Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2004, Side 25
DV Menning
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 25
Einstaklega vönduð og fjölbreytileg bók kom út í haust helguð starfsvettvangi Þjóðminjasafnins. Fjöru-
tíu höfundur greina á aðgengilegan hátt frá verkefnum safnins og gripum. Bókin er ríkulega mynd-
skreytt og einn fallegasti prentgripur sem komið hefur út á þessu ári.
í manna minnum hafa þrjú alþýð-
leg rit komið út um Þjóðminjasaftiið
og gripi þess. Kristján Eldjárn tók
saman rit á vegum Menningarsjóðs-
ins sáluga 1962 sem kallaðist
Hundrað ár í Þjóðminjasafni og var
fallegur gripur með stuttum gagn-
orðum textum um valda gripi í safn-
inu. Gersemar og þarfaþing var bók í
svipuðum anda eftir marga höfunda
en sýndi breiðari safnkost en hin
fyrri og kom út 1994. Það var því vel
tilfundið að draga saman yfirlit um
víðtæka starfsemi safnsins við lang-
þráða opnun þess. Ritið sýnir óvenju
breitt rannsóknarsvið og er sett sam-
an af þrjátíu og fimm greinum í sjö
köflum.
Skynjun á því liðna
Safnastarfsemi er eitt, annað er út-
gáfa á verkum sem tengjast safnkosti
og starfi saftia. Það er í verkahring
safhsins að koma að vísindalegri út-
gáfu, en ekki síður að teygja anga sína
út í samfélagið með sérritum og al-
mennum ritum, bæði í formi bóka og
bæklinga. Hatursmönnum hins sam-
félagslega ffamtaks kann að svíða það
en seint verður von á að einstaklings-
ffamtakið sinni þeim þætti í menn-
ingarlífi þjóðarinnar - að gefa út sérrit
um til dæmis aska. Sjá menn veitinga-
húsið Ask styrkja þá útgáfu að viti til
dæmis fyrir skólafólk?
Kaflaskipti
Hlutavelta tímans er í senn þjóðar-
saga og menningarsaga. Hugsun við
útíit verksins hefur leitt til þess að þar
er að finna á einni bók ríkasta mynda-
val af almennum og sérstökum grip-
um. Alfræðirit íslensk státa ekki af
öðru eins myndaúrvali. Þær eru ýmist
prentaðar í lit eða einlit, stundum tví-
lit. Hefur Ijósmyndun og prenmn
þeirra tekist með miklum ágætum.
Hér kallast svo texti og myndir á,
kaflaskiptin segja sína sögu um upp-
byggingu ritsins: Safti og samfélag,
Uppruni og elstu tfmar, Lífskjör og
viðurværi, Húsakynni og byggingar,
Atvinna og afkoma, Listir og handverk,
Félagsmenning og dægradvöl eru
kaflaheitin og sýna hversu vítt er leitað
til að koma viðfangsefnunum ttí sktía.
Nýtt land
Saga okkar innflytjenda á óspjall-
aða eyju er rakin ffá upphafi, þegar
sleppir inngangsköf.um - snjöllum
inngangi Péturs Gunnarssonar sem á
nafn ritsins og bætir um, fundvís á
einfaldar hugmyndir sem eru lýsandi,
safnið kallar hann Leikmunadeild
þjóðarleikhússins. Þeim Gunnari
Karlssyni og Árna Bjömssyni er gerð-
ur sá vandi að draga uppmnasögu og
búsetusögu í örfá orð og tekst það
með mikilli prýði, en þá fer hinum al-
mennari þáttum að fækka, gripir úr
kumlum og legstaðir em dæmi um
þau viðfangsefhi sem skoðuð eru í
næstu greinum. Vissir þú lesandi að
fornar grafir gátu ýmist verið sem
næst búsetustöðum eða við landa-
mörk? Grein Agnars Helgasonar um
uppmna okkar er helst til tyrfin miðað
við aðrar greinar ritsins.
Fræðirit um fornleifafræði
Kaflinn um Lífskjör og viðurværi
reynist grunnkennsla í fornleifaffæði:
hvað segja bein í jörð, og leiðir eðli-
lega yfir í umfjöllun um lækningar ffá
upphafi ffam á nítjándu öldina og
þaðan í yfirlit um mat og ferðir, húsa-
kost og kirkjur. Reynir þá á hug-
myndaflug lesanda sem er stutt ljós-
myndum og uppgröftrum og gmnn-
myndum af skálarústum, hér má sjá á
tíu síðum í knöppu og læsilegu formi
byggingarsögu aldanna. Af skálabygg-
ingum tekur við myndvæddara yfirlit
um torfbæinn fram að steinhúsum.
Kirkjubyggingarkafli Guðrúnar
Harðardóttur kemur líklega flestum
almennum lesendum á óvart. Smáar
kirkjubyggingar síðari alda gefa okkur
enga hugmynd um stórbyggingar
stólanna og væri margt óþarfara en að
reisa slíka ttígátukirkju.
Einn af kostum þessa rits er hversu
gott yfirlit má af því hafa um flókin
efnisatriði sem draga verður saman í
stutt myndlýst mál. Kafli um atvinnu
og afkomu verður þannig í sjö grein-
um býsna skýr úttekt á atvinnuþátt-
um í lífi þjóðarinnar: uppruni og nýt-
ing búfénaðar og jarðyrkja og fóðrun
taka eðlilega sitt pláss, ásamt tóvinnu.
Sjósókn og vélvæðing leiða yfir í versl-
un og vöruskipti, eðlilega. í öllum
þessum köflum tekst höfundum að
teygja sig á látlausan máta inn í
nútímann.
í kaflanum um Listir og handverk
rekja sex konur og einn karl hluta-
menninguna: klæðnað, kirkjulistina,
textíl og útskurð, málm og myndefni.
Þá er aðeins eftir kaflinn um félags-
menningu: hvernig maður var manns
gaman og hverjar minjar eru þar um í
heimtídum hlutanna: rímfræði -
dagatalið - og hátíðir, lestur og leikir,
íþróttir og tónlist.
Læsileg og fræðandi
Það leiðir af sjálfu sér að ritstjórn
og höfundum hefur verið ærinn
vandi á höndum að takmarka efnið,
halda texta lifandi í hraðri yfirferð
mettaðri af upplýsingum. Lýsingar
útgefenda eru upplýsandi en óþarfar.
Ritið er allt til mikils sóma fýrir þá
fræðasveit sem kölluð var til verks-
ins. Bókin er læstíeg, skemmtileg og
fræðandi. Hún er fallega frágengin í
útíitshönnun Fítons, fastbundin og
fer vel í hendi og verður að teljast
mikill sigur fyrir þá prentsmiðju sem
skilaði verkinu, Svansprent. Ekki þarf
að taka fram að bókinni fylgir nafna-
skrá.
Þá er bara eftir að þakka gott verk
og spyrja um leið hvað veldur því að
svo ágætur gripur skuli ekki hafa feng-
ið meiri kynningu á markaði - er kost-
urinn svo naumt skorinn að ekki finn-
ist fé ttí að kynna slflcan kostagrip? Og
aftur - hvað olli því að valneftidar-
menn ffæðirita íslensku bókmennta-
verðlaunna voru svo blindir að sjá
ekki hvflíkur ágætisgripur Hlutavelta
tímans er - átti safnið ekki fyrir til-
nefningu?
Þjóðin hefur eignast mikið ágætis-
rit um tilurð sína og safnið sitt. Megi
það fara sem víðast sem flestum les-
endum til ánægju og skemmtunar.
Hlutavelta tímans -
Menningararfur á
Þjóðminjasafni
Ritstjórar: Árni Björnsson og
Hrefna Róbertsdóttir
Þjóðminjasafnið
Verð 8.990 kr.
Bókmenntir
| Jólatré af fjórum gerðum Frá
| vinstri: tré meö pappírsskrauti,
i mikiö skreytt tré frá 1927 sem
| skrauti var bætt á hverjól, tré
| smíðað 1949 og loks tré frá 1970.
Barátta við vindmyllur
I upphafí Aritunarmannsins eftir
bresku vonarstjörnuna Zadie Smith er
aöalsöguhetjan Alex-Li Tandem 12 ára
gamall. Hann er á leiðinni á glímu-
keppni I fylgd föðursíns og vina sinna
Adams og Rubinfmes. Áöur en kvöldiö
er liðiö hefur hann eignast nýjan vin,
faöir hans dettur niöur dauöur og Alex
verður sér úti um sína fyrstu eiginhand-
aráritun. Þetta eitt og sér gæti verið
ágætur efniviður í góða sögu, bæði
meö tilliti til áfallsins sem drengurinn
verður fyrir viö lát föðurins og einnig ef
hliðsjón er tekin afdrengjunum fjórum
sem eru afar ólíkir hvort heldur sem er
að upplagi, uppruna eöa innræti. En
hér er einungis sögð forsaga að stærri
og ólíkt flóknari sögu.
Þegar lesandi hittir Alex aftur eru 15
ár liðin frá glimukeppninni. Alex er I
slæmu líkamlegu og andlegu ásig-
komulagi enda að koma niður af
þriggja daga eiturlyfjatrippi sem hann
man lítiö eftir en I rússinu hefur hann
m.a. afrekað það að keyra með unn-
ustu sína inn í strætisvagnaskýli og eft-
ir þá ferð er bíllinn gjörónýtur og
kærastan fingurbrotin. Þegar hér er
komið sögu kemur I Ijós að Alex er árit-
unarmaðurað atvinnu en sú vinna
felst I því að leita uppi áritanir fræga
fólksins og selja öðrum söfnurum. Hver
safna.-i á sér slna áráttu og þráhyggja
Alex felst I því að verða sér úti um árit-
un kvikmyndastjörnu frá sjötta ára-
tugnum, hinnar dularfullu Kitty Alex-
andet. Ár eftir ár sendir hann Kitty bréf
án þess að fá svar en þegar loksins
berstfrá henni áletruð mynd, telja vinir
Alex að brögð séu í tafii og að Aiex hafi
I vímunni freistast til að falsa undir-
skriftina. Þeir reyna hvað þeir geta til
að fá Alex til að farga myndinni því
þeir eru hræddir um að hann missi
mannorðiö efhann reynir að selja
myndina.
Baráttan um myndina er aðeins einn
þráður í flóknum söguvef. Höfundur
gefur sér góðan tima til að kynna les-
anda ruglingslegan hugarheim Alex
sem, auk söfnunaráráttunnar, er að
skrifa bók um það sem aðgreinir gyð-
inga og„hina".Sjá!furerhann gyðingur
en trúir þó ekki á neitt eftir dauða föð-
ursíns nema frægðina sem hann innst
inni þráir. Þó bendir flokkunaráráttan
til þess að hann sé á einhvern hátt að
reyna að nálgast kjarnann í sjálfum sér
Áritunar-
maðurinn
Zadie Smith
Þýðandi: Helga
Soffia Einars-
dóttir
Bjartur 2004
Verð: 3.980 kr.
Bókmenntir
sem gengur reyndar illa því hann er
meira eða minna fullur eða skakkur og
þar meðá stöðugum flótta undan
sjálfum sér og öðrum.
Alex er sjálfhverfur og fullur píslar-
vættis en vinir hans úr barnæsku halda
tryggð við hann, að þvf er virðist afein-
hverri furðulegri, masókískri sjálfspynt-
ingarhneigð. Þeir vakta hann til skiptis
eins og hvert annað ungabarn, hringja
I hann i tíma og ótíma og reyna að
koma fyrir hann vitinu hvort sem það
tengist atvinnu, ástarmálum eða trúar-
brögðum og gefast ekki upp þótt Alex
þráist og þverskallist við öllum þeirra
heitræðum.
Zadie Smlth flókin og margbrotin saga
Áritunarmaðurinn er sérkennileg
saga sem fer hægt afstað og sýnist á
tímabili staðráðin í að drepa lesand-
ann úrleiðindum með alls kyns útúr-
dúrum sem fljótt á litið virðast engu
máli skipta fyrir framgang sögunnar.
En svo tekursagan óvænta stefnu sem
rekur Alex á vit ævintýra sem eru svo
spennandi að í óðagotinu við að kom-
ast að kjarna málsins stóð þessi les-
andi sig að því að fletta yfir margar síð-
ur í einu!
Þetta er flókin og margbrotin saga
um kreppu nútimamannsins sem á ör-
væntingarfullan, en um leið hjákátleg-
an, hátt leitar að frægð og frama. Isög-
unni felst ögrun sem ekki veröur litið
framhjá og þvi er lesandinn tiineyddur
að lesa áfram þó ekki sé nema í tilraun
til að komast til botns íAlex, sem berst
afmiklum móði við vindmyllur líkt og
félagi hans úr frægri bók. Allt I kring eru
Sansjó Pansjóar sem slást hetjulegri, en
einnig skondinni, baráttu fyrir lífi hans
og geðheilsu en hvort einhver, og þá
hver, ber sigur úr býtum er lesandans
að dæma.
Sigríður Albertsdóttir
% ' T r^n
ZADJEr
SltölTH,