Barnadagurinn - 25.04.1935, Qupperneq 8

Barnadagurinn - 25.04.1935, Qupperneq 8
s BARNADAGURÍNN 1935 KOL SALT KOKS REYNSLA sýnir, aS þaS borgar sig best aS kaupa kol, koks og salt hjá oss. ÞEKKING vor á TÖrum þeim, er Ter seljum, er kaupendunum trygging fyrir gæSum þeirra. ----------- VISKA þeirra er mest, sem TÍta. hTaS þeir Tilja. — KomiS og skoSið TÖrur Torar, hinar nákvæmu Tog- ir og hin fullkomnu afhending- artæki. ----------------- V I L J I menn kaupa kol, koks etia salt, þá er einfaldasta leiSin og hin skynsamlegasta aS snúa sér beint til Tor. ---------------- I.F. KOL & SALT SÍMNEFNI: KOLOSALT SÍMI: 1120 (FJÓRAR LÍNUR). Elsta og stœrsta kola- og saltverslun landsins. m Ei Húsmæður! Hvers vegna að vera að leggja á síg allt þetta erfíði, er heimabökun fylglr, þegar þér getið fengið okkar viðurkenndu kökur i fjölbreyttu úrvali hjá kaupmanni yðar ? Framleíðum yfír 20 tegundir af allskonar kaffíbrauði. — Auk þess margar tegundir af Kremkexi og Matarkexí. KEXVERKSMIÐJAN „FRÓ N“ REYKJAVÍK Útj í löndum er komið mikið kvik á það mál að rækta menn, að ala þá upp á hagnýtan hátt, og árangurinn er glæsilegur. Menn fóru líkt að og við ræktunina. Menn rannsökuðu og fundu, gerðu tilraunir og sannfærðust. Og menn fóru líkt að og hjónin í Fljótshlíðinni. Menn byrjuðu á þeim gróðri mannlegs lífs, sem óx upp á öræfum og fallið hafði í grýttasta jörð — fábjánanum — og með uppeldinu tókst að gera þessa aumingja, sem allir héldu að væru svo vansmíða af náttúrunni, að enginn mannlegur máttur gæti bjargað þeim, það tókst að gera þá að nýtum mönnum og meira að segja hamingjusömum á sinn hátt. Og síðan var þess skammt að bíða, að líku uppeldi væri beitt við hin fullþroska börn, og árangurinn af því er ekki síður dásam- legur. Aðferðirnar, sem beitt er, eru ofur einfaldar. Eins og við ræktunina, eru hin þroskandi skilyrði bætt. Og eðli barnanna sjálft vísar veginn. Börnin vilja þroskast og fræðast, og gleðjast innilega yfir hverjum nýjum þroska, hverri nýrri þekkingu. Leikir barnanna ,eru skóli þeirra. Hver einasti leikur stefnir að því, að auka einhverja færni, einhverja þekkingu. En barnsnáttúran er meyr og furðu- lega næm fyrir öilum áhrifum, illum og góðum. Hinn mikli vandi ,er sá, að fá barnið til að þroskast sem sjálfstæða veru, að aga sig sjálft, til sjálfstæðis og þroska. En einmitt þetta hefir tekist með hinu nýja uppeldi. Við vitum, að vorgróðinn er viðkvæmastur fyrst á vor- in, og rannsóknir hafa leitt það í ljós, að mennirnir mótast snemma, til góðs eða ills, eftir ástæðum. Menn þykjast þess vissir, að skaphöfn mannsins verði að mestu til áður en hann hefir náð 7 ára aidri. En einmitt á þessum tíma er börn- unum sinnt minnst. Meðan þau eru óvitar, eru þau kjössuð og kysst og fá ekki það næði, sem þau þurfa. Þá eru þau litlir sjúklingar og þarfnast hvíldar, .hollrar næringar, lofts og ljóss. En þegar þau eru komin á legg og vitið er að vakna, þá v.erða þau litlir einstæðingar og leita út á götuna með allar sínar spurningar, allar sínar gátur. Þá, þegar þeim ríður mest á, eru þau oftast ein og yfirgefin. Hinn nýi skóli tekur við börnunum einmitt á þessum aldr.i, 2—3 ára. Þar eru þau á daginn og fá þá aðhjúkrun og umönnun, sem fullkomin kunnátta og góður vilji geta ve.itt. Og árangurinn er undrav.erður. Menn vita það nú, að mikið af hamingjuleysi manna á rót sína að rekja til uppeldisins. Menn vita það nú, að það má rækta menn, að hægt er að skapa hrausta menn og hamingjusama, með uppeldinu, jafnvel úr veikum efnivið. Og menn vita það nú, að ráðið til þessa felst í þessum tveimur orðum: Þekking og kærleikur. Þetta eru einkunnarorð hins nýja tíma. Þekkingin ein er ekki einhlít, ef tómlæti er með. Og kærleikurinn er langt frá því að vera einhlítur, eins og dæmin sýna. Án þekkingar er hann vanmáttugur, magnlaus Eg vil enda þetta mál mitt með einni lítilli dæmxsögu, sem þið kunnið öll. Hinni sígildu sögu um sáðmanninn, sem árla morguns gekk út til að sá í akur sinn. Og sumt sæðið féll á veginn, og fuglarnir komu og tíndu það upp. Sumt féll í grýtta jörð, og sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu upp og kæfðu það. En sumt féll í góðan jarðveg og bar ávöxt, sumt þrítugfaldan, sumt hundraðfaldan og sumt þúsundfaldan. — Fellur ekki margt þroskavænt fræ á veginn eða í grýtta jörð eða meðal þyrna, sem sjúga frá því skilyrðin til þroskunar?

x

Barnadagurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.