Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 13

Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 13
Elizabeth Kubler-Ross geðlæknir sem hefur sérstaklega kynnt sér efnið dauði og andlát hefur haft viðtal við aðra. "Þessar reynslur manna sem finnst þeir hafa lent við dauðans dyr eru mjög raunverulegar þessu fólki," segir Dr. Moody, "og fyrir samskipti mín af þeim hafa þessar reynslur orðið raunveruleg- ir atburðir fyrir mig." - Life After Life (Harrisburg Pa.: Stackpole Books, bls.124) . ÞÓ hann forðist það að segja það beint að þessar reynslur séu sönnun fyrir lífi eftir dauðann má lesa það á milli linanna við lestur bókarinnar að Dr. Moody aðhyllist slíka niður- stöðu. Dr. Kubler-Ross er ennþá ákveðnari: "1 mínum huga er ekki minnsti vafi um það að það er líf eftir dauðann," segir hún. Hún hefur lýst því opin- berlega yfir að "dauðinn sé í raiin og veru ekki til." Kenneth L.Woodward, "There Is Life After Death," McCalls, August 1976,bls.97. SVO KALLAÐAR SANNANIR GEFA BYR UNDIR BÁÐA VÆNGI Þessar fullyrðingar hjá persónum með vísindalegan bakgrunn hafa sérstaka þýðingu fyrir Sjöunda dags aðventista sem trúa á meðvitundarleysi í milli- bils ástandinu. Þessum sögum um líf í andanum eftir dauðann er tekið með mikilli virðingu (Bók Dr.. Moodys var gefin út í samþjöppuðu formi í janúar- blaði Reader's Digest 1977) oq mun örugglega gefa kenningunni byr undir báða vængi sem gerir ráð fyrir ódauð- leika sálarinnar og gera mönnum erfiðara fyrir en nú er að veita viðtöku kenningu Biblíunnar um skilyrðisbundinn ódauð- leika. Margir Sjöunda dags aðventistar sem hafa lesið bók Dr. Moodys hafa án efa dregið þá ályktun að það fyrirbæri sem hann lýsir sé blekking uppspunnin af djöflinum. Þetta er alveg mögulegt og í samræmi við kenningar okkar. Það hefur líka verið bent á það að þetta gæti verið eðlilegt fyrirbæri sem gerist þegar einstaklingur er nálægt dauðanum og sem djöfullinn getur notað fremur en yfirnáttúrlegt fyrir- brigði sem hann vekur upp. En sennilega er höfuðmálið ekki hvað fyrirbærið er heldur hvað það er ekki. Dr. Moody, Dr.Kubler-Ross og aðrir eru á þeirri skoðun að það sanni að maðurinn hafi sál sem hverfi úr líkamanum og hafi meðvitund strax við eða ef til vill rétt fyrir dauða líkamans. Þessari niðurstöðu hafna Sjöunda dags aðventistar af því að hún er ekki i samræmi við kenningu Biblíunnar um eðli mannsins,um dauðann og um upprisuna. Meðvitað líf byrjaði fyrir manninn þegar Guð blés lífsanda inn í líflausan líkamann sem gerður var úr leiri jarð- arinnar. Þegar einstaklingurinn deyr er ekki framar um meðvitund að ræða. Sem sönnun þess benda aðventistar á Sálmana 146,4 sem segir: "Andi hans líður burt, hann verður aftur að jörðu. Á þeim degi verða áform hans að engu," Og Préd.9,5: "Því að þeir sem lifa vita að þeir eiga að deyja en hinir dauðu vita ekki neitt." Kenning Nýja testamentisins um upp- risuna útilokar hina vinsælu hugmynd um ódauðleika sálarinnar. í ræðu sinni um endurkomu Krists skrifaði Páll til Korintumanna: "Því að þetta for- gengilega á að íklæðast óforgengileik- anum og þetta dauðlega á að íklæðast ódauðleikanum." (1.Kor.15,53). Einstakl- ingurinn á ekki ódauðleikann í sér. ódauðleikinn er eitthvað sem Jesús veitir við endurkomuna. í 1.Þess.4,14-17 fullvissar Páll hina trúuðu í Þessaloníkusöfnuði um það að þeir sem við komu Krists yrðu ummyndaðir án þess að sjá dauðann næðu ekki til himins á undan þeim sem dóu fyrir endurkomuna: "Því að ef vér trúum því, að Jesús sé daínn og upprisinn, þá 13

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.