Barnadagurinn - 25.04.1935, Síða 6

Barnadagurinn - 25.04.1935, Síða 6
6 JÖARNADAGURINN 193S Barnadagurínn í Stockhóími. Ritstjóri Barnadagsblaðsins hefir beðið mig að segja lesendum blaðsins dálítið frá Barnadeginum í Stokkhólmi. Já, Barnadagurinn. Þegar þetta nafn er nefnt, hýrnar heldur en ekki yíir Stokkhólmsbörnunum, því Barnadagur- inn er einn lang mesti hátíðisdagur þeirra. Hann er fyrsti sunnudagurinn í september, og er því sem«stórfengleg loka- hátíð sumarsins. Gildi dagsins verður heldur ekki minna fyrir það, að allt fé sem inn kemur við hátíðahöldin fer til þess að gleðja og styrkja fátæk börn til sumardvalar í sveit. Fé það, sem safnast hefir á Barnadeginum síðan hann byrjaði, er milli 6 og 6 millj. króna. Fyrir þetta fé hefir verið keypt eyja úti í Skerjagarði og kostuð dvöl fleiri þúsund barna á hverju sumri. 2000 börn geta verið þarna í einu. Þau fara þangað föl og veikluleg, en koma aftur brún og hraustleg eftir sund og sólböð, leiki og gönguferðir í skóginum. Hvernig er svo þessi mikli hátíðisdagur barnanna? Þau vakna auðvitað fyrir allar aldir þennan merkis dag. Hátíðahöldin byrja klukkan 2. Börnin safnast saman við sundið gengt konungshöllinni. Þau raða sér upp í fylk- ingar. Allur skarinn mjakast af stað. Fyrst fer 400 drengja- lúðrasveit. Drengirnir eru klæddir í hvít föt, og þeir spila ótrúlega vel og taktfast. Næst kemur stór hópur stúlkna og drengja, sem ö.ll eru klædd ýmsum þjóðbúningum. Þá kemur skrautlegur hestvagn með tveim hestum fyrir, mikið skreyttum. 1 vagninum situr drengur og stúlka í nokkurs- konar hásæti, klædd brúðarskarti. Á eftir kemur mikið lið stúikna og drengja ríðandi á hvítum og svörtum hestum, eða í hestvögnum. Næst er stór skrúðganga, mörg hundruð börn, allt frá 15, 16 ára, löngum og krangalegum dr.engj- um, niður í 7—8 ára smáhnoöra. Loks kemur hópur barna í vögnum með örlitlum dverghestum fyrir. Börnin eru öll útklædd í gervibúnmga, sem bangsar, kettir, uglur, og aftast kemur Mickey Mouse spilandi á harmoniku. Allur skarinn, sem er 4—5 þúsund börn, heldur út á Stadion (íþróttavöllurinn). Þar heldur einhver Svíaprinsanna ræðu, drengjahljómsveitin spilar þjóðsönginn, barnasöngkónð syngur. Það er sýnd leikfimi, leikir, þjóðdansar o. fl. Öll skemmtiatriðin annast börnin sjálf, en þau eru 5 þúsund að tölu, en áhorfendur skipta tugum þúsunda. Klukkan er að ganga 7. Fólkið streymir niður að Djurgárdsbrunnsvíkinni. Þúsundir manna raða sér á bakk- ana fram með spegilsléttri víkinni. Hér á víst mikið að ske. — tJti á víkinni eru margir listibátar upplýstir með marglitum ljósum. Hvítklæddir drengir eru um borð undir árum. Á miðri víkinni er útbúinn stór bátur. í honum er kveikt og verður af geysilegt bál þegar það kemst í al- I gleyming. Hljóðfæraslátturinn berst utan af víkinni og flugeldar í öl.lum regnbogans litum þjóta um himinhvelf- inguna. — Þessi mikla eldhátíð stendur í klukkutíma. Bál- ið slokknar. Seinustu flugeldarnir hverfa út í geiminn, síð- ustu tónar hljómsveitarinnar deyja út í náttmyrkrinu og hvítklæddu drengirnir róa listisnekkjunum að landi. Þessi mikli hátíðisdagur barnanna er á enda. Þau halda heim til mömmu og pabba. Þau hafa upplifað heilt æfintýri. Hugur þeirra er hlaðinn yndislegum endurminningum, sem end- ast þeim í margar vikur, mánuði eða miklu lengur. Gleðilegt sumar! GvJUaugur Rosinkranz. Z3i Allar nýjustu íslenzkar bækur og mikið af erlendum bókum og blööum, fáið þið alltaf hjá: imm Kólc4iv«írslini - Sími 272H I' D Hafíksbúð Síml 4063 Nönntígöítt 16. Nýir ávextir. Niðursoðnir áveatir. Allar nauðsynjavörur. Þér fcattpíð eínungis valda vörtt i HAUKSBÚÐ. Verzlunin Brynja, Reykjavík. Selur ávalt: Fyrsta ílokks verkfæri fyrir trésmiði, husgagnasmiði, málara og murara. Garðyrkj u verkfæri, útsögunartæki og smærri verk- færi fyrir börn. SkólalHír. Höfum nýlega fengið mjög mikið af allskonar vatnslita- kössum. Ódýrum litum í töflum, skálum og túbum, sem einnig fást lausar. Kassar með 10—12 litum frá 75 aur. PENSLAR, margar tegundir. PAPPÍR, í bókum og blokkum. FáiS ykkur LITAKASSA fyrir sumarið. „MÁLARINN“, SÍMI 1496. BANKASTRÆTI 7.

x

Barnadagurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.