Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Blaðsíða 55
DV Siðast en ekki síst
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 55
Bryggjan
fyllti mælinn
Sagt var ffá skyndilegri
uppsögn Árna Þórðarsonar
skipstjóra á Baldvin
Þorsteinssyni í DV í
gær. Árni vildi ekki
tjá sig um uppsögn-
ina við DV en ör-
uggar heimildir
blaðsins herma að
ástæða uppsagnar-
innar sé ásiglingÁrna
bryggjuna í Neskaupstað
fyrr í mánuðinum þar sem
tugmilljóna tjón varð, að
því er haldið er fram, vegna
mannlegra mistaka. Ámi
var sem kunnugt er skip-
stjóri Baldvins þegar skipið
strandaði í Skarðsfjöru
snemma á þessu ári.
Útsvarið enn
í botni
Bæjarstjórn Fjarða-
byggðar samþykkti á
fundi sínum á fimmtu-
dag að tillögu Guð-
mundar Bjamasonar
bæjarstjóra, að út-
svarsprósenta í bæjarfél-
aginu fyrir árið 2004
skyldi standa óbreytt frá
því sem nú er, 13,03 %.
Er sú prósentutala hæsta
leyfilega útsvarsprósenta
og hefur hún verið svo
frá því bæjarfélagið varð
til við sameiningu
þriggja sveitarfélaga í eitt
árið 1998.
Losti í
sundlaug
Helgi á Tálknafirði
verður tileinkuð vellíðan
og menningu. Dagskráin
hófst í gærkvöldi klukkan
22 í sundlaug þorpsins
með svokölluðu „kósí
kvöldi“. Fréttavefurinn
bb.is hefur eftir Ingólfi
Kjartanssyni, eins aðstand-
enda hátíðarinnar, að gest-
um laugarinnar verði boð-
ið upp á „lostafullar" veit-
ingar við ljúfa og fallega
tónlist. Einungis þeir sem
mæta fá upplýst í hverju
lostinn er fólginn. Megas
og Súkkat munu halda
tónleika á laugardag í
Dunhaga. Vonast eftir
góðri þátttöku Tálknfirð-
inga og annarra Vestfirð-
inga sem noti tækifærið til
að afstressa sig fyrir jólin.
Ferðatöskur stórstjörnunnar Harrys Belafonte týndust í flugi hingað til lands í
fyrradag. Fyrir bragðið þurfti að fara með Harry til Sævars Karls í Bankastræti
þar sem kappinn klæddi sig upp og bauð í framhaldinu Sævari Karli til New York
með frekari klæðskurð í huga.
Harry Belalonte týndl töstaaun
- Smrar Karl klædd haan nnn
„Sem betur fór týndi hann tösk-
unum,“ segir Sævar Karl, klæðskeri
og tískukaupmaður, sem fékk góðan
gest í búðina til sín í fyrradag. Stór-
stjarnan Harry Belafonte stóð allt í
einu inni á gólfi hjá honum í versl-
uninni í Bankastræti og þurfti allt.
Nýkominn til landsins á vegum
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
og hafði týnt töskunum sínum. Með
öllum fötunum í.
Drakk Egils-kristal
„Belafonte er skemmtilegur í við-
kynningu og fitillátur eins og allir
sannir listamenn. Hann sat hjá okk-
ur lengi og drakk expresso og ókjör-
in öll af Egils-kristal," segir Sævar
Karl sem lét þó ekki þar við sitja og
seldi stjörnunni fiullt af fötum.
Belafonte verður hér á landi fram á
sunnudag, dagskráin þétt og hann
þarf því að hafa eitthvað til skipt-
anna. Svo ekki sér minnst á að
Belafonte kemur fram í þætti Gísla
Marteins í Ríkissjónvarpinu annað
kvöld: „Þar verður hann í fötum frá
mér,“ segir Sævar Karl hróðugur.
í toppformi 77 ára
Harry Belafonte keypti sér jakka-
föt, frakka, trefla, hanska og fleira
„Hann hefur svo góð-
an smekk og kann að
versla, enda ólst hann
upp í Hollywood og
var á tindi ferils síns
þegar föt voru föt og
efnin skiptu máli."
hjá Sævari Karli sem ekki vill gefa
upp fyrir hversu háa fjárhæð kapp-
inn verslaði. Miðað við verðlag í
verslun Sævars Karls í Bankastræti
má varlega áætía að Belafonte hafi
keypt föt fyrir hátt í milijón á meðan
á viðdvölinni stóð. „Svo kom hann
aftur í gærmorgun og vildi meira,"
segir Sævar Karl sem getur ekki ann-
að en dáðst að líkamlegu atgervi
söngvarans sem smellpassaði í allt
beint af rekkanum þó orðinn sé 77
ára. „Hann er í ótrúlega góðu formi
miðað við aldur," segir Sævar Karl.
Gullið tilboð
Harry Belafonte og Sævar Karl
náðu vel saman í Bankastrætínu
sem sést best á því að Harry bauð
Sævari að heimsækja sig til New
York og halda þar áfram að klæða sig
eftir nýjustu tísku. Er Sævar Karl ekki
frá því að hann kunni að þiggja boð-
ið. Algengt sé að stórstjömur heims-
ins séu með sína eigin klæðskera á
launum og hann gæti vel hugsað sér
að verða klæðskeri Harry Belafonte:
„Hann hefur svo góðan smekk og
kann að versla, enda ólst hann upp í
Hollywood og var á tindi ferils síns
þegar föt vom föt og efnin skiptu
máli," segir Sævar Karl.
Líklega tryggður
Með Harry Belafonte í
verslunarferðinni til Sævars
Karls vom þeir Júlíus Vífill
Ingvarsson, fyrmm borgar-
fulltrúi og Einar Benedikts-
son, fyrmm sendiherra.
Báðir em þeir í stjórn UN-
ICEF; Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna á ís-
landi:
„Þetta er stórkostíegur
maður en við skiptum
okkur ekki af fatakaup-
um hans hjá Sævari
Karli," segir Júlíus Vífill.
„Hann hlýtur að vera
tryggður fyrir þessu."
Harry Belafonte í fötum frá
Sævarj Karli Maðursem kann
að klæða sig og bauð Sævari
Karli heim tilsin tilNew York
með frekari fatakaup ihuga.
Schaefferinn var í Mosfellsbæ en ekki á lögheimili sínu í Reykjavík
Hundaeftirlitsmaður skammaður fyrir sumarbústaðarhund
Hundaeftirlitsmaðurinn Jón Þór-
arinn Magnússon verður að una
áminngu yfirmanns síns hjá Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu Reykja-
víkur fyrir að halda rangt skráðan
hund á heimiii sínu. Héraðsdómur
Reykjavíkur felldi á hinn bóginn úr
gildi áminningar sem Jón Þórarinn
fékk fyrir meinta óhóflega notkun á
farsíma Umhverfisstofu og fyrir að
hafa farið í frí án samráðs við yfir-
manninn.
Jón Þórarinn sagði að vegna al-
varlegra veikinda á heimili einu í
Reykjavflc hefði hann tekið að sér
þýskan fjárhund sem þar var skráð-
ur til heimilis. Hundinn hafi hann
ekki haldið á lögheimili sínu í
Reykjavík heldur í frístundahúsi í
Miðdalslandi í Mosfellsbæ. Hann
hafi spurst fyrir um það hjá fram-
kvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis hvort rétt væri að
sækja um skráningu hundsins í frí-
stundahúsið þar sem það væri ekki
heilsársbústaður.
Jón Þórarinn segir það ekki hafa
verið ásetning sinn að brjóta reglur
um hundahald. Að auki geti það sem
hann taki sér fyrir hendur í sínum
eigin frítíma ekki verið grundvöllur
áminningar í starfi.
Umhverfisstofa taldi það með
öllu ósamrýmanlegt og ósæmandi
starfi Jóns Þórarins sem opinbers
hundaeftirlitsmanns að halda rangt
skráðan hund í tvö ár.
Héraðsdómur Reykjavíkur sagði
ljóst að Jón Þórarinn hefði brotið
samþykktir um hundahald í Mos-
fellsbæ:
„Sú háttsemi hundaeftirlits-
manns að halda hund án þess að
fara að fullu eftir reglum verður ekki
skilin frá starfsskyldum hans," sagði
héraðsdómur og féllst á ofangreint
sjónarmið Umhverfisstofu.
Schaeffer Þýskur fjárhundur er
orðinn myllusteinn um háls
hundaeftirlitsmanns í Reykjavík.
*
VALIN BESTA
UNGLINGASAGAN
í loftinu lýsa stjömur fékk
Augustverðlaunin 2003 sem
í Svíþjóö ganga næst hinum virtu
Nóbelsverðlaunum.
Öllum gagnrýnendum kemur
saman um að sjaldan eða aldrei
hafi verið skrifuð áhrifameiri
unglingabók en höfundurinn,
Johanna Thydell,
er aðeins 24 ára gömul.
Verðlaunabók sem lætur
engan ósnortinn
Karln MAeien
VALIN BESTA
GLÆPASAGAN
Týnd eftir Karin Alvtegen fékk
Glerlykilinn 2000 sem besta
norræna glæpasagan. Söguþráðurinn
er frumlegur og fléttan óvenu snjöll.
Forsenström er utangarðsmanneskja.
Einn daginn er hún á röngum stað
á röngum tíma.
Maður er myrtur á hrottalegan hátt.
Grunur fellur á Sibyllu og hún
leggur á flótta. En er hún ^
morðinginn? A
Mögnuð verðlaunabók. BÓKAÚTGÁFAN HÓlar