Bræðrabandið - 01.01.1978, Síða 14
mun Guð sömuleiðis fyrir Jesúm leiða
ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru;
því að það segjum vér yður og höfum
fyrir oss orð Drottins, að vér, sem
lifum og erum eftir við komu Drottins,
munum alls ekki fyrri verða en hinir
sofnuðu; því að sjálfur Drottinn mun
með kalli, með höfuðenglis raust og
með básúnu Guðs, stíga niður af himni,
og þeir, sem dánir eru í trú á Krist,
munu fyrst upp rísa; síðan munum vér,
sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt
þeim hrifnir burt í skýjimi til fundar
við Drottin í loftinu; og síðan munum
vér vera með Drottni alla tíma."
Það væri skrýtið af Páli að segja þetta
hefði hann haldið að hinir látnu sem
hefðu ódauðlegar sálir kæmu á undan.'
Ef Satan á að ná árangri í því að
blekkja heiminn með andatrú á hinum
síðustu dögum að því marki sem Biblían
og Ellen G.White segja fyrir þá verður
hann á okkar öld þegar vísindin eru
æðsta vald heimsins að sannfæra vísinda-
mennina. Dr. Woody setur vandamálið
skýrt fram: "Andrúmsloft okkar tíma er
almennt gegn því-að ræða möguleikana
á lífi eftir líkamsdauðann. Við lifum
á þeirri öld þar sem vísindi og tækni-
fræði hafa gert mikla hluti í því að
skilja og sigra náttúruna. Að tala
um lífið eftir dauðann virðist einhvern
veginn útilokað í augum margra sem
finnst að sú hugmynd tilheyri meira
hjátrú fortíðarinnar en vísindaöld
vorra daga. Samkvæmt því er litið
með spotti á þá einstaklinga sem
hafa reynslur sem liggja utan þess sviðs
sem vísindin ráða yfir." Sama bók
bls.94.
Fyrir mörgum árxmi sagði Ellen G.
White fyrir xim það að "á himnum munu
brátt birtast óttalegar sýnir yfir-
náttúrulegs eðlis sem tákn um
vald þeirra djöfla sem furðuverk
geta unnið."Deilan mikla bls.650.
Jesús varaði við því að falskristar og
falsspámenn mundu gera mikil tákn og
undur og "ef verða mætti blekkja
jafnvel útvalda" (Matt.24,24.).
Vísindalegar "sannanir"m líf eftir
dauðann kunna að vera ein að blekkingum
síðustu daga. Þegar þær koma fram
getur heimurinn litið á yfirnáttúrlegar
sýnir djöfla sem vinna kraftaverk sem
vísindalega sönnun fyrir blekkingar-
hugmyndum djöfulsins.
Þeir sem trúa sannleikanum á hinum
síðustu dögiim verða að afneita vitnis-
burði skilningarvita sinna. Ellen
White spyr: " Er fólk Guðs svo stað-
fast í orði hans að það láti ekki
undan vitnisburði skilningarvita sinna?"
Sama bók bls.652.
Vald Biblíunnar mun verða aðalmál
í lokabaráttunni. Þess vegna verðum
við að rækta með okkur traust á Biblíuna.
Við verðum að fylla huga okkar með
sannleika Biblíunnar núna á hverjum
degi. Aðeins á þann hátt munum við
verða varin gegn magnþrungnum freist-
ingum sem Satan mun varpa á vegferð
okkar á dögunum sem fram undan eru. *
HVER VILL ÞIG LEIÐA?
Hver hefur skapaí himin og jör6?
Hver heldur yfir börnunum vöri?
Hver vill þau leiöa um heimsins stig?
Hann, sem aö elskar þig og mig
Hver þekkir barnslegu brosin þín?
Blessar þig, þegar sólin skín?
Hver vill þig leiða um byggð og borg,
breiiir út faðminn í gleði og sorg?
Hver skapar allt sem að ilmar og grær?
Allt sem að Xifað á jörinni fær,
æðandi stormsins andardrátt,
andvarann létta og hafið blátt.
Hver hefur skapað heimsins ljós?
Honum sé eilíf þökk og hrós.
Hann mun þér lýsa ef lokast sund,
leiðir og verndar þig hverja stund.
JÓhanna Herdís Sveinbjörnsdóttir
Þennan litla barnasálm, sem tileinkaður
var mér á áttræöisafmælinu mínu, langar
mig til aö senda afkomendum minum sem
nóðurarf og vitnisburö um bjargfast
lifsviðhorf mitt alla tíð.
Magnína Jóna Sveinsdóttir
Bauganesi 3
Reykjavik
ÞAKKIR
Um leið og við hverfum af landi burt
til starfa í Nígeríu, viljum við þakka
öllum trúsystkinum á íslandi fyrir sam-
starf, vináttu og hlýhug á liðnum tíma.
Einnig sendum við okkar bestu nýárskveðj-
ur og biðjum ykkur öllum blessunar Guðs.
Okkur þætti vænt um að njóta bæna ykkar
í framtíðinni.
Utanáskriftin til okkar verður þessi:
P.O.Box 111
Port Harcourt
Rivers State
Nigeria
Africa
Steinþór, Lilja og börnin.
14