Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2004, Page 6
Léttvín
fyrir þá sem vilja
læra
Steinarr Lár er 25 ára gam-
all og var að gefa út sína fyrstu
bók. Bókin heitir Léttvín og er
tilvalin fyi'ii' þá sem vilja lœra
undirstööuatriði varðandi létt-
vín og læra það sem skipth
máli en ekki eitthvað of fræði-
legt sem engin leið er að
muna. Steinarr hefur verið að
staifa á og reka bari síðan
hann var 16 ára. Hann starfar
nú sem sölu-og markaðsfull-
trúi fyrir Allied Domesq sem
sér um dreifmgu og fram-
leiðslu léttvíns um allan heim.
„Ástæðan fyrir því aö ég
skrifaði Léttvin er sú að mér
hefur lengi fundist vanta
svona bók. Viijinn til að vita
eitthvað um vín er til staðar
hjá svo mörgum. En vegna
skorts á bókum hættir fólk við
að koma sér af stað.
Þegar ég vildi fara að kynna
mér vin var enga bók að fmna.
Ég hafði mikinn áhuga á að
velja eitthvað skemmtilegt vín
en vissi bara ekki neitt.“
Steinarr segir þetta líka gert
af hagkvæmisástæðum. „Þeg-
ar þú veist nákvæmlega hvaö
þú vilt þá ertu ekki að sóa pen-
ingum. Síðan er bara svo mik-
ilvægt að læra aö drekka vín.“
Steinarri fannst líka vanta
faUega bók. Bók með faUegri
og sjónrænni hönnun. „Sjálfur
pæli ég mikið í hönnun. Addi
Jóhannsson kom sérstaklega
frá Kaupmannahöfn þar sem
hann staifar sem auglýsinga-
Ijósmyndari til að taka myndir
fyrir bókina.“
Bókin hans Steinarrs fæst í
öUum betri bókabúðum og
verslunum Hagkaupa.
tvífarar
Robocop
Fókus barst til eyrna
að tvær stelpur, Ellen
og Erna, væru að
gera það gott sem
plötusnúðar á Vega-
mótum og víðar.
Kvenkyns plötu-
snúðar eru ekki á
hverju strái þannig
að forvitnin fékk að
ráða og málið var
kannað aðeins betur.
Hafnfirðingarnir EUen Lofts-
dóttir og Erna Bergmann eru
bestu vinkonur. EUen vinnur í
Smash og Erna vinnur í Spútnik
auk þess sem hún kennir dans
öðru hvoru. Þær eru búnar að
vera vinkonur lengi. Og að eigin
sögn eru þær samfastar og hugsa
oft það sama. „Oft þegar við erum
að spUa og ég spyr EUen hvaða
lag hún sé að fara að spila þá held
ég kannski á sama lagi og hún
ætlaði að setja á og er sjálf að fara
að spila það,“ segir Erna og hlær.
Kýldum bara á þetta
„Við byrjuðum bara að spUa í
vor á þessu ári. Við erum dugleg-
ar að hlusta á tónlist og pæla í
henni. Okkur hefur langað til að
verða plötusnúðar frá því við vor-
um unglingar og kýldum bara á
þetta og byrjuðum á því að spUa á
framhaldsskólaballi. Við klíndum
okkur á strákana sem voru að fara
að spUa og hættum ekki fyrr en
við fengum að vera með.“
Hlæjandi segjast þær vera mjög
ákveðnar og ef þær ætli sér að
gera eitthvað þá geri þær það.
Fólk horfði bara á okkur
eins og við værum eitt-
hvað djók
„Vinir 'okkar frá baUinu sögðu
Dóru Takefusa, sem var þá með
Bar Pravda, frá okkur og henni
leist vel á. Þetta var mjög skraut-
legt fyrst af því við kunnum ekk-
ert að stiUa hljóðið og vorum alveg
að æra fólk. Á meðan við vorum
kannski að dansa á fullu og flla
okkur í tætlur horfði fólk bara á
okkur eins og við værum eitthvað
djók.“
Vinir þeirra kenndu þeim svo
smám saman á græjurnar. „Svo
fórum við yfir á Vegamót. Fyrst
vorum við með Dóra plötusnúði,
sem var mikið að spUa þar þá. Það
gekk mjög vel þannig að við fórum
að spila oftar."
Stelpurnar spila líka á Prikinu.
Haraldur Ólafsson
Tvifararnir að þessú sinni eru skuggalega líkir þannig að í raun mætti
halda að hér væri einn og sami maður á ferðinni. Það muna aUir eftir
Robocop úr samnefndri kvikmynd þar sem hann lét vondukarlana al-
deilis finna fyrir því. Veðurfræðingurinn Haraldur Ólafsson ætti líka að
vera kunnuglegur, en hann hefur fært okkur veðurfréttirnir í fjölda ára.
Hann er reyndar einnig þekktur fyrir að láta Ulmenni kenna á því, t.d.
hefur hann farið barist af miklum krafti fyrir bættri stærðfræðikennslu
í grunnskólum landsins auk þess sem hann nánast stofnaði sinn eigin
skóla í verkfaUinu um daginn. Þannig sýndi hann launanefnd sveitarfé-
laganna i tvo heimana þannig að þegar öUu er á botnin hvolft þá eru þeir
Haraldur og Robocop að fást við það sama, enda líkir í meira lagi.
Þær hringdu í eigandann sem var
tregur tU þar sem hann hafði
aldrei heyrt í þeim. „Við hringd-
um þá bara í plötusnúðinn sem
var þá um helgina og klíndum
okkur á hann og fengum að spila
með honum." Aftur hlæja þær
vinkonur dátt og hafa greinUega
húmor fyrir sjálfum sér.
Auðvitað er þetta svolítil
tækni
Það er búið að vera mikið að
gera hjá stelpunum og þeim finnst
þetta alveg rosalega gaman. „Það
er náttúrulega best í heimi að vera
að djamma við uppáhaldstónlist-
ina þína með bestu vinkonu þinni
og fá borgað fyrir það. En auðvit-
að er þetta svolítil tækni. Maður
þarf náttúrulega að spila tónlist
sem heldur fólk-
inu inni og vera
snöggur að skipta
ef enginn er að
fíla það sem mað-
ur setur á.“
Stelpurnar byrja oftast á þvi að
spila soul- og fónk-tónlist, svo fara
þær út í gamla rokkslagara og
enda svo á hip hoppi. Þær eru ekk-
ert fyrir það að spila eitthvað
„commercial“ R&B. Þó virðist fólk
stundum halda að þær geri það.
„Við erum oft í glamúrgaUanum
þegar við erum að fara að spila. Þá
gerir fólk ráð fyrir því að við séum
að fara að spUa R&B. Við vorum
einhvern tíma að fara að spUa á
p’ if veetÍ'fe,Randy Crawf°ri & The Crusao
3 w°Ut v6 £ L°Ve Me ' Stevie Wonder
3.1 Want You Back - Jackson Five
t' t0 Jhe Music - Sty and the Family S
5. Move on Up - Curtis Mayfield
6. Close to Me - The Cure
7. Under My Thumb - The fíoliing Stones
8. Bigmouth - The Smiths
?nRepperus Deli9ht' Sugar Hill Gang
10. Gz & Hustlaz - Snoop Doggy Dog
19 Sf'd Kn°Ck you 0ut' LL C°°U
12. Varuð - Hjálmar
„Þetta var mjög skrautlegt
fyrst af því við kunnum
ekkert að stilla hljóðið og
vorum alveg að æra fólk.“
Prikinu og það var fuUt af rokkur-
um þar og
einn af þeim
kaUaði á okk-
ur: „Úúú á
bara að fara
að spUa Dest-
iny’s ChUd.“ Svo spUuðum við
bara rokk allt kvöldið," segir Erna
og hlær.
Þetta er búið að gerast
mjög hratt
Hvert kvöld er eins og æfíng
fyrir stelpurnar og þær stefna
bara á að verða betri. „Við erum
náttúrulega svo nýjar í þessu og
þetta er búið að gerast mjög hratt
hjá okkur, eiginlega bara alltof
hratt. Það eru aUir tilbúnir að
hjálpa okkur. Fyrstu kvöldin lá
við að við værum með vini okkar
í símanum aUt kvöldið til að
hjálpa okkur.“ Þær eiga nánast
engar græjur sjálfar en ætla að
kaupa sér mixer. „Flestir
skemmtistaðir eru með spUara en
það er nauðsynlegt að eiga mixer.
Það er líka svo leiðinlegt að vera
alltaf að fá græjur lánaðar. Svo
stefnum við bara á að bæta okkur.
í öllu sem við gerum."
Það er nóg að gerast á næstunni
hjá EUen og Ernu. Þær spila á
galakvöldi á Prikinu á nýársdag,
ásamt Qórum öðrum stelpuplötu-
snúðum. Síðan enda þær jólahátíð-
ina með því að spUa á Kaffí-
barnum á þrettándanum.
f Ó k U S 17. desember 2004