Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.2009, Side 87
Rúmmál
1 rúmmetri (m3) = rúmmál tenings sem er 1 metri á hvern veg.
1 lítri (1 eða L) = 1 dm3 = 1000 cm3 (millilítrar, ml). Pessi skilgreining
tók gildi 1964. Eftir eldri skilgreiningu var lítrinn 1,000 028 dm3.
1 pottur = 0,966 lítrar.
1 peli = i4 úr potti = um V* úr lítra.
1 síldartunna = 120 1. Tunnan er oft talin taka um 100 kg af síld.
1 olíutunna (barrel) = 42 galion (U.S.) = 159 lítrar.
1 rúmlest (brúttórúmlest) = 100 rúmfet (Br. og U.S.) = 2,83 m3.
1 gallon (U.S.) = 231 rúmþumlungur = 3,79 dm3 (lítrar).
1 gallon (Br.) =277,42 rúmþumiungar = 4,55 dm3 (lítrar).
1 quart (U.S.) = % gallon (U.S.) = 0,946 dm3 (lítrar).
1 quart (Br.) = ‘A gallon (Br.) = 1,14 dm3 (lítrar).
1 pint (U.S.) = % quart (U.S.) = 0,473 dm3 (lítrar).
1 pint (Br.) = V2 quart (Br.) = 0,568 dm3 (lftrar).
1 vökvaúnsa (fl oz, U.S.) = 1 /i6 pint (U.S.) = 29,6 cm3 (ml).
1 vökvaúnsa (ii oz, Br.) = 1 /20 pint (Br.) = 28,4 cm3 (ml).
Rúmmál 1 móls af lofttegund við 0 °C og staðalloftþyngd = 22,41 dm3.
Massi
1 kílógramm (kg) = massi sívalnings úr blöndu platínu og iridíns sem
geymdur er í Sévres í Frakklandi. I gildi síðan 1889.
1 pund (ísl.) = um V2 kg.
1 pund (lb, Br. og U.S.) = 0,453 592 37 kg.
1 mörk = um M kg.
1 tonn (metrakerfistonn) = 1000 kg.
1 tonn (U.S., „short ton“) = 2000 lb = 907 kg.
1 tonn (Br., „long ton“) = 2240 lb = 1016 kg.
1 smálest = 1 tonn = um 1000 kg. Þegar talað er um smálestir í sambandi
við stærð skipa, er venjulega átt við rúmlestir.
1 hundredweight (cwt) = 112 lb = 50,8 kg.
1 stone (Br.) = 14 lb = 6,35 kg.
1 únsa (oz, Br. og U.S.) = l/i6 lb = 28,35 g.
1 karat (í gimsteinum, alþjóðlegt) = 0,2 g. Um gullmálm er orðið hins
vegar notað til að lýsa hreinleika blöndunnar: 24 karata gullmálm-
ur er hreint gull.
Kyrrstöðumassi róteindar (prótónu) = 1,67 ■ 10-27 kg.
Kyrrstöðumassi rafeindar = 9,11 ■ 10"31 kg.
Efnismagn
1 mól (moi) = magn efnis í kerfi sem inniheldur jafnmargar efniseind-
ir og frumeindirnar eru margar í 0,012 kg (12 g) af kolefni 12
(12C), aðalsamsætu frumefnisins kolefnis. Grundvallareining í
hinu alþjóðlega einingakerfi síðan 1971. Þegar nafnið mól er notað
verður að vera ljóst, við hvaða efniseindir er átt, t.d. sameindir.
Fjöldi einda í 1 móli er nálægt 6,02 • 1023 (Avogadrostala).
(85)