Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.2009, Page 81
TÍMASKIPTING JARÐARINNAR
Myndin á bls. 78 sýnir hve mörgum stundum þarf að bæta við (+) eða
draga frá (-) íslenskum tíma til að finna hvað klukkan er annars staðar
á jörðinni. Fáein lönd fylgja tíma sem ekki víkur heilum stundafjölda
frá xslenskum tíma. Petta er sýnt með tölum sem tákna frávikið í mín-
útum frá viðkomandi stundafjölda. Dæmi um þetta er Indland, þar sem
klukkan er 5 stundum og 30 mínútum á undan íslenskum tíma.
Á kortinu liggur óregluleg lína frá norðri til suðurs yfir Kyrrahaf.
Þetta er svonefnd dagalína. Tíminn vestan línunnar er sólarhring á
undan tímanum austan við, svo að dagsetningin breytist þegar farið
er yfir línuna. Línan krækir fyrir eyjaríkið Kíríbas sem spannar þrjú
tímabelti. Er klukkan þar 12, 13 og 14 stundum á undan íslenskum
tíma. Á bls. 91-95 eru upplýsingar um tíma í höfuðborgum ríkja.
Siimartími. í um það bil þriðja hverju ríki heims er klukkunni flýtt
að vori en seinkað aftur að hausti, venjulega um klukkustund. Reglur
um slíkan „sumartíma“ voru í gildi á Islandi um árabil (sjá vefsíðuna
„Um tímareikning á Islandi" á vefsetri almanaksins, almanak.hi.is).
Frá 1968 hafa klukkur á íslandi fylgt föstum tíma árið um kring. I
öðrum Evrópulöndum er klukkunni flýtt síðasta sunnudag í mars (nú
29. mars) en seinkað aftur síðasta sunnudag í október (nú 25. október).
I Bandaríkjunum og Kanada gildir sumartími frá 2. sunnudegi í mars
(8. mars) til fyrsta sunnudags í nóvember (1. nóv.).
NÁLÆGUSTU FASTASTJÖRNURNAR
Eftirfarandi tafla nær yfir allar þekktar fastastjörnur sem eru minna
en 10 ljósár frá jörðu. Með birtu er átt við birtustig, þ.e. sýndarbirtu á
hintni, samanber bls. 61. Fjarlægðin er tilgreind í ljósárum, og ljósafl og
massi miðast við ljósafl og massa sólar. Taflan sýnir að flestar stjörn-
urnar eru minni en sólin og rniklu daufari en hún.
Stjarna Fjar- lægð Birta Ljósafl Massi
Sólin -26,8 1 i
Proxima Centauri (í Mannfáki) ... 4,24 11,1 0,00005 0,1
Alfa Centauri A (í Mannfáki) 4,36 0,0 1.5 1.1
Alfa Centauri B (í Mannfáki) 4,36 1,3 0,4 0,9
Barnardsstjarna (í Naðurvalda) ... 6,0 9,5 0,0004 0,2
Wolf 359 (í Ljóninu) 7,8 13,4 0,00002 0,1
Lalande 21185 (í Stórabirni) 8,3 7,5 0,006 0,5
Síríus A (í Stórahundi) 8,6 -1,5 23 2,0
Síríus B (í Stórahundi) 8,6 8,4 0,002 1,0
L726-8 A (BL Ceti) íHvalnum .... 8,7 12,5 0,00006 0,1
L726-8 B (UV Ceti) íHvalnum .... 8,7 13,0 0,00004 0,1
Ross 154 (í Bogmanni) 9,7 10,4 0,0005 0,2
(79)