Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 Fréttir DV Rakel Ágústsdóttir hefur verið bundin við hjólastól allt sitt líf eftir heilalömun í kjölfar heila- himnubólgu sem hún fékk nokkurra daga gömul. Nýr hjólastóll kemur til með að gjörbreyta lífi Rakelar sem getur nú staðið upprétt með hjálp stólsins sem er einn sá fyrsti sinnar gerðar sem tekinn er í notkun á íslandi. DV heimsótti Rakel þegar hún prófaði stólinn í fyrsta skipti og skálaði í kampavíni í tilefni dagsins sem var stór í hennar huga. Stóð upp og skálaði mrnU J A f f I |/| B/| eflir 18 ar Bíður eftir nýjum hjólastól Þórey Rut var mjög spennt þegar hún sá nýja stólinn hennar Rakelar enda á hún von á sambærilegum stól fljótlega þó hún reikni varla með að það náist fyrir jól. Henni er nokkuð sama um það enda eiga íþróttirnar hug hennar allan. Hún keppir með íþróttafélagi fatlaðra í boccia og stefnir á þátttöku í Malmö open sem fram fer í byrjun :_________ febrúar á næsta ári. „Við erum enn Þórey Rut Þykir fátt skemmtilegra en að að safna fyrir ferðinni," segir Þórey spila boccia og á von á að fá nýjan stól eins sem hlakkar eiginlega meira til þess °9 Rakel- að komast út heldur en til jólanna dýrt að fara í svona keppnisferð sem hún er ekkert stressuð yfir. „Ég enda þurfum við fatlaðir marga að- hef meiri áhyggjur að því að ná inn stoðarmenn," segir Þórey og vonast peningum svo við komumst til tii að dæmið gangi upp þótt tíminn Malmö og getum keppt þar. Það er sé stuttur. Ástinni fylgir drasl „Ég vil bara búa ein þó ég elski kærastann minn mjög mikið," segir Kristín Jónsdóttir sem býr á sambýlinu Rangárseli. Hún er ást- fangin en segir sambúð með sín- um heittelskaða ekki koma til greina þar sem hann er svo mikill sóði. Þó trúlofuðu sig fýrir þremur árum en ætla ekki að gifta sig. „Það er erfitt að vera svona fötluð. Mér hefur alltaf verið mik- ið strítt, alveg sfðan ég var krakki," segir Kristín sem nú er hundgöm- ul að eigin sögn, orðin 42 ára. Auk þess að vera hreyfihömluð er Kristín þroskaheft og á erfitt með að tala skýrt. Hún er búin að ganga frá öllum undirbúningi fyrir jólin og keypti allar jólagjafir fýrir löngu, hún segist bæði gefa peysur og lampa í jólagjöf, flestir pakkarnir eru mjúkir. Kristín vinnur við að brjóta saman þvott. Hún hlakkar til jól- anna sem hún ætlar að njóta með unnusta sínum en hann býr á sambýli annars staðar í bænum. Þau reyna að hittast eins oft og þau geta enda afar ástfangin. „Ég nenni ekkert að gifta mig. Hann gengur líka svo illa um,“ segir Kristín sem tekur snyrtilegt heim- ili sitt fram yfir ástina og draslið sem henni getur fylgt. Kristfn með jólapakka Hlakkartiljólanna sem hún ætlar að njóta meö kærastanum. „Þetta er kraftaverki lfkt," sagði Rakel Ágústsdóttir þegar hún stóð ldðrétt með hjálp nýja hjólastólsins sem gjörbreytir hennar h'fi. Rakel hefur verið bundinn við hjólastól alla sína ævi enda mikið hreyfíhömluð eftir að hafa fengið heilahimnu- bólgu nokkura daga gömul sem orsakaði varanlega heilalöm- un. Hún hefur htið getað gert án aðstoðar hingað til og því kemur nýi stóllinn th með að breyta miklu fyrir hana. hún oft orðið fyrir slysum vegna hreyfihömlunar sinnar. Síðast fyrir fimm árum brotnuðu í henni fimm tennur þegar hún datt fram úr rúmi á hótelherbergi í London. Kraftaverkastóll á tvær milljónir Kraftaverkastóllinn kostar hátt í tvær milljónir og er einn af þeim fyrstu sinnar gerðar sem fram- leiddur er. Hann gerir þeim sem hann notar kleift að vera í lóðréttri stöðu í stólnum og „standa" þannig í augnlínu við annað standandi fólk. Rakel segir þenn- an stól mikla byltingu frá þeim gamla sem var orðinn 6 ára. Auk þess að eiga möguleika á að vera í lóðréttri stöðu í stól sínum getur hún líka lagt hann alveg út af í lárétta stöðu. Rakel er búin að kaupa allar jólagjafirnar og segist hafa eytt um það bil 30 þúsund krónum í þær. Hún ætlar að nota tímann vel yfir jólin til þess að læra á nýja stólinn sem er svo stór hluti af hennar líf. Dáir dönsku konungsfjöl- skylduna Á stólnum eru margar flóknar stillingar sem hún á eftir að prófa en nýjasta tækni og vísindin koma heldur betur til með að auka lífs- gæði hennar. Rakel stefnir enn að því að klára menntaskólann en hún nýtur þess að lesa góðar bæk- ur og þá helst ástarsögur. Hún er alveg hörð á því að fara til útlanda næsta sumar en hún lætur ekkert stöðva sig þrátt fyrir mikla fötlun. Hún er byrjuð að safna fyrir ferðinni sem að öllum líkindum verður farin til Kaupmannahafn- ar, en Rakel er einlægur aðdáandi dönsku konungsfjölskyldunnar og hanga myndir af henni um alla íbúð Ukt og hún væri hennar eigin fjölskylda. freyr@dv.is ég kemst ekki undir þau lengur vegna þess að ég sit mun hærra núna," segir Rakel sem er mikið jólabarn og ætlar að eyða jólunum með fjölskyldu sinni. Hún hefur hingað til gist hjá foreldrum sínum yfir hátíðarnar en ætlar nú að vera heima í sínu eigin rúmi. „Það er skrítið að geta staðið svona í lapp- irnar. Síðast þegar ég gat staðið svona var ég sjö ára gömul. Þá hafði ég enn mátt í löppunum til þess," segir Rakel sem segist enn finna fyrir miklu óöryggi í lóðréttri stöðu sem hún er alls ekki vön. Hún veit samt að hún dettur ekki þó að jafnvægisskyn hennar hafi ekki aðlagast þessari nýju tilfinn- ingu. Rakel hefur fulla ástæðu til þess að vera óörugg enda hefur „Þetta er besta jólagjöf sem ég hef fengið," sagði Rakel þegar hún skálaði í kampavíni við starfsfólkið á sambýlinu að Rangárseli sem hafði búið til brauðtertu fyrir Rakel í tilefni dagsins. Stóllinn gefur henni kost á að vera í lóðréttri stöðu sem gerir henni kleift að ræða við fólk í réttri augnhæð. Nú getur hún lfka náð í hluti í mun meiri hæð og getur til dæmis farið að nota effi skápana í eldhúsi sínu. Hún er þó búin að átta sig á því að það þarf að gera ýmsar breytingar þar sem kraftaverkastóllinn er stærri en sá gamli. Gat staðið þegar hún var sjö ára „Það þarf að hækka borðin hér, Rakel prófar nýja stólinn Stóllinn gjörbreytir Iffi hennar þvl Ihonum getur hún bæði staðið og legið. Skálað í kampavíni Rakel bauð starfsfólki sambýlisins að Rangárseli upp á kampa- vín i tilefni dagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.