Bræðrabandið - 01.01.1978, Page 16
Keflavíkursöfn: Ólafur Ingimundarson
Dreifð systkin: Regína Torfadóttir
Vestmannaeyjas: Vignir Þorsteinsson
Formaður nefndarinnar var W.R.L.Scragg.
Allsherjarnefnd lagði til að eftir-
farandi fulltrúar mynduðu tillögu-
nefnd og var það samþykkt:
Formaður: W.R.L.Scragg
Sigurður Bjarnason
Theodór Guðjónsson
Helgi Guðmundsson
Ólafur Önundsson
Sigríður Kristjánsdóttir
Þorbjörg Bragadóttir
Formaður og gjaldkeri samtakanna
kynntu þróun og stöðu elliheimilis-
sjóðsins og urðu um málið nokkrar
umræður, sem stóðu fram til hádegis.
Fyrir fundinn var lögð tillaga frá
stjórn samtakanna og gerði hún ráð fyr-
ir því að annað hvort yrði tiltekin
eign samtakanna, Bauganes 13, skoðuð
sem fjármagn væntanlegs elliheimilis
og yrði þá möguleiki á að aldrað fólk
í húsnæðishraki fengi þar inni eða að
elliheimilissjóðurinn verði leystur upp
og honum ráðstafað til annarra brýnna
verkefna.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi
tillögu frá tillögunefnd og voru 41
fulltrúi viðstaddur þegar atkvæða-
greiðslan fór fram:
1) Makaskipti verði höfð á sjóðnimi og
íbúðinni í Hraunbæ 82 I h.h. Þá verði
aðeins um verðtryggingu að ræða en
ekki sá möguleiki fyrir hendi að hýsa
aldraö fólk.
2) Eignaskiptin verði miðuð við 1.
janúar 1978.
Fiandinum var slitið um kl. 15:30
LEIKMANNAMÓT
fyrir safnaðarsystkini í N-Evrópu
verður í Utrecht í Hollandi 19.-22.
júlí n.k. Þeir sem hafa í hyggju að
sækja mótið frá íslandi þurfa að til-
kynna þátttöku á skrifstofuna Ingólfs-
stræti 19 fyrir l.febrúar.
Mótið munu sækja alls um 450 manns
alls staðar að úr N-Evrópu og þar verða
okkar bestu ræðumenn og því mikið þangsð
að sækja.
BOÐSKAPUR TIL SAFNAÐARINS 2.h.
RÚmlega 100 eintök hafa nú selst
af bókinni og er það mun rainna en
hafði selst af fyrri bókinni á sambæri-
legum tíma. Það er von þeirra sem fyr-
ir bókaútgáfunni standa að systkinin
geri sér ljóst að ef lítil hreyfing
verður á þýðingarmiklum bókum sem út
koma leiðir þaö til þess óhjákvæmi-
lega að færri bækur verða gefnar út.
Ef við viljum ýta undir bókaútgáfu
safnaðarins þurfa safnaðarsystkini að
kaupa og lesa útgefnar bækur. Margir
sem keyptu fyrri bókina hljóta að hafa
látiö undir höfuð leggjast að kaupa þá
síðari. Eru þeir eindregið hvattir til
að láta það ekki bíða lengur.
NÝIR TRÚBOÐAR FRÁ ÍSLANDI
Mánudaginn 2.janúar héldu Steinþór
ÞÓrðarson, Lilja kona hans og tvö börn
þeirra til Englands og var það fyrsti
áfangi á leið þeirra til NÍgerxu en
Steinþór hefur verið ráðinn þar til
starfa á vegum safnaðarins. Fjölskyld-
unni fylgja bestu óskir héðan að heiman.
FÓRNIN 7.JANÚAR
rennur til ritakaupa hvers safnaðar.
Hverjum söfnuði fyrir sig er ætlað að
nota þessar gjafir til að kaupa hjá
forlaginu rit til að dreifa.
FÓRNIN 21.JANÚAR
rennur til útgáfu Bræðrabandsins.
Ekki hefur verið farið út í það að taka
sérstakt áskriftargjald heldur biðja
systkinin að styrkja útgáfuna með fram-
lagi sínu einu sinni á ári.