Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Page 8
8 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004
Fréttir DV
Gestir Draugabarsins á Stokkseyri voru furðu lostnir þegar Jóakim Tryggvi
Andrésson fangavörður réðst ítrekað á gesti Rolling Stones-hátíðar. Lögreglan hef-
ur sent líkamsárásarkæru á hendur honum til Ríkissaksóknara.
sfld frá
íslendingum
í Norska Fiskeribladet er
haft eftir Rögnvaldi Hann-
essyni, prófessor við Versl-
unarháskólann í Björgvin í
Noregi, að Norðmenn eigi
að veiða eins mikið og þeir
geti af risaárgangi norsk-ís-
lensku sfldarinnar sem
fannst fyrir skemmstu svo
hún gangi ekki inn í ís-
lensku lögsöguna. Deilur
hafa lengi staðið um veiðar
á norsk-íslensku sfldinni
milli þjóðanna en Rögn-
valdur ráðleggur Norð-
mönnum þetta þar sem
hann segir að íslendingar
myndu sjálflr gera það
sama.
Bíóhöllin
boðin út
Bæjarstjóm Akraness
hefur samþykkt að bjóða
rekstur Bíóhallarinnar út á
næsta ári. Þetta kemur
ffam á
frétta-
vefnum
Skessu-
horn.is.
Bæjarrit-
ara hefur verið falið að
leggja fyrir bæjarráð tillögu
að útboðsgögnum þar sem
m.a. verið gert ráð fyrir að
kaupstaðurinn styrld starf-
semi hússins áfram og að
séð verði til þess að haldið
verði úti kvikmyndasýning-
um, leiksýningum og tón-
leikum og að menningar-
hópum eins og Skagaleik-
flokknum verði gert kleift
að nýta húsið.
Reikningur-
inn drap hana
Lögfiræðingar í Green-
ville í Norður-Karolínu í
Bandaríkjunum kanna nú
hvernig stóð á því að raf-
magn var tek-
ið af íbúð El-
ízabetar
Verdin 89 ára
með þeim af-
leiðingum að BÍIP
hún dó úr kulda. Lík henn-
ar fannst á dögunum í
íbúðinni en hún hafði ekki
greitt rafmagnsreikninginn
sinn um síðustu mánaða-
mót þannig að rafmagnið
var tekið af íbúðinni 6. des-
ember. Starfsmenn raf-
magnsveitunnar segjast
hafa ítrekað reynt að ná tali
af frú Verdin en ekki tekist.
Nú hefur rafmagnsveitan
sent frá sér tilkynningu um
að rafmagn verið ekki tekið
af þeim sem ekki greiða á
réttum tíma og notendum
er bent á að semja um
skuldir sínar við fyrirtækið.
Fangavörður trylltist
á Draugabarnum
Jóakim Tryggvi Andrésson, fangavörður á Litla-Hrauni, hefur
verið kærður fyrir líkamsárás á Draugabarnum á Stokkseyri að-
fararnótt 26. september. Málið er í vinnslu saksóknara.
Árásin átti sér stað á Rofling Sto-
nes-hátíð sem haldin var í tilefni
þess að fimm ár voru liðin síðan
Mick Jagger hitti Ólaf Helga Kjart-
forstöðumann Litía-Hrauns,
vinnslu fréttarinnar í gær.
ansson, sýslumann Árnesinga, sem
þá var sýslumaður á ísafirði. Ólafur
Helgi var verndari hátíðarinnar.
Aflt fór hins vegar í háaloft þegar
Jóakim fangavörður missti stjóm á
sér og lenti í átökum við marga
menn.
Barði maka fangavarðar
Samkvæmt frásögn vitna kýldi
Jóakim ungan mann frá Stokkseyri
inni á Draugabarnum. Ekki sá mik-
ið á piltinum.
Fyrir skemmstu var Jóakim aftur
til ófiriðs eftir að hafa neytt áfengis.
Að lokinni jólaskemmtun fanga-
varða fauk í Jóakim og hann lenti í
áflogum við maka annars fanga-
Ólafur Helgi Kjartansson SýslumaðurÁr-
nesinga var verndari Rolling Stones-hátíðar-
innar sem fór íháaloft.
varðar. Fangavörðurinn vildi ekki
ræða málið eða gefa upp hvort at-
vfldð hefði verið kært.
Jóakim, sem æfði á árum áður
júdó, réðst einnig á mann fyrir utan
Draugabarinn sama kvöld, að því er
virtist algerlega að tilefhislausu.
„Hann réðst aftan að mér, tók mig
hálstaki og sneri mig niður. Það
komu góðviljamenn og losuðu
hann af mér. Ég er ekki ofbeldis-
maður og kann ekki að slást," segir
Gunnar Einarsson, sem búið heftir
á Stokkseyri í fjölda ára. Uppruna-
lega er hann frá Færeyjum.
Berja Gunna Færeying
„Ég þekki varla manninn," segir
Gunnar um árásina. „Þetta byrjaði
inni á Draugabarnum. Hann talaði
við annan fangavörð og spurði:
„Eigum við ekki bara að berja
Gunna Færeying?” Hann reyndi oft
að kýla mig en tókst ekki. Svo var
honum hent út. Þá sat hann fyrir
mér,“ segir hann.
Gunnar vildi í upphafi kafla til
lögreglu og kæra árásina, en segist
ekki hafa látíð verða að því, þar sem
nærstaddir reyndu að lægja öldurn-
ar. „En maðurinn er vitíausu megin
á Hrauninu," segir Gunnar um
fangavörðinn sem tók hann fang-
brögðum.
Hefur heyrt af málinu
Valtýr Sigurðarson fangelsis-
málastjóri hefur ekki gripið til
neinna ráðstafana vegna ofbeldis-
hegðunar Jóakims. „Þetta verður að
fá að ganga í gegnum kerfið. Annars
fer það eftir eðli mála til hvaða að-
gerða er gripið. Ég hef heyrt ávæn-
ing af málinu, en það er ekki komið
upp á borð til mín. Það er forstöðu-
maður Litía-Hrauns sem með-
höndlar málið. Síðan skoðum við
þetta með honum," segir Valtýr.
Ekki náðist í Kristján Stefánsson,
Sleginn
Jóakim fangavörður ber við
minnisleysi þetta kvöld. Þegar Roll-
ing Stones-hátíðin stóð sem hæst,
og Jóakim var á spjafli við félaga
sína, fékk hann að eigin sögn höf-
uðhögg úr launsátri. „Ég var bara
sleginn þar sem ég sat. Það kom
maður út úr þvögu og sló mig í ut-
anvert höfuðið. Ég sá þennan mann
ekki og veit ekki hver það getur hafa
verið. Eftir það man ég ekki hvað
gerðist, en ég man allt fyrir það,“
segir hann.
Jóakim segir það ekki þægilegt
að vera kærður fangavörður. „Enn
þá verra er að vita ekki hvað hafði
gerst. Ég var bara að tala við fólk við
borðið þegar ég var sleginn og
man ekki annað en að síðar
réðst á mig hópur
manna."
Spurður um slags-
málin eftir jólahlaðborð
fangavarða hefur Jóa-
kim þær skýringar að
hann hafi verið sleginn.
„Ég var bara sleginn
aftur. Það var rifrilfdi,
ekki neitt neitt."
Jóakim hefur orð
á sér fyrir að vera
slæmur með víni.
Eftir hlaðborðs-
slagsmálin, átök-
in á Draugabarn-
um og dóm vegna
ölvunaraksturs
fyrir nokkrum
árum hefur hann
ákveðið að leggja
flöskuna á hiíl-
una. „Ég er hætt-
ur að drekka. Það
er nóg fyrir mig
að fá tvö högg,"
segir hann.
jontrausti@dv.is
við „Hann talaði við ann-
an fangavörð og
spurði: Eigum við ekki
bara að berja Gunna
Færeying?"
Garðar Viðarsson vörubílstjóri slapp ótrúlega vel þegar vörubíll hans valt á hliöina
„Ég var svo heppinn að vera ekki í bílbelti"
„Ég er bara guðslifandi feginn að
hafa sloppið lifandi út úr þessu,"
segir Garðar Viðarsson 25 ára vöru-
bflstjóri sem slapp á undraverðan
hátt úr bflveltu með því að kasta sér
yfir í farþegasætið. Garðar hafði ver-
ið að vinna allan daginn og var að
losa næstsíðasta fflassið af vörubfln-
um þegar óhappið átti sér stað. „Ég
var búinn að bakka og ætlaði að
setja hlassið niður en þegar pallur-
inn var kominn upp í topp fór bfll-
inn að leka á hliðina," segir Garðar
Hvað liggur á?
og bætir við að hlassið hafi verið
frosið á pallinum sem hefði leitt til
þess að bfllinn fór á Jiliðina auk þess
sem vagninn hafi lengi verið skakkur
á bflnum. „í raun og veru gerðist
þetta ekki nema á nokkrum sekúnd-
um en mér fannst þettta gerast í al-
gjörum rólegheitum. Ég var svo
heppinn að vera ekki í bflbelti því ég
veit að annars hefði ég drepist, enda
krumpaðist bfllinn alveg saman þar
sem ég sat." Fimm ára dóttir Garð-
ars hafði verið með honum í bflnum
allan daginn en hann var nýbúinn
„Það liggur akkúrat ekkert á öðru en að passa sig á að jólin rúlli ekki yfir mann og
hafa það natalegt fyrirjólin. Og það liggur á að passa að vera góður við dýrin alla
tlð og alla tíma. Það á alltafað hugsa fallega um dýrin."Segir Margrét Dögg
Halldórsdóttirm yfirdýrahirðir f Húsdýragarðinum.
að skila henni heim áður en slysið
átti sér stað.
Garðar sat fastur í bflnum í
nokkrar mínútur en náði að komast
út um það leyti sem lögregluna og
sjúkrabfl bar að. „Ég skalf eins og
hrísla og var í algjöru sjokki. Fyrst
var ég alveg ruglaður og var smá
tíma að átta mig á því hvað hefði
gerst og gerði það ekki almennilega
fyrr en um kvöldið."
Garðar slapp nánast ómeiddur
úr slysinu en fékk þó þungt högg á
mjöðmina. „Ég er aumur í mjöð-
minni og með smáseiðing í bakinu
en annars er ég við hestaheilsu. Ég
veit að ég á eftir að vera smeykur
við að fara upp í vörubfl aftur en ég
keyri það bara af mér. Ég er búinn
að vera í þessum bransa í meira og
minna í þrjú ár og er með þessari
vinnu að sinna áhugamáli mínu svo
ég læt þetta ekki stoppa mig," segir
Garðar og bætir við að hann ætíi sér
þó að taka sér frí frá vinnu fram yfir
jóL
indiana@dv.is