Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 9

Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 9
HRIFIN LEYNILEGA? Sjá, hann er í óbyggðinni - þá farið eigi út þangað. Sjá, hann er í her- bergjunum - þá trúið því ekki. Því að eins og eldingin gengur út frá austri og sést allt til vestur þannig mun verða koma manns-sonarins. "(26.27.versi. Lítið vandlega á þessi vers aftur. Það eru "falskristarnir" og"falsspá- mennirnir" sem reyna að blekkja jafn- vel útvalda. Varðandi hvaða atriði? Falskristarnir munu segjast vera endurkominn Messras og falsspámennirnir munu segja: "Sjá hann er r óbyggðinni" eða "r herbergjrmum". Jesús segir: "Ég kem ekki þannig. Ég kem eins og eldingin sem leiftrar yfir himininn frá austri til vesturs með srnum mikla bjarma og birtu." Drottinn vill að við athugum það að hann kemur r eigin dýrð sinni, dýrð föðurins og dýrð allra englanna (sjá LÚk.9,26). Hversu mikla dýrð hefur einn engill? Við vitum þetta: Dýrð eins engils leiddi það af sér að hópur hraustra rómverskra hermanna féll sem dauðir við gröf Jesú.Ef við getum marg- faldað þetta með þeim fjölda engla sem verða við komu Krists munum við fá svolitla hugmynd um dýrð allra englanna. Og srðan bætum við við dýrð englanna dýrð Jesú og dýrð föðurins og hvað er þá "leynilegt"við endurkomu Jesú Krists? Biblían segir skýrt: "Sjá hann kemur r skýjunum og hvert auga mun sjá hann" (Op.1,7). Hvað er leynilegt við þetta? Hann mun koma aftur eins og hann fór. Lærisveinarnir sáu hann fara og við munum sjá hann koma aftur. Engillinn sagði við uppstigningu Krists: "Þessi Jesús sem var uppnuminn frá yður til himins mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins" (Post.1.11). Hér er ritningargrein sem segir okkur meira um það hvað mun gerast þegar Jesús kemur aftur: "Því að það segum vér yður og höfum fyrir oss orð Drottins, að vér sem lifum og erum eftir við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu; því að sjálfur Drottinn mun með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, stíga niður af himni, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa. Síðan munum vér, sem eftir erum verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma." (1.Þess.4,15-18). Við munxam bæði sjá Jesú og heyra til hans.l.Hvert auga mun sjá hann (Op. 1,7). 2. Hann stígur niður með "kalli". 3. "Raust" hans mun heyrast. 4."Básúna" Guðs mun hljóma (1.Þess.4,16). Það er ekki minnsta ástæða til þess að ætla að börn Guðs verði hrifin upp leynilega. Þegar Jesús kemur munu hinir ógúðlegu biðja þess að fjöll og hálsar falli 9

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.