Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 Sport DV Auðvelt hjá Barcelona jh Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er búinn að tendra bálið fyrir leik Chelsea og Barcelona í meistara- deUdinni með því að segja að Barca hafa það náðugtídeildinni áSpáni W ólíktþví ____> ; sem gerist á Ijr Englandi. „Barcelona hefur það náðugt : á Spáni. Real Madrid og Valencia eru ekki j eins sterk og áður og þar að auki langt á eftir þeim. Svo getur Deportivo ekkert í lengur. Þar með geta þeir undir- búið sig betur en við fyrir átökin í meistara- deildinni. Það er \^{ barátta hverja ^ j einustu viku á Englandi og fleiri góð lið sem geta blandað sér í toppbaráttuna en á Spáni. Ég hef meiri áhuga á að vinna ensku deildina en meistaradeildina þar sem ég hef unnið hana áður. Ég hef aldrei orðið enskur meistari og mér finnst gaman að vinna nýja bikara," sagði Mourinho. \ Einar Orn sjóðheitur v íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í Evrópu um helgina og gerðu fína hluti eins og oftast. Einar öm Jónsson átti a stórleik fyrir Wallau Massenheim A'\ 4-n og skoraði / /sjömörk gegn Gumm- ' ersbach, liðinu sem Guðjón Valur Sigurðsson mun leika með á næstu leiktíð, en það dugði ekki 'a tiJ þar sem Gummer- ift \ sbach vann leikinn, | ", 35-27. Guðjón Valur i átti sjálfur ekkert sérstakan leik er lið hans, Tusem Essen, tapaði fyrir Flensburg, 27-24. Guðjón skoraði tvö mörk í leiknum. Ólafur Stefánsson skoraði síðan þrjú mörk fyrir Ciudad Real er þeir sigruðu BM Almeria í spænska boltanum, 33-22. Juventus, AC Milan, Barcelona, Valencia! Þau verða ekki mikið stærri félögin og innbyrðis leikir þessara liða eru yfirleitt alltaf gríðarlega spennandi. Undantekn- ingin varð þó um helgina þegar jafntefli varð niðurstaðan í báðum leikjum. Stórleikirnir stóðu vart undir nafni Tveir stórleikir voru á dagskrá í fótboltanum í Evrópu um helg- ina. Á ftalíu leiddu saman hesta sína Juventus og AC Milan en bæði lið hafa verið í sérflokki í deildinni í vetur. Hins vegar mættust Barcelona og Valencia í Barcelona. Séu dagblöðin í Mílanó skoðuð má því sem næst bóka að AC Milan hefiir sett aðra hönd á ítalska meist- aratitilinn með jafiitefli sínu gegn toppliði Juventus frá Tórínó um helg- ina. Séu hins vegar dagblöð úr þeirri borg lesin má glöggt sjá að fyrst Mil- an gat ekki unnið lakasta Juventus- lið í marga mánuði sé titillinn geng- inn þeim úr greipum. Stórleikur þessarar umferðar í Seríu A var án efa viðureign Juve og AC Milan, en liðin vom í tveimur efstu sætunum fyrir leikinn og í sér- flokki á þessari leiktíð. Juventus var með íjögurra stiga forskot þegar leik- urinn hófst og því miður fyrir Milan tókst þeim ekki að minnka þann mun og endaði leikurinn í marka- lausu jafntefli. „Við áttum í höggi við bestu vöm í Evrópu og sköpuðum okkur mörg tækifæri sem þó tókst ekki að nýta,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, eftir leikinn. „Við vorum betri aðil- inn allan leikinn og stöðvuðum Juve auð- veldlega hvar sem var á vellinum. En um það deilir enginn sem sá leildnn að Milan var betra liðið og það er afar jákvætt." Kominn tími til Þó ekki hafi það farið ýkja hátt þá tókst Milan að koma í veg fyrir að leikmenn Juventus skomðu mark, en það er í fyrsta sinn síðan í október 2001 sem það gerist á Delle Alpi. Fyrir leikinn haifði liðið spilað alls 53 leiki í röð á heimavelli þar sem þeir skor- uðu eitt eða fleiri mörk. Fabio Capello, stjóri Juve, sagði frammistöðu liðs síns eina þá verstu í vetur. „Það var nokkum veginn sama hvert á völlinn var litið, allir vom að gera bamaleg mistök og ég hætti að kalla til leikmanna vegna þess þegar líða tók á leik- inn. Það verð- ur að viður- kennast að jafntefli em góð úrslit mið- að við spila- mennskuna." j Stemning Á Nou Camp í Barcelona var þéttsetinn bekkurinn þegar Valencia kom í heimsókn. Valencia er næst á eftir Real Madrid þegar kemur að fjandskap milli félaga og sigur er undantekningarlaust krafa beggja liða. Þó undarlega megi virðast vantaði þann neista í lið Barca sem einkennt hefur leiki liðsins að imdanfömu og gert liðið að því það líklegasta til að vinna meistaradeild- ina. Valencia var bjartari aðilinn mestallan leikinn án þess að ná yfirhönd- mn Markið dugði ekki fionaldinho fagnar hér marki sinu gegn Valencia Það dugði ekki til sigurs. Fiore skor- aði eina mark Valencia á 62. mín- útu en tuttugu mínútum síðar jafiiaði Ronaldin- ho úr mjög umdeildri vítaspymu og kom þannig í veg fyrir fyrsta tap liðs- ins á heimavelli í vetur. Besti leikurinn „Þetta var að mínu viti besti leikur liðsins fyrir utan sigur okkar á Deportivo fyrr í '"etur og ég er allsáttur við stig- ið,“ sagði Claudio Ranieri, þjálfari Valencia. Karl- inn fór fögrum orðum um dómara leiksins en hann fékk á baukinn fyrir viku sína þegar hann gagnrýndi dómgæsl- una á Spáni harðlega. Kollegi hans hjá Barca, Frank Rijkaard, lét jafnteflið ekki slá sig út af laginu heldur. „Það er mikil pressa á liðinu og við höfum staðið undir henni. Jafii- tefli gegn sterku liði eins og Valencia er ekki ýkja slæm úrslit og ekkert til að hafa miklar áhyggjur af.“ albert@dv.is nekkiatiiboð billco.is Léttgreiðslur ■ Betri verð! Smiöjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110 155/80R13 frá kr. 4.335 185/65R14 frá kr. 5.300 þSÓt) 195/65R15 frákr. 5.900 195/70R15 8 pr.sendib.frá kr.8.415 JJíTÖÖ" Bolta bullið eftir Stefán Pálsson Keppni í klípu Sú var tíðin að Evrópu- keppnimar í knattspyrnu voru þrjár og allar álíka veigamiklar. Auðvitað þótti Evrópukeppni meistaraliða merkilegust, en bik- arhafakeppnin og UEFA-keppnin komu þar skammt á eftir. Sum árin gerðist það jafitvel að úrslita- leikir þeirra keppna vom öflugri en hjá meistaraliðunum, einkum áttl það við um UEFA-keppnina, þar sem sterkustu knattspymu- þjóðirnar áttu marga fulltrúa. Þessir tímar em liðnir, eins og glögglega kom í ljós í , síðustu viku. Þá vom ; leiknir lokaleikirnir : í riðlakeppni UEFA-bikarsins. Riðlakeppninni var komið á fót í örvænt- k ingarfullri tilraun til l að auka vinsældir k þessarar deyjandi l keppni, ekki I hvaö síst eftir að nokkur félög frá Skotlandi, Hollandi, Portúgal og víðar hótuðu að koma upp sinni eigin keppni - Atlantshafsbikamum. Ljóst er að riðlakeppni þessi breytti engu. Úrslit hennar fengu nálega enga athygli í fjölmiðlum, sem þess í stað biðu í ofvæni eftir drættinum í 16 liða úrslit meistara- deiidarinnar, sem þó fara ekld fram fyrr en eftir óratíma. UEFA-keppn- in er orðin sambærileg við deildar- bikarinn á Englandi og bikarkeppn- ir flestra Evrópulanda þar sem öll- um stendur á sama þar til komið er í undanúrslitin í fyrsta lagi. Það eina sem nálgaðist að vekja athygli íslendinga var sigur Aachen, sem komið er í 32 liða úrslitin. Þetta er léttir fýrir FH-inga, enda óneitanlega skárra að hafa verið kjöldregnir af spúmikliði keppn- innar frekar en einhverjum þýskum 2. deildarklúbbi. Sagnfræðingarnir fóm strax á stúfana til að reyna að finna út hvort þessi árangur Alemania Aachen væri met eða hvort önnur neðrideildarlið hefðu náð slíkum árangri. Eins og svo oft áður tókst grúskumnum að skjóta í kaf allar upphrópanir um einstakan árang- ur. Aachen er enn þá langt frá met- inu. Svo er vinum okkar frá Wales fyrir að þakka. Wales, eða Kymría eins réttara væri að nefna landið, er í þeirri furðulegu stöðu að halda úti sinni eigin deildarkeppni en öll bestu fé- lagsliðin (s.s. Wrexham og Cardiff) kjósa að leika í ensku deildinni. Til skamms tíma gátu sterkari liðin hins vegar keppt í kymríska bikam- um og þannig komist í Evrópu- keppni bikarhafa. Þótt Kymrar væm miðlungs- skussar í ensku deildarkeppninni, héldu þeim engin bönd í Evrópu. Þannig tókst Wrexham að slá Porto úr keppni um miðjan níunda ára- tuginn, örfáum árum áður en Portúgalar urðu Evrópumeistarar. Magnaðastur var þó árangur Newport County, þess ágæta liös sem nú er orðið gjaldþrota. Á keppnistímabilinu 1980-81 komst þriðjudeildarliðið Newport í fjórð- ungsúrslit Evrópukeppni bikar- hafa. Andstæðingamir vom austur- þýska liðið Carl-Zeiss Jena, sem einmitt mætti Eyjamönnum í Evr- ópukeppninni skömmu síðar. Litlu mátti muna að Newport, sem stát- aði af komungum framherja, John Aldridge, legði þá þýsku að velli. Jena komst hins vegar áfram og alla leið í úrslitin þar sem liðið tapaði fyrir sovéska Iiðinu Dynamo Tiblisi. Ahorfendur á þeim úrslitaleik vom rétt um 4.000 talsins eða á við miðl- ungsbikarúrslit á íslandi. Ahh... minningar, minningar!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.