Barnadagurinn - 25.04.1935, Side 13

Barnadagurinn - 25.04.1935, Side 13
BARNADAGURINN 1935 13 Veikluð skólabörn. Eitt af hinum sameiginlegu áhyggjuefnum heimila og skóla, eru veikluðu skólabörnin. Eg á hér ekki við þau börn, sem eru svo veik, að þau þurfa hælis- eða spítalavist, heldur hin, sem eru kyrtlaveik og blóðlítil, stundum ef til vill af því, að ekki er hægt að veita þeim þann aðbúnað, sem þau þurfa. Stundum komast þessi börn í sumardvöl á góð sveitaheimili eða sumarhæli, og koma heim að haust- inu sæmilega útlítandi. Þggar svo skólavistin byrjai* með margra klukkustunda setu við nám daglega, hrakar þeim mjög bráðlega, og eftir nokkurn tíma er úrskurðað af skólalækni, að þau megi ekki sækja skóla svo og svo lengi. En mörg af þessum börnum eru frá heimilum, sem eiga mjög erfitt með að láta þeim í té það, sem þau nauðsynlega þurfa með; við þetta bætist svo, að þegar þau yfirgefa skól- ann, missa þau mat og mjólk, sem þau hafa fengið þar. Niðurstaðan verður því, að börnin ná sér lítið, þó þau séu heima, skólagangan verður öll í molum og foreldrarnir eru ráðalausir bæði með námið og með aðbúnaðinn. Margir kennarar, frá barnaskólunum hér, hafa borið það mjög fyrir brjósti, hvað hægt væri að gera fyrir þessi börn, svo þau styrktust að heilsu, en þyrftu þó ekki að leggja allt nám á hilluna. Fjölda margir foreldrar hafa líka borið þessi vandkvæði fram, t. d. við skólanefnd, þar eð ekkert hefir sérlega verið gert til þess að sjá þessum veikluðu börnum fyrir námi við þeirra hæfi. Bæði Barna- verndarnefnd Reykjavíkur og Barnaverndaráðið hafa líka haft þetta mál á dagská og hafa þessar nefndir komið fram með tillögur um hæli fyrir þessi börn, oftar en einu sinni, en úi framkvæmdum hefir ekki orðið að þessu. Nú er þó svo komið, að vonandi er, að smáskóli eða dvalarheimili fyrir veikluð skólabörn komi upp hér í bænum nú á næstunni. Á efstu hæð skólahúss þess, sem nú er verið að reisa við Reykjaveg er svo til ætlast, að nokkur veikluð skólabörn fái athvarf árið um kring. Verður sjálfsagt gert það, sem hægt er til þess að gera þau hraust, en jafnframt séð svo um, að allt nám leggist ekki niður. Jafnóðum og börnin frlskast, verður svo skift um og tekin önnur börn, sem þess þurfa þá mest með, að dómi skólalæknanna. Enn er ekki hægt um það að segja, hvenær þetta kémst til framkvæmda, en þar sem húsið verður bráðum tilbúið, þá er vonandi að ekki líði á löngu, þar til svo verður. Er eng- inn efi á því, að allir þeir, sem best þekkja til skóla og heilbrigðismála bæjarins, bíði þess með óþreyju, að stigið verði fyrsta sporið til þess að koma þessum veikluðu börn- um til hjálpar og létta undir með foreldrum þeirra, sem oft eru ófær til að veita börnunum það, sem þau þurfa með, hversu góðan vilja, sem þeir hafa til þess. ASalbjörg SigurSardóttir. Gefið börnunum bestu barnabókina Sólskin. Sækið skemmtanir dagsins! — Allir þurfa að bera merki dagsins! — Styrkið starfsemi „Sumargjafarinnar“! Hæfileg Sumargjöf ungum og öldruðum er góð bók frá Bókaverzl. Sigf. Eymundssonar eða Bókabúð Austurbæjar B.S.E. Laugav. 34. §taðnæmi§t hér! Beztu innkaupin á Glervöru, Búsáhöldum, Kristal og Vefnaðarvörum.------------- Munið eftir Edinborgar-leikföngunum. — Leggið leið yðar um Hafnarstræti í EDINBORG Strigaskór fyrir börn og fullorðna. Stórt og ódýrt úrval. Hvannbergibræður. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg, Reykjavík. Prentsmiðjan annast prentun ríkissjóðs og stofnana og starfsmanna ríkisins. Leysir auk þess af hendi allskonar bókaprentun, litprentun, nótnaprentun, eyðublaðaprentun, skrautprentun. — Áhersla lögð á vapdaða vinnu. Pósthólf 164. Símar 3071 og 3471.

x

Barnadagurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.