Bræðrabandið - 01.01.1978, Qupperneq 11
Atzamöt
Heyrirðu viniir hljóminn?
Hljóm frá liðnum dögum.
Undurlága óma
af okkar hjartaslögum?
Enn eru augnablikin
áfram saman runnin.
Enn af ævi okkar
ársins kveikur brunninn.
Hvað ber okkur ómur
umliðinna daga?
Þar mun nóg um þrenging.'
- Það er lífsins saga.-
En bjart er oft um óðul
endurminninganna.
Sorg og gleði saman
sveipa vegferð manna.
Þá ár er fram hjá farið,
ferðamaður lítur
ósjálfrátt um öxl sér,
oft þá blygðast hlýtur.
Margt var feilspor farið
fram hjá skyldum stigið,
tækifærum tapað,
traust á Guði hnigið.
Oft fer öðruvísi
á árinu en skyldi.
Ætíð syndasorinn
silfrinu eftir fylgdi.
Ó, hve vaxtarvana
voru dagar mínir.
Æ, hve hryggjast hlýtur
hugur við slíkar sýnir.
En gleymum þá ei gæsku
Guðs á liðnum vegi,
að hans náðar nutum
nýrrar á hverjum degi.
Huggun hrelldum manni
hlotnast, myrkrið svarta
þverr við elskueldinn
inn við Drottins hjarta.
Kærleiksarmur Krists er
hverjum manni boðinn,
hans ef grípum höndu
hverfur jarðar voðinn.
Hjartans huggun eina
er hann og frelsið manna.
Hann er leiðarljósið
lifsins stjarnan sanna.
Heyrirðu vinur hljóminn,
hljóm frá nýjum dögum?
Undur lága óma
af okkar hjartaslögum?
Enn þá gefast okkur
augnablik í stundum.
Tími tækifæra,
tefjum ei né blundum.
Notum árið nýja
- náðarstundir bjartar -
til að eignast eldinn
inn við Drottins hjarta.
Þá mun gæfa - gleði -
gista í hverjum ranni
og bróðurelskan bjarta
berast hverjum manni.
Björk
L
-