Bræðrabandið - 01.11.1979, Blaðsíða 7
VIÐ VERÐUm
AÐHflFA
OLÍU
VIÐ VERÐUM AÐ BEITA VILJANUM TIL
ÞESS AÐ VELJA SKYNSAMLEGA OG AF
FESTU ÞVl AÐ ANNARS MUN HUGUR
OKKAR BERAST AFVEGA.
ChesterA. Holt
Við föriim á mis við kjarnann í 24.
og 25. kapítula Matteusarguðspjalls ef
við lítum fram hjá því atriði að höfuð-
áhersla Jesú í þessum kapítulum er við-
búnaður fyrir endurkomu Krists. í
þessari tveggja kapítula ræðu varar
Jesús aftur og aftur við blekkingu
bæði hvað snertir tíma endurkomunnar
og hátt hennar en höfuðefni hans er
það að vera tilbúin. Hvað þýðir það
að vera tilbúin? Aðalskoðunin virðist
vera sú að það að vera tilbúin sé að vera
góður. Að gera sig tilbúinn er að
verða betri þangað til við erum nógu
góð. Er þetta það sem Jesús leggur
áherslu á?
"Verið viðbúin," sagði Jesús en
ekki gerið ykkur tilbúin eins og um
einstök athöfn væri nægileg.
"Hver er þá hinn trúi og hyggni
þjónn?" (Matt.24,45).
"Sæll er sá þjónn sem húsbóndi
hans finnur breyta þannig er hann
kemur" (46.vers).
Ekkert er sagt í þessum versum
um það að vera góður eða réttlátur
eða fullkominn. "Góður" og"réttlátur"
(trúr) eru orð sem notuð eru síðar í
ræðunni en "trúi," "hyggni", og "að
breyta" eru orð sem eru notuð.
"Trúr" í hverju?
"Hygginn"í hvaða tilviki?
"Breyta" hvernig?
Hvernig á að breyta af trúmennsku
og hyggni til þess að vera viðbúin?
Ljós birtist okkur varðandi þess-
ar spurningar í 25.kapítula. í fyrri
deemisögunni eru tveir hópar manna sem
eru samt í einu lagi leiddir. fyrir
sjónir okkar. Ekki er Sc.gt að annar
hópurinn sé góður og hinn slæmur.
Jesús segir bara að annar helmingurinn
hafi verið vís og hinn fávis. Og hann
skýrir hvernig viska og heimska birtist
Annar hópurinn er sagður vera viðbúinn
en hinn óviðbúinn ekki á þeim grund-
velli að vera betri heldur á grundvelli
þess sem annar átti oghLnn átti ekki.
Það kann að vera að sumt af "besta"
fólkinu hafi verið á meðal hinna fávísu
Tíu manns voru að bíða 'eftir brúðguman-
im, biðu langt fram á nótt. Allar höfðu
þær lampa og allar hófu þær förina með
olíu á lömpum síntim. Fimm sýndu bá
visku að taka aukaolíu. Fimm voru svo
fávísar að þær tóku ekki nóg með sér.
Þar sem það skiptir sköpum að hafa
með sér næga olíu, hvað táknar þá olían
og hvar fæst hún? Þetta er kjarnaspurn-
ing varðandi það að vera viðbúin. Árum
saman hafa Sjöunda dags aðventistar
réttilega haldið því fram að olían
táknaði Heilagan anda (sjá Christs
Object Lessons bls. 407). LÍf Guðs
streymir um sálina fyrir Andann. Fólk
eignast þá reynslu þegar það reynir að
snúa hugsunum sínum til Guðs þar til
ljós sannleikans um það sindrar, og
skín enn meir þangað til áköf löngun
skapast eftir honum, þar til sálina
hungrar og þyrstir eftir honum og
leitar eftir honum af öllum sínum mætti
Andinn leitar þangað sem hans er óskað.
Hann kemur þegar tími er fyrir hann.
Guð elskar að búa í þeim huga sem
dvelur við það sem hann varöar - trú-
mennsku, mátt,visku,náð, kærleika,dýrð,
frið og margt fleira. Hann styrkir þær
tilfinningar sem snúast um hann eins og
það sem vex beinist að sólinni. Þeir
sem eilífðin laðar að sér skilja hið
heimslega eftir.
AÐ VELJA RÉTTA FÆÐU FYRIR HUGANN
Meðvitað líf er straumur hugsana
og tilfinninga. Við höfum mátt til
þess að stjórna þessum straumi. Við
getum valið hvað við hugsum um. Við
verðum veiklunda ef við veljiam ekki -
einnig ef við veljum hina röngu hugar-
fæðu. Við búum í heimi sem hefur lent
í gildru Satans. Margt er á boðstólum
til þess að hrífa hugann og leiða hann