Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2004, Page 62
62 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004
Síðast en ekki sist DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Rftstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar.
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
Ma
Rússlands ■í
1. Hvað heitir hann?
2. Hver sinnti starfinu á
undan honum?
r 3. Hvar fæddist forsetinn?
4. Hvað hét sá staður áður?
5. Hvenær hófst seinna
kjörtímabil hans?
Svör neðst á síðunni.
Erfðastríðið á
Bretaníuskaga
1341-1365
Jón hertogi III af Bretaníuskaga á
Frakklandi dó barnlaus 1341.ÞÓ
gátu hálfbróðir hans, Jón frá
Montfort, og tengdafrændi, Karl
frá Blois, tekist á um hertogadæm-
ið. Þeir leituðu stuðnings Játvarðs
Engtandskóngs III og Filippusar
Frakkakóngs VI og tókst með þvl
að hefja nýjan kafla f 100 ára strlði
landanna. Báðir kóngarnir réðust
á Bretaníuskaga, náðu borgunum
Rennes, Nantes og Vannes sfðla
árs 1342. Klemens páfi VI fékk
kónga og hertogaefni til samn-
inga og I þrjú ár
varð hlé á orust-
um. En þá réðst
enskur herá franskar herstöðvar
við héraðsmörk Bretanlu og vlöar.
Tveimur árum síðar náðu Eng-
lendingar Karli frá Blois og lokuðu
hann inni I Lundúnaturni en kona
hans hélt baráttunni áfram. Karl
losnaði úr prlsundinni og féll I or-
ustu viðAurayárið 1364. Ari slðar
varJón frá Montfort lýstur hertogi
af Bretanfuskaga, hann laut
Frakkakóngi og friður komst á I
héraðinu.
Stríðið
ÞAÐ ER STAÐREYND..
... AÐ FYRSTU 2000
MILLJÓN ÁRINVAR
EKKERT LÍF Á JÖRÐINNI
Blessaður
kaffisopinn
Kaffi er haft um fræ kaffírunn-
ans, kaffíbaunir, en ekki slst
drykkinn úr ristuðum og möiuð-
um kaffíbaunum og heitu vatni.
Orðiö er þekkt hér frá þvlá 18.
öld en er arabískt að uppruna.
Qahwa merkti upphafiega vln
en Múhameð spámaður birti
aröbum boð frá Attah snemma á
7. öld þar sem sagði að drykkja
vins, qahwa, væri óheimil. Orðið
fékk þá smám saman þá merk-
ingu sem það hefur I dag; menn
hættu að drekka vfn að nafninu
til en helltu I sig öðrum vökva
sem gekk undir sama
nafni, qahwa. Tyrkir
lærðu kaffídrykkju af
aröbum og kölluðu drykkinn
kahveh, þaöan fór það tii Frakk■
lands að heita café, coffee á
ensku, Kaffee á þýsku og kaffi
hérálsiandi.
Málið
Svörviðspumingunv.
1. Vladimir Pútín. 2. Boris Jeltsín. 3. Péturs-
borg. 4. Leningrad. 5. í mars í vor.
Irar flýja heim
Krárnar eru hálfar og auðum íbúðum
fjölgar í fjölbýlishúsum Ira í New York.
í meirihluta írskra stórfjölskyldna þar
í borg er einhver farinn heim tU Irlands eða
að undirbúa brottflutning. Bandaríkin eru
ekki lengur fyrirheitna landið í augum solt-
inna Ira. Þeir sjá nú betra líf í gamla landinu.
írland varð efst á blaði í nýrri könnun um,
hvar sé bezt að lifa í heiminum. Áður hafði
Frakkland notið þessa heiðurs í annarri
könnun. Kanada og Nýja-Sjáland eru á upp-
leið, enda líta þangað hýru auga margir þeir
Bandaríkjamenn, sem telja, að stjórn Bush
sé að fara með Bandaríkin tíl andskotans.
Slíkar kannanir eru vafasamar heinúldir,
en segja okkur þá sögu, að efnahagsleg
velgengni, mæld í þjóðartekjum á mann, er
ekki góður mælikvarði á hamingju almenn-
ings. Menntun og heUbrigði, góður matur og
frjálslynt stjómarfar og margt fleira þarf að
taka tU greina í samanburði á ríkjum.
Þótt Bandaríkin hafi haft 3% hagvöxt upp
á síðkastið, en Evrópusambandið 2%, verður
að hafa í huga, að Evrópa gerir meira fyrir
framtíðina. f Bandarfkjunum þurfa fyrirtæki
að sýna hagnað ársfjórðungslega og taka því
lausnir tU skamms tíma fram yfir langtíma-
lausnir á borð við umhverfisvemd.
Evrópubúar spara, en Bandaríkjamenn
aUs ekki. í staðinn taka Bandaríkjamenn lán
í útlöndum. Erlendir peningar og lækkandi
gengi doUars standa undir hagvexti þar í
landi. Og félagsleg velferð er á miklu lægra
plani en í Vestur-Evrópu, þar sem hagstefh-
an hefur verið félagslegur markaðsbúskapur.
Þótt Evrópa og Bandaríkin séu greinar af
meiði vestrænnar markaðshyggju, er hún
tempraðri í Evrópu. Dólgsleg auðhyggja
Bandaríkjanna á ekki upp á paUborðið í Evr-
ópu, þar sem hægrisinnaður flokkur á borð
við kristílega demókrata í Þýzkalandi gaf þjóð-
inni félagslega kanzlarann Ludwig Erhard.
Stöðugt ris evrunnar er gott dæmi um, að
evrópsk mUdi er efnahagslega frambærileg
hagfræðistefna. Ekki þarf að rústa jafnrétti í
menntun, heUbrigði og annarri velferð tU að
vera samkeppnishæfur á alþjóðlegum mark-
aði. Ekki þarf að rústa umhverfið tU að geta
staðið sig á líðandi stund.
Island flýtur með í félagslegum markaðsbú-
skap Evrópu. Lög og reglugerðir Evrópusam-
bandsins gUda hér á landi í auknum mæU. Fáir
stjómmálamenn hampá bandarískum lausn-
um á kostnað evrópskra, þótt suma dreymi um
að einkavæða menntun og heUsugæzlu og
draga á annan hátt úr félagslegri velferð.
Á næstu árum mun spenna vaxa miUi
vaxandi dólgaauðvalds í Bandaríkjunum og
félagslegs markaðsbúskapar í Evrópu. í þeim
átökum mun okkur farnast eins og frum,
sem nú flýja heim.
Jónas Kristjánsson
Þunnur
ÓLflFUR JÓHANN ÓLAFSS0N hefúr
um árabU verið einn helsti metsölu-
höfundur íslands og sendir nú frá
sér langan doðrant, Sakleysingjana.
Hún hefur hlotið misjafna dóma;
Gunnar Gunnarsson lýstí því til
dæmis á Rás eitt RÚV hversu leiðin-
leg honum þætti bókin; ritdómari
Kastljóss, Jón Yngvi Jóhannsson, var
ekki hrifinn heldur, og á Stöð 2 sagði
okkar maður, PáU Baidvin, að hún
væri langdregin og fjörlítil. En í
Mogganum og Fréttablaðinu hefur
hún hlotið vinsamlega dóma.
HÉR ÁÐUR FYRR, þegar Ólafur Jó-
hann var hvað umdeUdastur, lá við að
deUurnar um verk hans væm orðnar
hápóUtískar. Sumum fannst honum
svo hampað í fjölmiðlum og auglýs-
ingum að næstum væri tU vitnis um
samsæri hægrimanna sem þráðu að
eignast „sinn rithöfund" tU mótvægis
við alla vinstrisinnuðu höfundana
sem á tímum kalda stríðsins virtust
einoka íslenskar bókmenntir.
Aðdáendum hans þótti á hinn
bóginn að vinstri agentar gætu ekki
unnt honum þess að skrifa vinsælar
bækur af því hann væri ljóslega
kapítalistí fram í fingurgóma og
alþjóðlegur bissnissmaður í þokka-
bót sem ættí ekkert með að kássast
upp á skáldagyðjuna.
Og virtíst um tíma hætta á að
^ skoðanir manna á skáldsögum Ólafs
- Jóhanns skiptust eftir úreltum póli-
> tí'skum vígh'num.
s
z SAMKVÆMT ÞVÍ VAR BJÖRN BJARNA-
« S0N tryggilega í hópi aðdáenda
5 Ólafs Jóhanns enda hefur hann oft-
^ ar en einu sinni farið lofsamlegum
Z orðum um höfundinn. Nú bregður
Í5 svo við að á heimasíðu sinni birtir
og ólíkindalegur þráður
Björn hins vegar stutta umsögn um
bók Ólafs Jóhanns sem er langt frá
því að vera lofsamleg.
Eftir að hafa getið þess að Ólafur
Jóhann taki sér það skáldaleyfi að
færa alkunna atburði í stílinn og búa
til persónur sem eigi sér augljósa
fyrirmynd, þá segir Björn helst til
þurrlega:
„BÓKIN ER RÚMLEGA 500 BLAÐSfÐUR
og er oft fljótt farið úr einu sviði í
annað og verður þá þráður sögunn-
ar bæði þunnur og næsta óiíkinda-
legur. Auðvitað má elta ólar við það,
hvort höfundurinn bregður góðu
eða vondu ljósi á þá atburði, sem
„Nú bregður svo við
að á heimasíðu sinni
birtir Björn [Bjarna-
son] hins vegar stutta
umsögn um bók Ólafs
Jóhanns sem er langt
frá því að vera lof-
samleg."
hann velur sér og hetju sinni sem
viðfangsefni, en það verður ekki gert
hér. “
SV0 MÖRG V0RU ÞAU 0RÐ. Einhver
kynni kannski að freistast til að álíta
að lítið álit Björns á bókinni væri
sprottið af því að honum þætti nærri
sér höggvið. Þannig er mál með vexti
að í bók Ólafs Jóhanns er í upphafi
byggt á atburðum sem urðu á Siglu-
firði 1932. Þar stóðu þá í miðri
kreppunni hörð átök um verkalýðs-
mál og Sveinn Benediktsson útgerð-
armaður réðist harkalega í blöðum á
Guðmund Skarphéðinsson formann
verkalýðsfélagins á staðnum.
Svo undarlega brá við að Guð-
mundur svipti sig h'fi í kjölfarið og
fékk Sveinn af því tilefni mikið
ámæh fyrir árásir sínar.
f BÓK ÓLAFS JÓHANNS er verkalýðs-
foringinn viðkvæmi gerður að afa
sögumannsins og ætía mættí sem
sagt að óánægja Bjöms með bókina
stafaði af því að honum hefði
gramist að verið væri að rifja upp
þetta skammarlega mál um föður-
bróður hans, en Sveinn Ben. var
eldri bróðir Bjama Benediktssonar
forsætísráðherra, föður Björns. Við
teljum okkur þó geta fullyrt að sú sé
ekki ástæðan. Málið er stuttaralega
afgreitt í skáldsögunni og persónan
sem byggð er á Sveini Ben. fer ekkert
rosalega illa út úr því.
Birni hefur því einfaldlega ekki
líkað bókin.
: Jesús á Sykurfjallinu - andkristur tók jólin
ro
'O
-■ Svarthöfði vaknaði af kæfisvefni
^ í morgun vegha draumfara sinna.
^ Hann dreymdi um Jesúm á Sykur-
ö fjallinu í Ríó de Janeiro í Brasilíu.
Jesús sagði: „Hví yfirgefur þú mig?“
™ Svarthöfði vaknaði með eitthvert
E bit á ökklanum. Hélt það væri sam-
£ viskubit. Daginn áður fór hann í
_ Kringluna. Hljómar jólalaganna
Z sleiktu jólaskrautið. Reiðuféð skrjáf-
aði. Myntpeningar hringluðu sem
^ jólabjöilur. FóUdð og Svarthöfði óðu
v áfram í tímakreppu, viku ekki,
keyptu fyrir sína nánustu en
gleymdu náunganum. Svarthöfði
hafði unnið yfirvinnu tU að eiga fyrir
gjöfunum, en friðsemdin fyrirfórst.
Jesús elskaði fjárhirðinn sem elti
sauðinn eina. Nú em féhirðar
knúnir áfram af græðgi. Hlaupa á
eftir hverjum eyri. Og Jesús á Sykur-
fjallinu.
Svarthöfði er búinn að kaupa 30
lítra af kóki fyrir jólin. Konfekt
hefur hann keypt í búntum. Ham-
borgarhrygg sem hann ætlar að
smyrja með sykurleðju. Quality
street í nokkrum dósum. Ein af
dauðasyndunum sjö er græðgi.
Jólin einkennast af græðgi í mat og
gjafir. Þar eru börnin verst. En þetta
er alið upp í þeim. Ekki eitt orð um
væntumþykkju, hófstillingu eða
kærleik um náungann.
Jesús rústaði musterið út af
kaupmennskunni. Satanísku kaup-
mennskunni sem elur á græðgi. En
hver vann? Búið að stilla Jesúm upp
á Sykurfjallinu, en kókjólasveinn-
inn sér um börnin. Fyrir nokkrum
áratugum rétti hann þeim litlafing-
ur í formi epla, en nú hafa púkarnir
rifið af honum höndina og kjamsa á
kökum og sælgæti og hlæja tryll-
ingslega við hverja nýja gjöf.
Svarthöfði er ekki trúaður mað-
ur. En hverjum getur yfirsést að
Jesús er genginn í bergið, sokkinn í
Sykurfjallið?
Svarthöfði
K