Bræðrabandið - 01.01.1978, Page 12

Bræðrabandið - 01.01.1978, Page 12
H AFA VISINDIN UPPGOTmD LÍF EFTIR DAUÐANN? Eftir MARVIN MOORE SUMIR HALDA ÞVÍ FRAM AÐ ÞEIR HAFI FUNDIÐ SÖNNUN ÞESS AÐ SÁLIN LIFI LÍKAMS- DAUÐANN. Kimber Burns barði hnefanum í flaut- una og spyrnti £ hemlana. Það ýlfraði í hjólbörðunum og hann missti stjóm á bílnum. Bíllinn hringsnerist og höfuð Burns slóst í dyrustafinn. 1 eitt augnablik var myrkt. Burns fékk verk í vinstri handlegginn. Maður hrópaði að því er virtist í fjarlægð. Svo heyrðust margar aðrar raddir. Ein- hvers staðar heyrði hann bíldyr opnaðar og maður sagður: "Ég er viss um að hann er látinn." Burns opnaði augun. Hann sá manninn óljóst í opnum dyrunum. Allt í einu varð ásjóna mannsins skýr. Burns fannst hann hreyfast upp á við, út úr líkamanum að því er virt- ist í gegnum þakið á bílnum. Undrandi leit hann á sjálfan sig. Þarna voru handleggir hans og fætur. Hann gat séð líkama sinn liggja á'framsætinu. Vinstri fótur hans var snúinn við öklann. Ég ér að deyja. Hugsaði Burns. Þetta getur ekki verið ég - en það er ég. Og þá varð allt aftur svart og hann heyrði háværar raddir í kringum sig. Honum fannst hann vera sogaður í gegnum gífurlega stórt rör og það var ljós við fjarlægari endann sem varð skærara eftir því sem hann nálgaðist það. Beggja vegna sá hann aðrar verur eins og sig sjálfan. Hann þekkti föð- ur sinn sem hafði dáið fyrir mörgum , árum og félaga sinn úr menntaskóla, sém hafði dáið i flugslysi á menntaskóla- árunum og eldri systur sína. Hann hafði Marvin Moore er rithöfundur sem á heima í Keene í Texas. Grein úr Review 17.nóv.l977 verið við jarðarför hennar þegar hann var lítið barn. Þau brostu öll og virtust banda til hans og vildu slást í hópinn með honum. Hann reyndi að komast til þeirra en það var lína á milli þeirra og hans sem hann gat ekki farið yfir. Allt í einu varð Burns var við voldugt afl við hliðina á sér. Hann sneri sér við og þá sá hann fyrir fram- an sig ljós miklu skærara en sólin en samt skaðaði það ekki augu hans. "Hvað getur þú sýnt mér úr lífi þínu?" spurði ljósið. Þetta voru ekki nákvæm- lega réttu orðin en þetta var sú hugsun sem fór á milli ljóssins og hans. Burns fann til mikils friðar og fagnaðar. Hann reyndi að segja verunni í ljósinu sem honum fannst vera Kristur að hann vildi slást í hópinn með vinum sínum og ástvinum. En veran "talaði" aftur "þú verður að fara aftur," virt- ist hún segja. "Verki þínu er ekki lokið. Kærleikurinn er hið mikla verk- efni lífsins. " 1 augnablik virtist allt svart aftur. Þá fann Burns margar hendur toga líkama sinn út úr bílnum. Hann stundi og opnaði augun. Maður í hvítum frakka beygði sig yfir hann. "Hann er enn lifandi.'" heyrði hann monnina hrópa og þeir komu með sjúkrabörur að gang- stéttinni og lyftu honum inn í sjúkra- bílinn sem stóð við hliðina á bílnum hans. Ég hef búið til þessa sögu til þess að skýra reynslur sem fjöldi manns um öll Bandaríkin segjast hafa orðið fyrir og eins og Burns hafa lifað af dauðann. Slíkar reynslur hafa verið að gerast í lífi fólks í mörg ár, en það er bara núna sem farið er að taka þær alvarlega. Dr.Raymond Moody höfundur bókarinnar LÍf eftir líf er einn af þeim. Dr. Moody hefur haft tal af 150 manns sem hafa lent í slíkum reynslum. Dr. 12

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.