt frá börnunum á leikskólanum til eldri kynslóðarinn- ar á elliheimilunum. Allir þekktu hann. „Já, þetta voru svakaleg viðbrigði og ég man þegar ég horfði á fréttir í sjónvarpi daginn eftir, þegar sýnt var frá því hvernig Grindvíkingar tóku á móti mér, þá hugsaði ég: Vá þetta er allt vegna mín, og það var eins og ég kæmi niður á jörðina. En það var gaman; alveg ofsalega gam- an á meðan á því stóð," segir Karl Bjarni Guðmundsson brosandi og neitar því ekki að þessi tími hafi einnig verið erfiður. Kona Kalla Bjarna, Aðalheiður Hulda Jónsdóttir, tekur undir og segir að líf þeirra í raun hafa tekið u- beygju þetta ár. „Allt hefur þetta haft mikil áhrif á líf okkar og alls ekki nei- kvæð. Þvert á móti jákvæð," segir hún feimnislega og bætir við að þau hafi aldrei verið eins samrýmd og h'ði nú betur saman en nokkur sinni fyrr. Hann kinkar kolli og segir: „Já, samband okkar hefur styrkst mjög á þessu ári. Ekki það að okkur hafi ekki liðið vel áður en samt, við höf- um verið mikið saman og kynnst upp á nýtt við nýjar aðstæður. Það hefur gert okkur gott," segir hann og lítur á konu sína. Kynntust á Staðarfelli Þau kynntust fýrir sex árum. Kalli Bjarni stóð þá krossgötum, var að rísa upp eftir nokkur slæm ár og var ekki viss um hvaða stefnu hann myndi taka í lífinu. „Þá kynntist ég henni og sá tilgang með því að snúa lífi mínu við. Með öllu var ég loks til- búinn að eignast fjölskyldu og slaka á. Ég sé ekki eftir því eina mínútu enda hefur gengið vel hjá okkur," segir hann og lítur ástúðlega til hennar. Hann bendir á að þegar hann loksins hitti réttu konu hafi ekki verið aftur snúið. Þannig er hann, þegar hann tekur ákvörðun og lofar einhverju stendur hann við sitt. „Alla átti tveggja ára stelpu, var jafn gömul mér og ég átti aðra stelpu sem rétt var eins árs," heldur Kalli Bjarni áffam. Þau líta hvort á annað og svara ekki strax þegar þau eru spurð hvar þau hafi fýrst hist. Það er Alla sem tekur af skarið og segir það ekkert launungarmál. „Við kynntumst á Staðarfelli í Dölum. Yndislegur stað- ur,“ segir hún og Kalli Bjarni jánkar. „Við skiptumst á símanúmerum og hittumst fljótlega eftir að við vorum bæði komin heim. Þetta var í ágúst eða september og ég var fluttur inn til hennar í janúar. Þar hefur mér lið- ið vel og æda mér að vera áfram," segir hann hlæjandi. Þau byrjuðu að búa í Grindavík en Kalli tók hana með sér til Vopna- fjarðar. „Það var agalegur tími og við vorum fljót að flytja aftur til Grinda- víkur," segir Alla, sem þar er fædd og uppalin og allt hennar fólk býr þar. Kalli segir að það hafi verið rétt ákvörðun að fara aftur suður. „Ég kann mjög vel við mig í Grindavík og það er ákveðið öryggis- net að búa í nálægð við fólkið sitt. Alla hefði aldrei þrifist almennilega fyrir austan," segir hann og bætir við að hann hafi hvort eð er sjálfur verið alinn upp að mestu úti á landi. Grindavík hefði því vel fallið inn í hans lífsmynstur. Alla tekur undir og bætir við: „Já, stutt til Reykjavíkur og í allt sem maður þarf. í Grindavík er gott að ala upp böm og þar er alltaf hægt að fá vinnu," bendir hún á. Kallir Bjami tekur undir þetta: „Já, þar fá allir vinnu sem vilja. Mér er næst að halda að þeir sem ekki fá vinnu vilji ekki vinna." Lífið hefur tekið u-beyju Þetta síðasta ár, ár breytinganna, hefur verið skemmtilegt. Þau em bæði sammála um að þau hafi lært mikið á þessum tíma og þroskast. „Það hefur verið ofsalega mikið að gera. Við fómm út í að breyta allri íbúðinni sem við keyptum og það var svakaleg vinna. Á sama tíma var ég að finna mig og þróa sem tónlistarmann. Það var því oft lítið sofið í sumar," segir Kalli Bjarni sem er sáttur við þá stefnu sem ferilinn hefur tekið. „Platan kom út fyrir nokkm og það er mikil vinna að fylgja henni eftir. Ég er á þeytingi um allt en það er einmitt þetta sem ég vil gera. Það var afitaf draumurinn að koma mér áffam á þessu sviði," bendir hann á. Kalli Bjami neitar að það fljótí allt í peningum nú þegar hann er orðinn þekktur. „Nei, það er langur vegur þar frá. Á þessu ári hef ég sama og ekkert verið á sjó; aðeins unnið að tónlistinni. Við settum okkur líka það markmið að gera íbúðina þannig úr garði að við væmm ánægð og það hefur kostað sitt." Alla bendir á að allt frá því þau kynntust hafi Kalli Bjarni verið að vinna sig út úr skuldahala. Hann jánkar og segist hafa verið með ónýta kennitölu sem hann hafi lagt mikið upp úr að koma í lag að nýju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.