Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Qupperneq 59
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
Austurbyggð
vill sameinast
Sveitarstjórn Austur-
byggðar, sem varð til við
sameiningu Búða- og
Stöðvar-
hrepps
fyrir rétt
rúmu
ári, hefur
ákveðið
að gefa
íbúum kost á því að kjósa
um sameiningu sveitarfé-
lagsins við Fjarðabyggð,
Fáskrúðsfjarðarhrepp og
Mjóafjarðarhrepp. Hefur
sveitarstjórn Austurbyggðar
þó þann fyrirvara á kosn-
ingunni, sem kemur í kjöl-
far tillaga félagsmálaráðu-
neytisins, að fjármagn fáist
til kynningar og kosning-
anna úr rflcissjóði.
Slegið á putta
héraðsdóms
Hæstiréttur vísaði í dag
kröfu nokkurra íbúa á
Norður-Héraði aftur í hér-
aðsdóm. íbúarnir áfrýjuðu
dómi Héraðsdóms Austur-
lands, þar sem þeir kröfð-
ust þess að ógilt yrði sam-
eining þriggja sveitarfélaga
á Austurlandi frá í vor. Hér-
aðsdómur vísaði málinu frá
með þeim rökum að íbú-
arnir væru ekki beinir aðil-
ar málsins en því hafnar
Hæstiréttur nú og vísar
málinu aftur til meðferðar í
Héraðsdómi Austurlands.
Julia Roberts
á steinöld
Fornleifafræðingar í
Búlgaríu nefna nýfundna
beinagrind frá steinöld í
höfuðið á Juliu
Roberts vegna
fullkomnun
tanna hennar.
Tennurnar
komu fræðing-
unum í opna
skjöldu því þær
voru enn sterk-
ar og heilar eftir 9.000 ár í
jörðinni. Fræðingana grun-
ar að steinaldarmenn hafi
haft aðgang að einhvers-
konar tannkremi. Beinaleif-
ar af nautgripum og leyfar
af korni fundust í grennd
við gröflna og sýnir að mat-
aræði þessarar steinaldar-
konu hefur verið nútíma-
legt. Forstöðumaðurinn
fyrir uppgröftinn segir að
beinagrindin sé í mörgu
einstök. „Hún var mjög fög-
ur, hrein Hollywood-
stjarna með fullkomið sett
af tönnum," segir hann.
Brutu niður
rangan vegg
Þýsk fjölskylda þurfti
að snæða kvöldverðinn
sinn undir beru loft eftir
að jarðýta braut niður
rangan vegg. Fjölskyldan
sem býr í bænum Larls-
rulie er nú með jarð-
hæðina í íbúð sinni al-
gerlega opna fyrir veðri
og vindum. Byggingar-
verkamenn sem voru að
vinna við að rífa niður
næsta hús tóku víst ekki
eftir því að einn veggur-
inn var sameiginlegur
með eign fjölskyldunnar.
Kæra vegna meints samráðs sjávarútvegsrisa fæst ekki afgreidd hjá Samkeppnis-
stofnun. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að ríkis-
stjórn samkeppni og sægreifa sjái til þess að samráð viðgangist. Samkeppnisstofn-
un sögð ýta málum frá.
***!
Sjomenn undir samráði Margirtelja að með
samráði séu laun sjómanna sem stunda veiðar
á loðnu og öðrum uppsjávarfiski skipulega
lækkuð með samráði útgerða og vinnslustöðva
sem reyndar eru oft á sömu hendi.
- \
örfáir stórir aðilar í sjávarútvegi eiga stærstan hluta þeirra
fiskiskipa og bræðslustöðva sem vinna loðnu, kolmunna og
síld. Sjómenn telja að samráð eigi sér stað um verðlagningu
aflans þar sem menn sitji beggja megin borðs. Sjávarútvegs-
risarnir Sam-herji, Síldarvinnslan og SR-mjöl eru stærstir og
eignarhald þeirra er samtvinnað. HB-Grandi hf. fylgir fast á eft-
ir. Formaður Frjálslynda flokksins segir fulla ástæðu til að
Samkeppnisstofnun fari í málið.
„Ég lít svo á að við verðlagningu
á uppsjávarfiski sé aigjört samráð
sem bitnar á sjómönnum og sjálf-
stæðum útgerðum. Það er full
ástæða hjá Alþingi til að breyta lög-
um um samrekstur í sjávarútvegi,"
segir Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins. Guð-
jón var um árabil sjómaður og for-
seti Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands og barðist vonlítilli
baráttu við að koma skikk á þessi
mál. Síðan hann settist á þing hefur
„Ég lít svo á að við
verðlagningu á upp-
sjávarfiski sé algjört
samráð."
hann lagt ítrekað fram tillögur um
aðskilnað veiða og vinnslu en þær
hafa jafnharðan verið svæfðar.
„Frjálslyndi flokkurinn hefur ít-
rekað lagt fram þingsályktunartil-
lögu um aðskilnað útgerðar og fisk-
vinnslu. Tillagan hefur alltaf verið
svæfð í nefnd. Ríkisstjórn sam-
keppni og sægreifa hefur séð til
þess,“ segir Guðjón.
Hann segir að þótt vilji hafi verið
til þess hjá sjómönnum og
fiskvinnslumönnum að
taka á fákeppni og
samráði þá hafi
kerfið jafnan ýtt
málunum frá
sér.
„Sam-
keppnis-
stofnun
hefur komið sér hjá því að taka á
þessum málum þótt full ástæða sé
til. Verðmyndun á loðnu og
kolmunna er svo einslefr
að samráð kemur
strax upp í hug-
ann. Einnig
margt athuga-
vert við önnur
viðskipti sem
ekki hefur
mátt skoða,“
segir Guðjón
og vísar til
kæru fyrir-
tækisins
Toppfisks til
Samkeppn-
isstofnun-
varðandi verðlagningu á sjávar-
fangi.
Samkeppnisstofnun hefur
verið ásökuð um að svæfa
mál með því að vísa þeim
frá án afgreiðslu. ^
Hólmgeir Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambandsins,
tekur undir með Guð-
jóni varðandi undar-
lega verðlagningu á
uppsjávarfiski.
„Þetta hefur á sér
þann blæ að þarna sé
samráð við verðlagn-
ingu," segir Hólmgeir.
J
Guðjón A. Kristjáns-
son Formaður Frjáls-
lyndra segir að valdhaf-
arnir vilji ekki að tekið
verði á málum varðandi
verðsamráð.
Sjálfstæðismenn í borginni pirraðir
Vetrarveðrið veldur músagangi
Menntamálaráð í móðu
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
Reykjavfkur eru pirraðir á þeirri
leynd sem hvílir yfir nýju mennta-
málaráði sem tekur til starfa um
mánaðamót. Á fundi fræðsluráðs
20. október samþykkti ráðið sam-
hljóma tillögu fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins þess efnis að fá ítarlegu
kynningu og umræðu um væntan-
legar stjórnkerfisbreytingar þegar
á næsta fundi fræðsluráðs. Fulltrú-
ar Reykjavíkurlistans bókuðu að
þeir tækju vel í að stjórnkerfis-
breytingarnar yrðu kynntar og
ræddar á næsta fundi ráðsins.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði,
segist vera undrandi á þeirri leynd
sem yfir hinu nýja ráði hvíli. Hún
segir með ólíkindum að kynning
hafi ekki enn farið fram nú þegar
aðeins rúmur mánuður er þar til
nýtt menntamálaráð tekur til
starfa í stað fræðsluráðs og leik-
skólaráðs.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir Fær engar skýr-
ingar áþvl hvernig stórfelldri kerfisbreytingu
verður háttað hjá borginni.
Guðrún segist hafa óskað skýr-
inga á þögninni um menntamála-
ráð en engin svör hafi fengið.
Mýsnar flýja kuldann
inn á heimilin
„Þegar það kólnar svona mikið
eins og núna þá leita mýsnar mjög í
hlýjuna," segir Þorvaldur Bjömsson,
starfsmaður Náttúrufræðistofu, en
hann segir að mýs komi vel undan
sumri og dæmi séu um að afkvæmi úr
fyrsta goti gjóti sjálf í lok sumars.
Þorvaldur bendir á að hvert par
komi jafnvel upp 15-20 afkvæmum ef
sumarið er gott. Þær em því fljótar að
fjölga sér. „Þær leita alla leiða í svona
kuldum eins og nú standa til að kom-
ast inn í hlýjuna og gluggar sem
standa neðarlega og standa opnir em
greið leið til inngöngu," segir Þorvald-
ur og bendir á að þeim sé kalt og þá
sérstaklega á fótunum.
Þorvaldur segir að þegar snjór sé
yfir þá haldi þær sig mikið undir
snjónum þar sem þær fá afdrep fyrir
vindi. Ef þær reka snjáldrin upp em
þær strax í hættu fyrir ránfugli. Svo
Fljótar að skjótast Þessa dagana þarfekki
annað en opna út á pall og ganga tvö, þrjú
skreffrá á meðan mús skýst inn án þess að
nokkur verði þess var.
em þær gott æti fyrir tófuna." Hann
bendir á að ein mús sem villist inn í
hús geti lifað þar góðu lffi lengi, án
þess að nokkur verði hennar var. Tré-
pallar við íbúðarhús em gott skjól fyr-
ir þær og þegar opnað er út streymir
hlýjan ffarn og þær geta verið snöggar
að stökkva inn í hlýjuna. Áður en við-
komandi snýr sér við geta þær ve^fc,
komnar í felur inni.