Barnadagurinn - 25.04.1935, Side 10

Barnadagurinn - 25.04.1935, Side 10
10 BARNADAGURINN 1985 Smdsöluverð d eldspýtum má eigi vera hærra en hér segir: SVEA eídspýtttr, 10 stokka pakkízm, 40 aura. Utan Reykjavíknr og íiafnarfjarð-| ar má smásöluverð vera 3% hærra vegna flatningskostnaðar. Ungir menn, sem vilja ganga vel til fara, nota hatta. Mesta heímílísprýðín. Eitt af því, sem setur svip sinn á hvert heimili, hvert þorp og hverja borg, eru börnin. Dómar manna um heimilin fara mikið eftir því, hvernig framkoma barnanna er. Því fleiri börn, sem saman eru komin á einn stað, því meir er það á þeirra valdi, hvort staðurinn fær á sig gott orð eða ekki. — „Það Jæra börnin, sem fyrir þeim er haft“, segir mál- tækið. Þetta mun rétt vera. Það er þess vegna fyrst og fremst fullorðna fólkið, sem verður að vera börnunum til fyrirmyndar, því. að það mun vera þrá flestra barna, að verða stór og fullorðin. Þess vegna reyna börnin að taka fullorðna fólkið sér til fyrirmyndar í sem flestu, og kemur það berlega fram í leikjum þeirra, orðum og athöfnum. Það vill því miður verða misbrestur á því, að fullorðna fólkið geri sér það ljóst, hvað börn eru yfirleitt eftirtektar- Framha.ld á bls. 11. Sumardagurinn fyrsti. Framhald af bls. 9. Barnið verður að vaxa frjálst eins og jurtin, og það sem best er hægt að gera fyrir þroska þess og vöxt, er að gera öll hin ytri skilyrði þroskans og vaxtarins sem hagstæðust. Það eru hinar óbeinu aðferðir og áhrif, sem gefa bestan árangur. Eldri kynslóðin á að hafa manndóm til að beita ekki harð- stjórn. Uppeldið heimtar náttúrlegt umhverfi. Aðbúðin, um- hverfið, viðmótið gerir allt, sem í okkar valdi stendur og hefir sömu áhrif og jarðvegurinn og loftslagið á gróður jarð- arinnar. Á æskuárum þarf að fóstra hæfiieikann til hollra nautna 1 samlífinu við náttúruna. Það vekur lotning og þrótt og hæfileikann til að grein fingur Guðs bak við fyrirbrigði náttúrunnar og rás viðburðanna. Það er gott til þess að vita, að sumardagurinn fyrsti er orðinn dagur barnanna, dagur fyrir börnin til að sýna hvað þau geta og dagur til að minna hina fullorðnu á skyldurnar gaglivart börnunum. Það er gott til þess að vita, að enn varð- veitast hollar uppeldisvenjur eins og það, að senda börnin í sveit yfir sumarið auk ýmsra annara hollra sumarstarfa, sem íslenskir atvinnuhættir gefa kost á. Berjaferðir eru upptekn- ar og íþróttastarfsemi er í vexti. Þeim fer stöðugt f jölgandi, sem taka þátt í að flytja sumarið inn í líf barnanna — hreyfingu, loft, sól og rennandi vatn. Það er gott til þess að vita, að hér starfar félag, ,sem heitir Sumargjöfin, og hefir þennan tilgang. Hin mikla fyrirmynd um alla þessa viðleitni er náttúran sjálf og hennar fornu aðferðir við að ala upp börn sín. I barnagarði þarf að vera sólríkt og loftgott, þar þarf sand til að byggja úr, grindur til að klifra í, vatn til að vaða í. „Sumargjöf“ er gott heiti á félagi, sem vinnur í þess- um anda, því tilgangurinn er, að gefa börnunum sumarið. Á þann hátt einan er hægt að kenna þá list að lifa einföldu lífi og gleðjast við þau lífsgæði, sem eru hollust og óbrotn- ust og eiga að vera sameign allra mannanna barna. Guð blessi alla þá, sem verða drengilega við, þegar sum- arið kallar: Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki. Ásgeir Ásgeirsson.'

x

Barnadagurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.