Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Page 41
DV Helgarblað LAUGARDAOUR 20. NÓVEMBER 2004 4 j „Það hefur mér tekist og það er æð- isleg tilfinning að vera laus úr þeim Qanda. Nú get ég borið höfuðið hátt, með allt mitt á hreinu í fyrsta sinn í mörg ár.“ Alla tmdvarpar og leggur áherslu á að það hafi verið stór áfangi þegar það tókst. „Peningarnir koma inn öðruvísi en áður. Það hafa komið dagar í sumar þar sem við höfum þurft að láta skrifa mjólkina en næsta dag farið og keypt sófasett," segir hún hlæjandi. Vinna saman í beitningum Alla brosir segir að nú séu þau á nokkuð grænni grein en svo sé að sjá hvernig platan komi út. Alla læt- ur ekki sitt eftir liggja og vinnur við beitningu og stundum fer Kalli Bjarni með henni og þau beita nokkur bjóð á kvöldi. „Það hefur verið fínt og ég kann ofsalega vel við vinnuna,“ segir hún og neitar að það sé kalt. „Hve fljót er ég? Ætíi ég nái ekki bjóðinu á 1.45 en fljótustu kallarnir eru klukku- tíma með bjóðið. Ég er nú rétt að byrja og á eftir að þjálfast," segir hún feimnislega en hún er nokkuð frjáls og getur tekið frí þegar hún þarf vegna barnanna og þarf ekki að mæta eldsnemma á morgnana. „Það er hörkustuð í beitninga- skúrnum og fínir kallar sem ég vinn með. Við ætíum meira að segja að fara saman á jólahlaðborð," segir hún glaðlega. Nú er nýtt Idol hafið og þau fylgjast með. Kalli Bjarni ætlar að spá sem minnst um væntanlega Idolstjörnu. „Ég taldi mig sjá hana í byrjun en minn maður er fallinn út,“ segir hann hlæjandi og bendir á að það sé alls ekki hægt að segja neitt fyrr en í átta liða úrslitunum. Alla neitar ekki að Idolið nú minni á tímann í fyrra þegar Kalli var í eld- línunni. „Það var erfiður tími; ofsaleg spenna í gangi,“ segir hún. „Já, ég held að Alla hafi upplifað þetta allt öðruvísi en ég. Ég var í eldlínunni og það komst ekkert annað að; ég hugsaði bara um það sem ég var að gera. Æfði mig stíft og allt snerist í kringum mig. Fyrir Öllu var þetta erfiðara." Afbrýðisöm? Nei, hún vill ekki viðurkenna það. „En ég var óörugg og hrædd þegar þetta helltist yfir okkur. Þetta gerðist svo hratt. Allt í einu átti þjóðin manninn minn. Það vissu allir allt um hann, eða töldu sig vita allt,“ rifjar hún upp. Allla óörugg og hrædd Kalli tekur undir og bendir á að það hafi ekki verið neitt undarlegt við það að Alla yrði hrædd. „Ég var ekki hrædd um hann, ekki þannig. Ég vissi að hann færi ekki að daðra við einhverjar stelpur. Þetta var bara svo einkennilegur tími. Ég held að mér hafi þótt óþægilegt hvernig allir eignuðu sér hann. Svo sat ég bara þarna og fannst ég svo lítil áhrif hafa á þetta allt saman," segir hún og beinir orðum að manni sínum. Hann kinkar kolli og segist skilja fullkomlega hvað hún sé að tala um og bætir við: „Það var dálítið skrýtin tilfinning að vera einn í öllu fjölmiðlafárinu, ekki með Öllu, en við höfðum alltaf verið saman í öllu.“ Alla jánkar og grípur fram í og segir að auðvitað hafi þetta aðeins verið í byrjun. „Hún þurfti ekki að óttast um mig í eina mínútu og ég held að Alla viti hvar hún hefur mig. Ég er svo trygg- ur í eðli mínu,“ segir hann hlæjandi og hún játar að það sé rétt. Eftir sigurinn segir Kalli að kjaftagangurinn hafi farið af stað. „Mér þótti það ógurlega leiðinlegt og skildi bara alls ekki hvers vegna fólk var að segja ósatt. Jú, ég á mína fortíð eins og annað fólk. Bernsku- brek sem vafalaust fylgja mér. Það er hins vegar ekkert til að skammast sín fyrir og ég geri það alls ekki," segir hann alvarlegur. „Ég veit samt ekki hvers vegna fólk þarf alltaf að velta sér upp úr öllu því neikvæða. Hve mörg erum við ekki sem eigum eða áttum tíma- bundið erfitt. Eg var á því skeiði að ég vissi ekkert hvað ég vildi og hvert ég ætlaði. í meðferð var manni kennt að ef maður svo mikið sem smakkaði einn sopa af víni, væri maður fallinn og myndi byrja þar sem maður endaði. Auðvitað gerði maður það ef manni varð á. Það var búið að segja manni að þannig færi það og maður trúði því svo sterkt að annað kom ekki til greina," segir hann alvarlegur og veit betur núna. „Ég veit um svo marga sem hafa átt í tímabundnum vanda og menn telja að það þýði að þeir verði ræfl- ar áfram út lífið og beri einhvern kross," segir hann og er mikið niðri fyrir. Hefur þroskast með allri slæmu reynslunni „Menn verða hins vegar að átta sig á því að maður þroskast og sér að það eru til aðrar leiðir, kona, börn og heimili. Þá freistar hitt ekki lengur," segir hann og talar af reynslu. ,Æ, ég veit ekki hvort ég eigi að hætta mér út í einhverjar útskýringar í þessa átt. Menn vilja misskilja alla hluti og lesa svo allt annað úr því sem maður segir. En það sem ég er að reyna að segja er að þetta skiptir ekki máli lengur. Það sem máli skiptir er að ég er ánægður með minni konu og börnum og það sem er að baki er ekki annað en partur af lífi mínu; reynsla sem ég nýtti mér vel þegar mér tókst það. Ég hef það fram yfir hina sem vafðir hafa verið inn í bómull allt sitt líf. Þetta er ekkert flóknara en það. Það hvarfar ekki að mér að kasta óþægilegri reynslu aft- ur fyrir mig og láta sem hún hafi aldrei verið þarna; þá byggi ég held- ur ekki að henni og hefði ekki þann þroska sem ég hef öðlast; einmitt hennar vegna," segir hann og hristir höfðuð. „Það eru því miður svo margir sem halda að heimurinn sé bara hvítur og svartur. Lífið er ekki bara ekki svo einfalt. Fólk ætti að at- huga það," segir hann sáttur og glaður við sitt. „Hvernig ætti annað að vera, að hafa verið svo lánsamur fá að ganga í gegnum allt; bæði það slæma og það góða sem hefur hent mig," segir hann og tekur utan um Öllu. Hún lítur brosandi á hann og tek- ur undir að þetta sé einmitt mergur málsins. „Ég vildi ekki hafa Kalla Bjarna öðruvísi. Sæl með hann eins og hann er; hann hefúr bætt mig og af honum hef ég lært að vera ekki svona bláeygð og auðtrúa eins og ég átti til,“ segir Alla og hann klappar henni laust á bakið og tekur bros- andi undir. Féll á knén og bað hennar með sólina í bakið „Við ætíum að gifta okkur; ætíuð- um að gera það í sumar en höfðum ekki tíma," segir Kalli Bjarni og minnist þess þegar hann fór á skelj- arnar úti í Noregi og bað hennar. Alla hlær að minningunni og segir hann hafa komið sér í opna skjöldu. „Ég vissi ekki hvað hann var að fara að gera. Við vorum í heimsókn hjá pabba hans og löbbuðum upp að fallegu vatni skammt frá. „Stattu þarna og ekki hreyfa þig,“ kallaði hann til mín og ég stóð eins þvara og horfði á hann." „Já og sólin skein á vatnið og hún stóð beint fyrir aftan þar sem hún speglaðist. Ég vildi horfa á hana þannig þegar ég bæði hana að giftast mér,“ rifjar Kalli upp hlæjandi. Þau hlæja saman og hún segist ekki hafa vitað fyrr en hann féll niður á kné og bað hennar. ,Æ þetta var svo sætt hjá honum en ég vissi ekkert. Hann var búin segja fólkinu hvað hann ætíaði að gera og þetta vissu allir nema ég þar tíl á þessari stundu," bendir Alla á og segist ekki hafa dregið hann á svarinu; sagt já um leið. „Við getum kannski gift okkur um áramótin," spyr hann en Alla neitar. „Það er of stutt þangað til og svo er skemmtilegra að giftast þegar gott er veðrið," en hann stingur upp á páskum. „Hvenær sem það verður þá ætíum við að láta verða að því fljótlega," segir hann brosandi. Gott að fá að rífa kjaft á sjón- um og klæmast við stákana Þegar umstangið í kringum plöt- una er að baki ætíar Kalli Bjarni aftur á sjóinn. „Ég er farinn að sakna þess að vera á sjó og mig langar til að komast á fiystitogara í vetur. Ekki til að vera, kannski nokkra túra og slaka á. Mér veitir ekki af,“ segir hann og leggur áherslu á að það sé honum nauðsynlegt. „Mér h'ður vel á sjó, í því and- rúmslofti sem þar þrífst. Fá að rífa kjaft og klæmast með strákunum, finna sjávarlyktina og taka líkamlega á. Mér er þetta í blóð borið, hef aldrei gert neitt annað af viti fyrir utan tónlistina," segir hann og bendir á að það megi enginn mis- sldlja að draumurinn hafi aUtaf verið að fást við tónlist eingöngu. Sjórinn kalli samt. AUa fitjar upp á nef sér og segist ekki vUja hann á sjó aftur. „Þetta hef- ur verið yndislegt að hafa hann heima aUa daga. Fara að sofa með honum á kvöldin og vakna við hlið hans á morgnana. Lifa eðlUegu heimilislífi í stað þess að vera alltaf ein,“ segir hún og rifjar upp að stundum hafi hann verið svo lítið heima að hún hafi orðið feimin við hann. „Það var rétt að rjátíast af mér þegar hann fór aftur. Nei, ég vU hafa hann í landi. En ég skU hans þörf fyr- ir að fara á sjóinn og set mig ekki gegn því. Bara ef þetta verður ekki aftur eins og það var,“ segir hún og hristir höfuðið. Frægðin hefur þroskað okkur Þau segjast bæði vera heima- skær. Finnst gott að vera útaf fyrir sig með börnin. „Við eigum góða vini sem koma og við förum tU þeirra. „Já, það hefur komið vel í ljós þetta síðasta ár hverjir eru vinir og hverjir ekki," segir KaUi Bjarni með áherslu. „Þannig var það í fyrstu að aUir vildu eiga mann en svo greindust þeir frá sem ekki höfðu áhuga á mér eins og ég var, bara nafninu. Heima í Grindavík þekktu mig náttúrulega allir og þeir breytt- ust ekki neitt. Það voru hinir en ég kem ekki sár frá þeirri reynslu, aUs ekki.“ Þau eru sammála um að frægðin hafi ekki breytt þeim og enn séu skuggahliðar hennar fár. „Við höfum gaman af því þegar litíu börnin veita mér athygli og það kemur ekkert við mig í fjölmenni að aUir horfi á mig og jafnvel heUsi. Ég heUsa bara á móti og hef gaman af þessu." AUa tekur undir en bætír við að þau hafi í fyrstu verið dálítið ber- skjölduð fyrir gróusögum. KaUi átti að vera hér og þar, í dópi og skUinn, kominn með nýja og hvaðeina. „Ég átti dálítið erfitt með að taka þessu fyrst. Eins þegar fjölmiðlar voru ósanngjarnir og voru með eitthvaí* sem ekki var fótur fyrir og ég vissi ekki einu sinni hvaða tUefni voru fyrir buUinu,” bendir hann á. Þau segjast í fjölmiðlafárinu hafa lært hverjum megi treysta og hverjum ekki og Kalli Bjarni segist nú passa sig betur á því hvað sé haft eftir hon- um. Tengdó passar börnin Eins og fram hefur komið ólst KaUi Bjarni upp í Grundarfirði hjá ömmu sinni. „Þar var yndislegt að. vera og ég átti dásamlega æsku þar. Amma var mér mjög góð en þegar ég komst á unglingsárin fór hún að þurfa meira fyrir mér að hafa. Mamma hafði það orðið gott og ég kom beint af mölinni á gúmmítútt- unum og á malbikið í Neðra Breið- holti. Það var svakaleg breyting og ég hafði ekki gott ef þeim mikla um- snúningi á svo viðkvæmum aldri. Pabbi bjó í Noregi og ég hef li'ka verið hjá honum og svo á ég systkini. Ég er í góðu sambandi við aUa mína Qölskyldu sem staðið hefur þétt við bakið á okkur þetta ár,“ segir hann og bætir við að mamma hans hafi gefið honum kukkugrip sem hann hafi verið með um hálsin aUan tím- ann. „Ég er sannfærður um að harm, virkaði og tók oft um hann þegar ég stressaðist upp. En mamm var dug- leg við að stappa í mig stálinu og fá mig til að trúa að mér tækist þetta. Þannig stuðningur er ekki iítils virði en ég býst við að hún geri sér ekki grein fyrir hvað það skiptir mann miklu máli,“ rifjar hann upp. Síðan má ekki gleyma tengdaforeldrunum í Grindavík sem hafi reynst þeim ofsalega vel og lítur tU ÖUu. „Já, mamma ogpabbi hafa staðið með okkur, passað börnin fyrir okk- ur og í aUt sumar, á meðan við gerð- um upp íbúðina, bjuggum við hjá þeim," segir hún og KaUi bendir á að AUa sé alin upp við meiri staðfestu en hann, hjá góðum foreldrum. Yngst þriggja systkina og eina stelp- an. Amma klæddi sig upp og horfði á Idolið „AUt þetta fólk hélt utan um mig í keppninni og mætti tU að hvetja mig áfram. Amma sat heima og horfði á sjónvarpið og klæddi sig upp í hvert sinn fyrir Idolið. Hún sat í sínu fín- asta skarti og horfði á litla strákinn sinn og var ógurlega stolt. Því þegar aUt kemur tíl aUs erum við bara venjulegt fólk sem er ekki á hverjum degi í sjónvarpi. Nú fylgist ég með og hef mjög gaman af og við megum (Framhaldá ^næstusíðu j Á fæðinga- deildinni með Maríus Hamingju- samur og lifið framundan, án þess að gruna hvad fratiðin væri i skauti sér. Dætur Kalla Bjarna og Öllu sem þau áttu fyrir Sigriöur Elma og Súsanna Margrét. Það er ekki nema eitt ár á milliþeirra og eru þær hinir mestu mátar. Daginn eftir bónorðið Fal- [ legt stöðuvatn og sólsetur var falleg umgjörð fyrir bónorð Daginn eftir mynduðu þau staðinn sem Kalli valdi til að biðja kærustunnar. áfíltUW Ætlumaðgifta okkur næstunni Þau trúlofuðu sig 1 Noregi fyrir nokkrum árum þar sem Katti lagðis hnén og bað hennar. Alla dió hann ekki á svarinu. _ *. éSM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.