Barnadagurinn - 25.04.1935, Síða 11

Barnadagurinn - 25.04.1935, Síða 11
BARNADAGURINN 1935 11 Mesta heimilisprýðin. Framhald af bls. 10. söm og næm á það, sem þau heyra og sjá til þeirra, sem eldri eru. Eg geri nú ráð fyrir, að það muni meir vera athugunar- eða hugsunarleysi að kenna hjá þeim, sem komnir eru af barnsaldrinum, þegar þeir nota miður sæmi- legan munnsöfnuð eða segja ósiðsamlegar sögur í áheyrn barna, en þetta hefir þó haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir börn. Má í því sambandi benda á, að ýms afbrotamál barna munu eiga rætur sínar að rekja til atvika, er þau hafa heyrt sér eldra fólk tala um og rök- ræða. — Alloft heyrist kvartað yf,ir því, hvað mörg börn séu óhlýðin, óknittin og hrekkjótt. Því er ekki að neita, að þetta mun ekki að ósekju sagt. Þess eru dæmi, að börn hafa skamm- að foreldra sína, riíist við kennara sinn og sent ókvæðisorð á eftir vegfarendum, og síðan sagt, að þetta gerðu líka þeir, sem eldri væru. Af því, sem nú hefir v,erið sagt, má sjá, hversu mikinn þátt fullorðna fólkið á í því að marka framkomu barn- anna. Uppeldi barna hvílir ekki emgöngu á foreldrutn þeirra og kennurum, heldur og hverjum þeim karli eða konu, sem þau umgangast. Auk þess sem fuilorðna fólkið verður að vanda fram- komu sína í smáu sem stóru, þá þarf að temja börnunum háttprýði og drengilega framkomu í hvívetna. Þar kemur aðallega til kasta foreldra og kennara. Uppeldið á að byrja þegar í vöggunni, því að „það, sem ungur nem- ur gamail temur". 1 stuttn biaðagrein er ekki hægt að gefa leiðbeiningar um barnauppeldi, eða hvernig eigi að fara að því að venja börn. Þó mun mega telja það ema meginreglu, sem fram beri að íyigja, þegar venja á bórn eða siða þau, og hún er sú, að haga svo orðum sínum við þau, — boðum eða banni — að börnunum verði það ljóst, að sá, sem býður þeim eða bannar, vill þeim vel." Nöldur við börn hefir slæm áhrif á þau og venur þau á að virða að vett- ugi það, sem þeim er sagt — eða þau eru beðin um að gers. Börnin þurfa að læra þegar í æsku að taka tiilit til annara og htyöa setium regiurn, því að pegar þau vaxa og verða fullorðin, frnna þau annars til þess, hvað mikið er til af lögum og reglum, sem þjóðféiagið heimtar að farið sé eftir, og þá gæti orðið erfiðara fyrir þau að hlýðnast þeim en ella. , Það verður að keppa að því að venja svo börnin, að enginn — hvorki foreldrar né aðrir — þurfi að segja sem svo: „Eg ræð bara ekkert við barnið“. Og það er hægt, — ,en oft kostar það allmikið erfiði og þrautseygju. Kurteisi og háttprúð framkoma kostar ekki peninga, en hún er rneira virði en nokkrir peningar. Kurteis börn verða hvers manns hugljúfi. Hversu ánægjulegt er ekki að koma á heimili eða í skóla, þar sem öll framkoma barn- anna, bæði í orði og verki, er drengileg og frjálsmann- leg, þar sem börnin virðast hafa yndi af því að gera að vilja þeirra, sem vilja þeim vel. Hjálpumst öll að því — bæði eldri sem yngri — að ala þannig upp hina uppvaxandi kynslóð, að okkur megi verða sómi að og þjóðinni til heilla. Helgi Elíasson. <o>{o> i<2 £>>{oXo>{o>ý£ Gefið börnunum Pep og Corn Flakes PEP daglega. F æst. alstá u r. -~yr) V'"'. - ... GULLAX HAFR AMJÖLIÐ * - 0 veitir yður þrótt og fjör. Gullax-drengurinn þekkist á myndinni. Gullax-börnin þekkjast alstaðar.

x

Barnadagurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.