Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Qupperneq 3
XJV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 3 Skölusalan Mn á Ragnar Hauksson fisksali er byrjaður að moka út skötu fyrir Þorláksmessuna. Hann segir að skötusalan hafi tekið talsverðan kipp í byrjun vikunnar og margir ætli að halda skötuveislu nú um helgina. „Það hefur komið töluvert af fólki að versla skötu hjá mér í vikunni. Það er nokkuð um það að fólk kaupi þetta fyrir vini og vandamenn sem eru búsettir erlendis og svo eru auðvitað marg- ir sem halda skötuveislu um helgina,“ segir Ragnar hjá Fiskbúð Hafliða á Hverfisgötunni. Sjálfur segist hann borða skötu á Þorláksmessu og það hafi hann gert frá því í æsku. „Það var reyndar alltaf skata á mínu heimili á laugardögum héma einu sinni en núna er hún bara borðuð um jólin. Mér finnst skatan vera ómissandi hluti af jólagleðinni og svona gaml- ar hefðir eiga fullan rétt á sér. Ég vona bara að sem flestir prófi Mestu marka- skorarar brasilíska landsliðsins þetta," segir Ragnar. Þegar hann er spurður að því hvort bragðið sé jafn vont og lyktin segir hann svo ekki vera en talar þó um „bakfallsskötu". „Menn taka nefrúlega smá bakfall þegar þeir bera gaffalinn upp að munninum og finna lyktina," segir Ragnar sem býður upp á þrjár tegundir skötu fyrir þessi jól. Munurinn felst í hversu vel skatan sé kæst. „Þetta skiptist í létta skötu, miðlungs og svo alvömskötu fyrir atvinnumennina. Svo er meðlætið alveg jafn ómissandi og sjáif skatan," segir Ragnar og talar um kransæðakítti í því sambandi þar sem meðlætið er ekki beint það hollasta á markaðnum. „Mörinn og hamsatólgin verða að fylgja með en bara í hófi,“ segir Ragnar hjá Fiskbúð Hafliða sem er greinilega alveg jafn umhugað um heilsu viðskiptavina sinna og ánægju. Spurning dagsins Hvað verður í matinn á aðfangadagskvöld? Heitsvið „ Við ætlum að borða heit svið í ár enda erum við ekki hrifin afþungum mat. Með sviðunum erþetta venjulega; kartöflur, rófustappa, uppstúfur og grænar baunir." Anna Sigríður Helgadóttir söngkona. „Ég ætla að borða svína- l / hamborgar- hrygg. Hann er alltafá jólun- um hjá okkur „Við erummeð sænsk/íslensk jól með írsku ívafi. Annað hvort verðum við með ham- borgarhrygg eða lamb. Á jóladag erum viö með sænska jólaskinku og effólk erenn með matarlist á gamlársdag þá verður annað hvort endurtekn- ing eða bara ýsa með kartöfl- um.“ Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður. „Ég ætla að borða léttsteikt hreindýrafillet en verð þó með hamborgar- hrygg fyrir börnin. Að sjálfsögðu elda ég matinn enda erþað stór hluti afjólunum." Sigurjón ívarsson matreiðslumaður. Hamborgarhryggurinn er af mörgum talinn jólaréttur fslendinga, ekki síst eftir að rjúpnaveiðar voru bannaðar. Margir kjósa þó að breyta til. og efþað myndi breytast fyndust mér jól- in ekkieins." Sesselja Thorberg Sigurðar- dóttir iðnhönnuður. „Ég ætla að borða ham- borgarhrygg. Þetta skiptir mig samt ekki miklu máli og ég gæti vel hugsað mér að borða léttreykt trippakjöt í öll mál." Kristinn Snæland leigu- bílstjóri. NAFN TÍMABIL í LANDSLIÐINU MÖRK ALLS 1. Edson Arantes do Nascimento PELE 1957-1971 2. RONALDO Luis Nazario de Lima 1994-2004 3. ROMARIO de Souza Faria 1987-2001 4. Artur Antunes Coimbra ZICO 1971-1989 5. Jose Roberto Gama de Oliveira BEBETO 1985-1998 6. RIVALDO Vito Borba Ferreira 1993-2003 7. Jair Ventura Filho JAIRZINHO 1963-1983 8. ADEMIR Marques de Menezes 1945-1953 9. Eduardo Goncalves de Andrade TOSTAO 1966-1972 10. Thomaz Soares da Silva ZIZINHO 1942-1957 Amerískar lúxus heilsudýnur Berðu saman verð og gæði SPAKMÆLI ÞAÐ ER STAÐREYND Apríl er grimmastur mánaða. - T.S.EIiot ÞEIR ERU BRÆÐUR Tannlæknirinn & skrifstofustjórinn Þórarinn Sigþórsson tannlæknirog Guðmundur Sigþórs- son landbúnaðarfræðingur eru bræður. Þórarinn, sem er 66 ára, er best þekktur sem Tóti tönn og er landsþekktur laxveiðimaður. Guðmundur, sem er 64 ára, hefur verið skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu en starfar nú að sérverkefnum í Brussel fyrir landbúnaöaráðuneytið og iðn- aðarráðuneytið. Bræðurnir eiga fimm önnur systkini. For- eldrarþeirra eru Sigríöur Guðmundsdóttir húsmóðir og Sigþór Karl Þórarinsson, hreppstjóri f Einarsnesi. ... aðfyrsti nóbelsverðlauna- hafinn íbók- menntum, Sully- Prudhomme frá Frakklandi, er nú öllum gersamlega gleymdur. bctmolojsy so advanced. JTURN- _________ ekkjan Skipholt 35 Simi 588 1955 www.rekkjan.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.