Bræðrabandið - 01.01.1978, Blaðsíða 3
"Við lifum á tima endalokanna. Tákn
tímanna uppfyllast hratt og lýsa því
yfir, að koma Krists sé nálæg, fyrir
dyrum. Dagarnir, sem við lifiam á eru
alvarlegir og þýðingarmiklir. Smám
saman en ákveðið er Andi Guðs dreginn
frá jörðinni. Plágur og dómar leggjast
nú þegar á þá, sem fyrirlíta náð Guðs.
Voðaviðburðir á landi og sjó, upplausn-
in í þjóðfélaginu og stríðshljómurinn
eru fyrirboðar ills. Þetta segir fyrir
um komandi stórviðburði." Boðskapur til
safnaðarins 1.39.
Okkur er sagt að Drottinn muni koma að
leysa sitt fólk þegar ástandið í heim-
inum verður eins og það nú er. Saga
heimsins er senn á enda runnin. En
hefur boðskapur Guðs fengið að sama
skapi að nema land í hjarta okkar og
lífi? Það er knýjandi spurning fyrir
okkur í dag.
1 dag neytir Satan allrar orku
sinnar við að blekkja og skemma.
Postulinn segir: "Verið algáðir, vakið.
óvinur yðar, djöfullinn, gengur iim sem
öskrandi ljón, leitandi að þeim sem
hann geti gleypt." l.Pét.5,8. Það er
svo auðvelt að láta berast afvega.
"Margur vegurinn virðist greiðfær,
en endar þó á helslóðum."Orðskv.14,12.
Lystisemdir heimsins virðast ná tökim
á sumiam. Vegurinn til lífsins er of
mjór fyrir þá. Sumir vanrækja Guðs
orð og samkomur Guðs barna. í hjörtum
svimra hefur kærleikur til bræðranna
dvínað. Og of margir eru sinnulausir
og áhugalausir um kristniboðsstarf
safnaðarins, boðun hans og vitnisburð.
Brýnasta þörf okkar allra er að
viðurkenna að við erum syndarar sem
þurfum á náð Guðs að halda. Brýnasta
þörf syndara er að snúa sér til Guðs og
iðrast - daglega. "Snúið yður og nú til
mín, segir Drottinn, af öllu hjarta,
með föstum, gráti og kveini. Sundur-
rífið hjörtu yðar, en ekki klæði yðar
og hverfið aftur til Drottins, Guðs
yðar, því að hann er líknsamur og
miskunnsamur, þolinmóður og gæskuríkur..
(Jóel 2,12.13). Boðskapur Guðs nemur
land í hjarta okkar og lífi að svo
miklu leyti sem við leyfum honum það.
"Gjörið köllun yðar og útvalning vísa,"
sagði postulinn. Okkar hluti í hjálp-
ræðinu virðist vera óverulegur en það
litla sem við verðum að gera - að velja
Guðs veg og sannleika - er samt alger-
lega ómissandi.
Satan reynir að eyðileggja og
skemma. Með hungursneyð, flóðum,
jarðskjálftum, eldsvoðum og hernaði
leitast hann við að magna þjáningar,
sorg og dauða. Með ofbeldi og ofsókn
mun hann reyna að kippa stoðum undan
vintisburði Guðs barna. Með tilstilli
afla bæði innan og utan safnaðarins mun
hann stuðla að því að söfnuðinum fatist
í því ætlunarverki sem Guð hefur gefið
honvun að boða fagnaðarerindið allri
skepnu.
En hvað sem kann að henda okkur
megum við vita að "Guð er oss hæli
og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
Fyrir þvi hræðumst vér eigi." (sálm.46,
1.2.). Sá Guð sem leiddi ísrael til
forna yfir Rauðahafið og Jórdaná
mun vera með okkur árið 1978. Sá Guð
sem frelsaði Daníel frá munni ljónanna
og Sadrak, Mesak og Abed-Nego úr elds-
ofninum er líka hæli okkar.
"Gangir þú gegnum vötnin, þá er ég með
þér, gegnum vatnsföllin, þa skulu þau
ekki flæða yfir þig> gangir þú gegnum
eld, skalt þú eigi brenna þig, og log-
inn skal eigi granda þér: Því að ég
Drottinn, er Guð þinn, hinn heilagi í
ísrael frelsari þinn; ég gef Efyptaland
í lausnargjald fyrir þig, læt Bláland
og Seba í staðinn þín."(Jeö.43,2.3.)
Við kunnum að lenda í vanda á
nýbyrjuðu ári en ef Guð er' með okkur er
ekkert að óttast. Guð segir við okkur:
Tak í þig kjark, þú sem hræðist. Minn
frið vil ég gefa þér sem ert kvíðinn;
huggun þeim sem sorgin kveliir-j von þeim
sem örvæntir; sigur sigruðum. Guð
mun vera með okkur. Hann mun uppfýlla
hverja þörf okkar. Hann mun reynast
ekkjunni sem eiginmaður, faðir munaðar-
lausum, vinur vinsnauðum og frelsari
allra sem við honum taka. Þegar myrkur
grúfir yfir jörðinni og sorti yfir
þjóðunum (Jes .60,1.2.) mun hann vera
sem skær birta í bústöðum okkar eins og
hjá fólki Guðs hjá ísrael til forna í
Egyptalandi. Hann mun geta lægt öld-
urnar í huga okkar, hjarta og lífi
eins og á úfnu Galíuleuvatni forðum
er hann sagði: "Þegi þú, haf hljótt um
þig."
En slíkur sigur er því aðeins mögu-
legur ef við helgumst frelsaranum að
fullu og öllu og beygjum hjarta okkar
og líf fyrir honum. "Að beygja alla
hæfileika okkar og krafta fyrir Guði
6
3