Jólagjöfin - 24.12.1921, Síða 11
Jólagjöfin
9
inn veit aS mennirnir muni krossfesta son hans og margir
fyrirlíta bofSskap hans öld eftir öld — en samt sendir hann
hann; — þar sjáum vér kærleiksdjúp ofvaxiB vorum skiln-
ingi. — En þaðan stafa geislar svo bjartir, að skammdegis-
myrkur sorgar og eymdar hverfur á brott, þrátt fyrir það
þótt syndin sé aldrei eins hræðilega svört eins og þegar vét'
ihugum, hvað það kostaði Guð að frelsa menn úr helfjötrum
hennar; — og þaðan stafa geislar svo heitir að harðfenni efa-
semda og hjartakulda bráðnar — og verður að tárum, þegar
þeim er leyft að skína á það.
Undrunin snýst þá í gleði og þakkargjörð. Gleðin verður
óháð viðhöfn og skemtunum. Menn hraða sér í kirkj'u til að
syngja Guði sameiginlega lofsöngva, og trúað fólk hugsar
um það kyrlátar stundir heima hjá sér, hvað mikil gæfa sé
að eiga annan eins frelsara og Jesús Kristur er.
Sorglegt er að vísu að hugsa um alla léttúðina og hirðu-
leysið, sem hugsar meira um heiðin jól en kristin, — og lætur
sem erindi Krists sé sér óviðkomandi, og raunalegt er að minn-
ast sjúklinga og munaðarlausra, sem lítt fá að njóta ytri gæða
hátíðarinnar.
En sannkristinn maður veit að það eru margir góðir gestir á
ferð um jólin, sem litið bera á. Endurminningar koma víða, og
minna á jólin „heima hjá pabba og mömmu.“ Fer þá stund-
um svo að bænarandvörp hreyfa sér, þar sem margur hafði
sist ætlað: „Ó, að eg væri orðinn barn að nýju, og ætti jóla-
gleði og trúartraust barjisins, Drottinn, hjálpaðu mér út úr
myrkrinu!“ .... Greiðvikni og góðvild koma víða við og bæta
úr skorti, og lærisveinum Krists er það unun og gleði, ef þeir
geta gert eitthvað í þá átt, tekið einhversstaðar frá gluggun-
um, svo að jólageislar geti skinið inn í sorgmædd hjlörtu.
„Vér sáum frelsarann og því erum vér glaðir,“ hefðu hirð-
arnir sagt við þig, ef þú hefðir mætt þeim. — Guð gefi að
margir vor á meðal geti endurtekið þau orð, er þeir koma frá
jólaguðsþjónustum. — Jesús verður þar viðstaddur, og það er
ekki honum að kenna, ef þú sérð hann ekki. Það er ekki
áreiðanlegt, að þú verðir han$ var, þótt þú takir undir jóla-
söng, en verði þakklæti þitt svo einlægt, að þú getir ekki ann-
að en gefið honum hjarta þitt að jólagjöf, þá opnast augu þín,
og boðskapur englanna: „yður er frelsari fæddur í dag“ verð-